Skoðun

Burt með pólitík á Bessa­stöðum

Kristmundur Carter skrifar

Nú þegar aukið líf færist í baráttuna um næsta forseta Íslands tel ég það áhyggjuefni ef kjósendur eru sáttir við að „afhenda” Bessastaði stjórnmálastéttinni á ný. Þau sem nú tróna efst í könnunum koma úr þeim geira, annar fyrrverandi forsætisráðherra og hinn, ramm pólitískur fyrrverandi alþingismaður sem ætlar, verði hann forseti, að veita stjórnmálamönnum „aðhald” og lesa yfir „hausamótunum” á þeim. Ofarlega er líka að finna fyrrverandi borgarstjóra

Þeir sem hafa tjáð sig um þetta halda því fram að þeir einir geti greint og lesið í til dæmis stjórnarmyndunarviðræður eða þegar gjá myndast milli þings og þjóðar. Þessu er ég ekki sammála.

Sem stuðningsmaður Höllu Tómasdóttur fullyrði ég að verði hún forseti, mun aldrei leika grunur um hlutdrægni þegar kemur að erfiðum málum. Þá skortir Höllu hvorki greind né hugrekki til að taka erfiðar ákvarðanir.

Halla Tómasdóttir mun sem forseti ekki líta á hlutverk sitt fyrst og fremst sem siðapostula stjórnmálamanna heldur halda sig frá pólitískum dægurmálum. Halla ætlar að setja á dagskrá mál sem til dæmis snerta viðkvæma hópa, unga fólkið okkar sem í auknu mæli glímir við sálræna erfiðleika og einmannaleika. Hún hefur einstakt alþjóðlegt tengslanet á vettvangi stjórnvalda, viðskipta og þriðja geirans og vill vinna að jákvæðum framförum í viðskipta- og stjórnarháttum. Þá hefur hún einstaka reynslu á heimsvísu í að hvetja viðskiptalífið til að axla ábyrgð á áhrifum sínum á umhverfi og samfélög. Loks brennur hún fyrir að mótuð verði stefna til framtíðar í orkumálum og ferðamálum. Slíkt hlutverk getur forseti Íslands tekið að sér.

Svona forseta vil ég á Bessastaði. Heiðarlega og hugrakka, þroskaða konu sem mun vekja athygli hvar sem hún fer. Konu sem er hafin yfir dægurþrasið

Halla trúir á Ísland og Íslendinga og vill beita sér fyrir því að hér sé sterkt, sjálfbært og samheldið samfélag sem hefur hugrekki til að virkja hugvit sitt og sköpunarkraft til efnahagslegra og samfélagslegra framfara á grunni sjálfbærni, jafnrétti og friðar og vera þannig öðrum fyrirmynd í þeim lausnum sem víða um heim er nú leitað að.

Afhendum ekki fleiri stjórnmálamönnum lyklavöldin á Bessastöðum!

Höfundur er stuðningsmaður Höllu Tómasdóttur forsetaframbjóðanda.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×