Körfubolti

„Eins og Svali segir: Móðir allra í­þrótta“

Stefán Marteinn skrifar
Jóhann Þór á hliðarlínunni í kvöld.
Jóhann Þór á hliðarlínunni í kvöld. Vísir/Diego

Grindavík sóttu sterkan sigur gegn Val í öðrum leik úrslitaeinvígis Subway deildar karla í körfubolta, 93-89, og jöfnuðu einvígið.

„Við bara kreistum þennan út í restina. Settum stór skot og þetta hefði getað farið á hvorn veginn sem var. Valsararnir eru hörku góðir og við lentum bara réttu meginn við strikið,“ sagði Jóhann Þór Ólafsson þjálfari Grindavíkur.

Valur leiddu leikinn lengst af Grindvíkingar leiddu þegar það skipti mestu máli.

„Ég held að við höfum náð einni og hálfri mínútu og það telur. Algjörlega bara eins og ég sagði þá var þetta must win fyrir okkur og það hefði verið erfitt að fara á Hlíðarenda 2-0. Núna er þetta bara eins og góður maður sagði, 0-0 og við þurfum bara að vinna tvo.“

Grindavík sýndu mikinn karakter að gefast ekki upp í kvöld og ólíkt síðasta leik þá brotnuðu þeir ekki þegar mest á lét.

„Það var risa hjarta og við töluðum bara um það fyrir leik og mér fannst við gera mjög vel í að halda okkur í mómentinu allan tímann. Auðvitað koma atriði þar sem við erum að svekkja okkur á einhverju sem við ráðum ekki við sem er bara partur af þessu.“

„Risa stór karakter í liðinu að eins og ég sagði við erum yfir í eina og hálfa mínútu í þessum leik en að sama skapi þá fara þeir aldrei meira frá okkur en tíu stig þannig þetta er alltaf leikur.“

Karfan hjá Daniel Mortensen var það sem skildi liðin af.

„Já algjörlega bara eins og stoppið hjá okkur þegar að þeir eru svo að reyna finna körfu hérna og svona er þetta bara eins og Svali segir, móðir allra íþrótta og þetta var geggjað.“


Tengdar fréttir

„Spilum eins og það sé enginn morgun­dagur“

Daniel Mortensen setti niður þriggja stiga skot þegar 21 sekúnda var eftir af leik Grindavíkur og Vals í úrslitum Subway-deildar karla. Staðan þá var jöfn 89-89 en karfan frá Mortensen svo gott sem tryggði sigur Grindavíkur sem hefur nú jafnað metin í einvíginu. Daninn var því eðlilega kampakátur þegar hann mætti í viðtal eftir leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×