Skoðun

„Ég skal baka fyrir Gunnar en ég kýs Kristján“

Páll Magnússon skrifar

Þessi orð eru mér ógleymanleg úr fyrstu forsetakosningunum sem ég man eftir. Þetta var 1968 þegar Kristján Eldjárn var kosinn forseti og keppinauturinn var Gunnar Thoroddsen. Foreldrar mínir voru ekki á einu máli um hvorn skyldi kjósa. Pabbi var virkur stuðningsmaður Gunnars og var að hjálpa til við að skipuleggja kosningakaffi. Hann kunni ekki annað fyrir sér í eldamennsku en að harðsjóða egg og hita pulsur - og bað mömmu að leggja eitthvað til í kaffiboðið. Og þá kom þetta ógleymanlega svar: “Ég skal baka fyrir Gunnar en ég kýs Kristján“. Þar með lauk rökræðum foreldra minna um þessar kosningar – og sjálfur hafði ég fengið örnámskeið hjá mömmu í sjálfstæðri hugsun, þótt ég skildi það ekki fyrr en löngu seinna.

Skrýtin kosningabarátta

Þessari æskuminningu skaut upp í kollinn á mér þegar ég var að velta fyrir mér þeirri kosningabaráttu sem nú stendur yfir. Hún er að ýmsu leiti skrýtin. Einna sérkennilegastur finnst mér sá framgangsmáti í sumum kreðsum að ráðast með nokkru offorsi á það fólk sem vogar sér að lýsa opinberlega yfir stuðningi við Katrínu Jakobsdóttur. Ég hef ekki orðið var við að yfirlýstir stuðningsmenn annarra frambjóðenda þurfi að þola slíkar trakteringar.

Mér finnst sem sagt að fólk eigi að fá að komast að sinni sjálfstæðu niðurstöðu í þessum efnum, og lýsa henni opinberlega ef það svo kýs – án þess að þurfa að þola persónulegt skítkast. Eins og mamma gerði. Og þeir sem eru á annarri skoðun eigi að rökstyðja hana og standa með sínum frambjóðanda án þess að grípa til persónulegra árása á stuðningsmenn hina. Eins og pabbi gerði.

Og ég kýs Katrínu

Ég hef verið í nokkrum námunda við Katrínu Jakobsdóttur frá því að hún hóf þátttöku í pólitík fyrir rúmum 20 árum; sem fjölmiðlamaður í aðra röndina yfir allt tímabilið, sem alþingismaður í 5 ár – þar af 4 í þingliði fyrri ríkisstjórnarinnar sem hún veitti forystu - og loks hef ég upp á síðkastið, sem forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja, átt við hana samstarf um ýmsa viðburði tengda því að 50 ár voru í fyrra liðin frá Heimaeyjargosinu. Hún sýndi okkur m.a. þann sóma að halda árlegan fund forsætisráherra Norðurlandanna, og Kanada í þessu tilviki, í Vestmannaeyjum.

Það er skemmst frá því að segja að hvar sem ég ber niður í kynnum okkar Katrínar í þessa rúmu tvo áratugi þá hafa þau einkennst af heilindum, velvilja og jákvæðni.

Þegar búið er að skilja kjarnann frá hisminu í þessum forsetakosningum stendur eftir þessi einfalda spurning: Hverjum af þeim frambjóðendum sem eiga raunhæfa möguleika á að verða forseti Íslands treystirðu best til að gegna embættinu?

Ég hef sem sagt svarað þeirri spurningu fyrir mitt leyti .

Höfundur er forseti bæjarstjónar í Vestmannaeyjum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×