Fótbolti

Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman

Valur Páll Eiríksson skrifar
Thomas Tuchel er á förum og erfið leit Bæjara heldur áfram.
Thomas Tuchel er á förum og erfið leit Bæjara heldur áfram. DeFodi Images via Getty Images)

„Þetta er minn síðasti blaðamannafundur hér,“ sagði Thomas Tuchel, stjóri Bayern München, á fundi í morgun. Félagið leitar áfram logandi ljósi að nýjum þjálfara.

Gefið var út fyrr í vor að Tuchel myndi yfirgefa Bayern að yfirstandandi leiktíð lokinni en þjálfaraleit félagsins hefur gengið illa. Síðustu daga benti allt til að Tuchel yrði áfram og var áhugi fyrir því hjá íþróttastjórum félagsins, Max Eberl og Christoph Freund.

Tuchel hefur verið í viðræðum við Bæjara síðustu daga en samkvæmt þýskum miðlum ætlaði hann sér ekki að halda áfram í starfi ef hann hefði ekki stuðning allra stjórnarmanna félagsins. Það virðist sem að svo sé ekki þar sem Tuchel staðfesti í dag að hann sé á förum eftir allt saman.

Bayern München hafði unnið þýska meistaratitilinn ellefu ár í röð áður en Bayer Leverkusen tók titilinn í ár. Liðið lýkur tímabilinu titlalaust.

Það féll út í 2. umferð þýska bikarsins eftir tap fyrir þriðju deildarliði Saarbrücken og tapaði í þýska ofurbikarnum fyrir RB Leipzig í upphafi leiktíðar. Eina von liðsins um titil var í Meistaradeild Evrópu en sú varð að engu eftir að liðið féll úr leik fyrir Real Madrid í undanúrslitum.

Í það minnsta fjórir kostir hafa hafnað því að taka við þjálfarastarfinu af Tuchel í sumar. Xabi Alonso, Ralf Rangnick, Julian Nagelsmann og Oliver Glasner.

Stjórnarmenn virtust því komnir á þá niðurstöðu að halda Tuchel en nú er ljóst að þjálfaraleitin heldur áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×