Körfubolti

Spilaði á móti Caitlin Clark og Paige Bueckers í há­skóla

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Elisa Pinzan og Daniela Wallen eru atvinnumennirnir í Keflavíkurliðinu.
Elisa Pinzan og Daniela Wallen eru atvinnumennirnir í Keflavíkurliðinu. Vísir/Hulda Margrét

Elisa Pinzan átti mjög flottan leik þegar Keflavíkurkonur komust í 2-0 í úrslitaeinvígi sínu á móti Njarðvík í Subway deild kvenna í körfubolta.

Subway Körfuboltakvöld valdi Pinzan Play Air leiksins í öðrum leiknum þar sem hún var með 18 stig, 5 fráköst, 7 stoðsendingar og 3 stolna bolta.

Hörður Unnsteinsson, umsjónarmaður Körfuboltakvölds, fékk hana í viðtal á háborðð eftir leikinn og spurði hana meðal annars út í hlutverk hennar í Keflavíkurliðnu og um það hvort hún væri að taka að sér leiðtogahlutverk í liðinu.

Ekki hugsa of mikið

„Ég held það og ég vona það. Ég reyni að koma með sjálfstraust inn í liðið. Ef þú hugsar of mikið þá eru skotin þín ekki að fara niður og þú ferð að gera mistök. Þetta bara spurning um að spila leikinn og ég elska þennan leik. Ég vil bara að njóta þess að spila en liðsfélagarnir mínir fá hrós fyrir að finna mig og halda ákefðinni uppi í varnarleiknum. Nú er bara að ná í einn sigur í viðbót,“ sagði Elisa Pinzan.

Pinzan var í fimm ár í bandaríska háskólaboltanum. fyrst fjögur ár með University of South Florida og svo í eitt ár með University of Maryland.

Hún spilaði meðal annars með Diamond Miller sem var valin önnur í WNBA-nýliðavalinu af Minnesota Lynx. Hvernig finnst henni hafa gengið að aðlagast íslenska boltanum?

Mætti öllum stjörnunum

„Það hefur gengið vel. Mér fannst háskólaboltinn hjálpa mér með líkamlega þáttinn. Ég spilað á móti Paige Bueckers, Caitlyn Clark og það væri hægt að nefna alla þessar stjörnuleikmenn. Líkamlegar körfur í háskólaboltanum hjálpa þér að vera agressífari og halda þínum manni fyrir framan þig,“ sagði Pinzan.

Caitlyn Clark er ein frægasta íþróttakona Bandaríkjanna í dag og hefur hjálpað til að auka mikið áhuga á kvennakörfunni. Keflvíkingar voru því að fá reynslumikinn leikmann inn í sitt lið.

Pinzan segist hafa lært mikið að eltast við alla þessa frábæru íþróttakonur í bandaríska háskólaboltanum.

„Ég reyni að vera agressíf, að halda mínum manni fyrir framan mig og reyna svo að skila mínu starfi sem er að hjálpa liðsfélögum mínum,“ sagði Pinzan.

Það má sjá allt viðtalið við hana hér fyrir neðan.

Klippa: PlayAir leiksins var Elisa Pinzan



Fleiri fréttir

Sjá meira


×