Sport

NFL tekur ekki undir um­deild um­mæli But­ker

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Harrison Butker spilaði stóran þátt í sigri Chiefs í Ofurskálinni á þessu ári.
Harrison Butker spilaði stóran þátt í sigri Chiefs í Ofurskálinni á þessu ári. Lauren Leigh Bacho/Getty Images

NFL-deildin hefur gefið út að hún deili ekki skoðunum Harrison Butker, sparkara meistaraliðs Kansas City Chiefs,

Nýverið hélt Butker ræðu við útskrift nemenda úr Benedictine-háskóla í Atchison í Kansas. Þar tjáði hann sig um hlutverk kynjanna, samkynhneigð, fóstureyðingar, kórónufaraldurinn, Joe Biden – Bandaríkjaforseta og poppstjörnuna Taylor Swift en sú er kærasta Travis Kelce – eins besta leikmanns NFL-deildarinnar undanfarin ár.

„Það eruð þið, konurnar, sem eruð mataðar af verstu lygunum. Sumar ykkar gætu átt farsælan feril en ég þykist vita það að meirihluti ykkar séu spenntastar fyrir hjónabandinu og börnunum sem þið munuð fæða í heiminn,“ var meðal þess sem Butker sagði.

„Það er ekki hægt að ofmeta það að allur árangur minn er mögulegur vegna þess að stúlka sem ég hitti í grunnskóla snerist til trúar, verða konan mín og taka fagnandi við einum mikilvægasta titli allra: Húsmóðir,“ bætti hann svo við.

Hinir ýmsu aðilar hafa nú tjáð sig um ummæli Butkers og gefið til kynna að hann standi ekki fyrir það sem Kansas sem fylki standi fyrir. Þar á meðal er Justice Horn, fyrrum borgarfulltrúi í Kansas-borg. 

Nú hefur NFL-deildin sjálf gefið út að hún deili engan vegin skoðunum sparkarans. Á sama tíma hefur lið hans, Chiefs, hins vegar neitað að tjá sig um málið.

Fjölmargir hafa kallað eftir því að honum verði vísað úr NFL-deildinni vegna smánarlegra ummæla hans. Það virðist þó ekki vera sem deildin né Chiefs ætli að grípa til ráðstafana en það verður allavega forvitnilegt hvort myndavélar nái því þegar Butker og Kelce hittast að nýju eftir sumarfríið.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×