Innlent

Viður­kennir að hafa gengið of hart fram

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Þórarinn viðurkennir að hafa gengið of hart fram en að félagið hafi gengið í öflugt umbótastarf.
Þórarinn viðurkennir að hafa gengið of hart fram en að félagið hafi gengið í öflugt umbótastarf. Vísir/Ívar

Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, segir að öflugt umbótastarf í vinnuanda á skrifstofunni hafa gengið vel og að félagið sé á réttri leið. Óánægju hefur gætt meðal stafsmanna félagsins, meðal annars með framgöngu Þórarins.

Sálfræðistofan Líf og Sál var fengin til að gera úttekt á vinnustaðarmenningunni hjá Sameyki og gerði skýrslu sem kynnt var starfsmönnum og stjórn. Óánægjan hafi komið í ljós þegar þegar niðurstöður Stofnunar ársins lágu fyrir og þá hafi verið gengið í greiningarvinnu. Fréttastofu var meinað um afrit af téðri skýrslu á forsendum að hún væri merkt sem trúnaðarmál.

Samkvæmt umfjöllun Heimildarinnar voru nýlega samþykktar breytingar á lögum félagsins þar sem skyldur við starfsmannahald og daglegan rekstur skrifstofunnar voru færðar af herðum formannsins og yfir á herðar skrifstofustjóra Sameykis. Hefur Heimildin það eftir ónafngreindum viðmælendum að breytingarnar hafi verið gerðar vegna samskiptavanda á milli Þórarins og starfsfólks á skrifstofunni.

Þórarinn viðurkennir að álagið hafi verið of mikið á köflum og að hann hafi gengið of hart fram. Velta var á starfsfólki með tilheyrandi erfiðleikum, að sögn Þórarins.

„Sérstaklega eftir að við stofnuðum nýtt félag Sameyki. Það voru mannabreytingar. Það var mikið álag á öllum við að halda starfseminni uppi og halda henni gangandi. Og við að tryggja sem besta þjónustu við okkar félagsfólk eins og við leggjum mikla áherslu á á öllum stundum,“ segir Þórarinn í samtali við fréttastofu.

Á réttri leið

Að sögn Þórarins voru nýir stjórnendur hjá félaginu þegar álagið var hvað mest og að þeir hafi þurft tíma til að læra inn á starfið. Hann hafi þá stigið inn í mörg mál sem hann gerði ekki í dag.

„En starfshópurinn hefur unnið mjög þétt saman og vel og við höfum gert starfsánægjumælingar reglulega í vetur. Og verið í mjög öflugu umbótastarfi innan skrifstofunnar og það hefur gengið vel og við sjáum á niðurstöðunum að við erum á réttri leið og vel það,“ segir Þórarinn.

Aðspurður um andann á skrifstofunni núverið segir Þórarinn hann vera mjög góðan.

„Enda er starfshópurinn mjög traustur og heldur vel utan um öll verkefni. Við getum sagt að við erum að standa þétt saman og horfa til framtíðar. Að byggja enn sterkara og betra félag,“ segir Þórarinn Eyfjörð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×