Skoðun

Tíminn er núna, stöðvum hval­veiðar!

Hópur andstæðinga hvalveiða skrifar

Græðgi lifir á hvalveiðum

Eitt fyrirtæki, einn maður, stendur á bakvið veiðar á langreyðum við Íslandsstrendur.

- Sóley


Ég held að ef við myndum byrja aftur að veiða hvali sem sagt núna þá myndi það setja allt á hvolf.

- Ragnhildur Gísladóttir


Íslenska þjóðin státar sig náttúrulega mjög mikið af náttúrunni.

Við förum til útlanda og við tölum um norðurljósin og við tölum um fjöllin og við viljum leggja áherslu á það að þetta sé eitthvað sem að við getum verið stolt af og það er bara þannig að við getum ekki verið stolt af hvalveiðum.

- GDRN


Ef við hugsum í einhverju stærra samhengi, ef við erum ekki bara

einhverjir molbúar með eitthvað ótrúlega þröngt sjónarhorn þá hljótum við að taka þátt í alþjóðasamfélaginu og viðurkenna það að þetta er liðin tíð.

- Andri Snær Magnason


Þegar það er eitthvað svona sem er bara cruel, og bara ógeðslegt þá er alveg kominn tími til þess að horfa á þetta aðeins öðruvísi.

- Axel Flóvent


Mig langar mest að segja að það er í lagi að skipta um skoðun. Að leyfa sér að vera næmur, að vera viðkvæmur, fyrir utan það að hlusta á staðreyndir og lesa rannsóknir.

- Kolbeinn Arnbjörnsson


Við þurfum ekki á hvalveiðum að halda og þess vegna, af hverju ættum við að halda þeim áfram?

Afhverju ekki að vernda þessi dýr sem að bera næringarefni út um hafið og búa til súrefni fyrir okkur og gera þessa plánetu að betri stað til að lifa á.

Og mögulegum stað til að lifa á.

- Hera Hilmarsdóttir


Hvalirnir eru stoð lífkerfis sjávarins og við værum ekki hérna án sjávarins þannig að ef að hvalirnir fara þá förum við líka.

- Berta Andrea Snædal


Síðasti geirfuglinn, hafði verið drepinn, af íslendingum. Í dag hugsa ég með mér að skuld okkar við geirfuglinn sem verður auðvitað aldrei greidd með því að lífga hann við, að mögulega getum við greitt skuld okkar við geirfuglinn með því að friða hvali.

- Sjón


Þegar ég er að segja níu ára dóttur minni frá hvað er í gangi. Hvernig á maður að koma orðum að því hvernig fólk getur réttlætt hvað er í gangi?

- Aníta Briem


Ég vona að við stöndum saman um að verja þá um að verja þá alla og allt samfélagið.

- Ragnhildur Gísladóttir


Það er ótrúlega stór hluti af okkar sjálfsmynd sem þjóð, þessi hugmynd um okkur

sem fiskveiðiþjóð og hvernig hafið hefur haldið í okkur lífi í gegnum aldirnar.

En við erum ekki hvalveiðiþjóð.

Og það er kannski okkar tækifæri núna til að gefa eitthvað til baka til náttúrunnar

með því að hætta þessum ótrúlega tilgangslausu veiðum.

- Berglind Pétursdóttir


Ég held að akkúrat ef við ætlum að hengja okkur í einhverja svona lagafilmleika, af því að við getum ekki stigið sko einum millimeter út fyrir þennan ofboðslega mannhverfa ramma til þess að segja það skiptir eitthvað máli sem er stærra en við þá held ég við eigum engan sjens yfir höfuð að lifa af.

- Rán Flygenring


Og ég skil ekki að fólk sjái það ekki

Ég held að það hljóti að vera mjög fáir sem sjá þetta ekki

Kannski einn!

- Ragnhildur Gísladóttir


Með því að stöðva dráp á hvölum erum við að sýna öllum heiminum að það er til

von!

Fyrir jörðina.

- Bubbi Morthens


Af hverju getur ekki núna, tíminn núna verið tíminn þar sem við ákveðum að

hætta hvalveiðum?

- Hera Hilmarsdóttir

Sóley Stefánsdóttir, Ragnhildur Gísladóttir Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir, Andri Snær Magnason, Axel Flóvent, Kolbeinn Arnbjörnsson, Hera Hilmarsdóttir, Berta Andrea Snædal, Sigurjón Birgir Sigurðsson, Aníta Briem, Berglind Pétursdóttir, Rán Flygenring, Bubbi Morthens.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×