Skoðun

Það sem býr í Höllu Hrund

Viðar Hreinsson skrifar

Mér leist ekki alveg á blikuna þegar til tals kom að Halla Hrund Logadóttir byði sig fram til embættis forseta Íslands. Ég hafð tekið eftir framgöngu hennar í embætti orkumálastjóra, þar sem hún hélt fram almannahagsmunum af hógværri einurð sem var byggð á þekkingu og yfirsýn. Hún var rétta manneskjan í því embætti.

Þegar kvisaðist að bændur og gangnamenn austan af Síðu hefðu sent henni áskorun um að bjóða sig fram fór maður að sperra eyrun. Hún hefur greinilega unnið hugi þeirra og hjörtu. Í ljós kom að hún hafði verið þar í sveit, hjá afa sínum og ömmu, og haft þaðan staðgott veganesti. Það er ekki sjálfgefið að ung manneskja dragi slíka lærdóma af sveitadvöl sinni, læri að meta samvinnu og samhjálp á jarðtengdu sviði búskapar og taki þá hugsun með sér á vegferð út í heim, til náms og starfa á alþjóðlegum vettvangi. Einmitt þessi samþætting heimsmenningar og hins heimafengna hefur léð Höllu Hrund víða sýn sem er dýrmætt veganesti í embætti forseta – samfara heillandi viðmóti og hlýlegri framkomu sem hefur einkennt kosningabaráttu hennar. Þessir eiginleikar skila sér örugglega betur þegar hún hittir fólk í návígi en í kappræðum þar sem hugmyndir eru ummyndaðar í snöggsoðnar söluræður stjórnmála og viðskipta.

Fólk getur greint á um stjórnarfarslegt hlutverk forseta eða valdsvið embættisins en það liggur þó nokkuð ljóst fyrir. Á þeim þrönga dægurpólitíska vettvangi ríður mest á að forsetinn hafi til að bera dómgreind, heiðarleika og einurð til að sinna þeim störfum, og kjark til að beita þeim lýðræðislega öryggisventli sem neituarvaldið er.

Á öðru sviði er oft talað um forseta sem sameiningartákn þjóðar. Ég veit ekki hvort sú hugmynd er raunhæf, táknmyndir eru þröngar og og hugmyndir um þjóðir eru að verða skrýtnar og afbakaðar á tímum fjölmenningar og fólksflutninga. Því held ég að forseti þurfi að vera mildur leiðtogi frekar en tákn, geta talað til allra, hvatt til dáða eða sagt til synda eftir aðstæðum, stuðlað að því að leysa úr úlfakreppum sundrungar sem hafa verið áberandi og mörgum sársaukafullar undanfarna áratugi. Það er ástæðulaust að fá alla til að hugsa eins. Hins vegar má stuðla að gagnkvæmum skilningi milli fólks, sá fyrir mannúð, lýðræði, réttsýni og virðingu í samskiptum, með því glaðlega og bjarta viðmóti sem einkennir Höllu Hrund.

Tímarnir eru viðsjárverðir, með óhugnanlegum yfirgangi hervelda sem afmennska allt kvikt sem fyrir verður, stórfyrirtækja sem taka sér æ meira vald yfir lífi okkar og ekki síst vistkreppu sem kallar á umbyltingu lífshátta eigi jörðin að vera mannfólki sæmilega byggileg áfram. Stríðin yfirskyggja en fólk er varla farið að horfast í augu við vistkreppuna. Forsetinn hefur afmarkað dægurpólitískt vald en aftur á móti dagskrárvald gagnvart meðbyr jafnt sem ógnum. Með yfirsýn og þekkingu samfara viðmóti sem þegar hefur heillað landsmenn getur Halla Hrund orðið rödd sem á þarf að halda, inn á við gagnvart landsmönnum og út á við gagnvart heimsbyggðinni, rödd mannúðar, lýðræðis, virðingar fyrir lífi og náttúru, rödd sem er mótuð af samhjálp sveitasamfélagsins, alþjóðlegri þekkingu og þeirri einurð sem hún hefur sýnt í embætti orkumálastjóra. Og hún getur hrint hugsjónum í framkvæmd.

Í Höllu Hrund Logadóttur býr atgervi sem getur orðið okkur öllum til heilla. Ég get varla hugsað mér nokkurn annan forseta næstu árin.

Höfundur er bókmenntafræðingur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×