Rekin út af fyrir litla töf, Nadía reddaði Fanneyju og Blikar sjóðheitir Það var nóg um að vera í Bestu deild kvenna í fótbolta í gær þegar þrír leikir fóru fram. Rauða spjaldið fór tvisvar á loft í Kaplakrika, hjá FH og Þrótti, en Breiðablik og Valur héldu áfram á sigurbraut. Íslenski boltinn 9.5.2024 12:31
Hafnað af Stoke og var stuðningsmaður Real síðast Í einvígi stórveldanna Real Madrid og Bayern München hefðu sjálfsagt fáir spáð því að aðalhetjan yrði hinn 34 ára gamli Joselu, lánsmaður frá B-deildarliði Espanyol sem Stoke City taldi sig ekki hafa not fyrir, en sú varð raunin. Fótbolti 9.5.2024 11:47
Fyrsta sumarmót ársins í opinni dagskrá í kvöld Gleðin var við völd í Víkinni um helgina þegar ungir knattspyrnuiðkendur léku listir sínar á Cheerios-mótinu. Þáttur um mótið verður sýndur í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport í kvöld. Fótbolti 9.5.2024 11:17
Dagskráin í dag: Keflavík getur komist í úrslit, Cheerios-mótið og Glódís og Sveindís mætast í bikarúrslitum Sport 9.5.2024 06:01
Aðstoðardómarinn bað Bæjara afsökunar: „Þetta er hörmung“ Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri Bayern München, segir að annar aðstoðardómarinn í leiknum gegn Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu hafi beðist afsökunar á að hafa lyft flaggi sínu of snemma þegar Bæjarar skoruðu undir lokin. Real vann leikinn, 2-1, og einvígið, 4-3 samanlagt. Fótbolti 8.5.2024 22:47
Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Færeyjar eru á barmi þess að komast á HM í handbolta í fyrsta sinn eftir stórsigur á Norður-Makedóníu, 34-27, í fyrri leik liðanna í umspili í kvöld. Færeyingar standa því afar vel að vígi fyrir seinni leikinn á laugardaginn. Handbolti 8.5.2024 22:32
Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann vægast sagt öruggan sigur er liðið tók á móti Eistum í fyrri leik liðanna í umspili um laust sæti á HM 2025. Lokatölur 50-25, en seinni leikur liðanna fer fram í Eistlandi á laugardaginn. Handbolti 8.5.2024 18:45
„Ánægður að við sýndum þá hlið að við getum verið góðir í sextíu mínútur“ Gísli Þorgeir Kristjánsson átti hörkuleik fyrir íslenska karlalandsliðið í handbolta er liðið vann 25 marka risasigur gegn Eistlandi í undankeppni HM í kvöld, 50-25. Handbolti 8.5.2024 22:09
„Á flestum sviðum körfuboltans voru þeir bara betri en við“ Pétur Ingvarsson, þjálfari Keflavíkur, var daufur í dálkinn þegar Andri Már Eggertsson tók hann tali eftir stórt tap hans manna gegn Grindavík í kvöld en lokatölur leiksins urðu 96-71. Körfubolti 8.5.2024 22:04
Þakklátur eftir fyrsta landsleikinn: „Tek bara einn dag fyrir í einu“ Einar Bragi Aðalsteinsson lék sinn fyrsta leik fyrir íslenska karlalandsliðið í handbolta er liðið vann 25 marka risasigur gegn Eistum í kvöld, 50-25. Handbolti 8.5.2024 21:57
„Ekkert sjálfgefið að valta yfir lið“ „Þetta er eitthvað sem þú reiknar ekki með sem þjálfari,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, eftir sannkallaðan stórsigur gegn Eistum í kvöld, 50-25. Handbolti 8.5.2024 21:50
„Þetta var bara sturlað“ Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, var mættur í viðtal til Andra Más Eggertssonar eftir stórsigur á Keflavík í kvöld, 96-71. Körfubolti 8.5.2024 21:46
Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Valur 1-2 | Meistararnir komu til baka suður með sjó Valur heimsótti Keflavík suður með sjó í kvöld þegar liðin mættust í 4. umferð Bestu deildar kvenna. Eftir flottan fyrri hálfleik hjá Keflavík voru það Valsarar sem snéru þessu við og unnu 1-2 sigur. Íslenski boltinn 8.5.2024 17:15
Joselu hetjan þegar Real Madrid fór í úrslit í enn eitt skiptið Joselu var hetja Real Madrid þegar liðið tryggði sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu með 2-1 endurkomusigri á Bayern München í kvöld. Madrídingar unnu einvígið, 4-3 samanlagt. Fótbolti 8.5.2024 18:31
„Eitthvað sem þær þurfa að svara fyrir á fundi á morgun“ Kristján Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar sagði að hans lið þyrfti meiri tíma til að vera tilbúið í slaginn í Bestu deildinni. Hann sagði leikmenn þurfa að svara fyrir ákveðna hluti á fundi á morgun. Íslenski boltinn 8.5.2024 20:16
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þróttur 1-0 | Sigurmark á 96. mínútu Mikil dramatík var þegar FH fékk Þrótt í heimsókn í Bestu deild kvenna í kvöld. Breukelen Woodard tryggði FH-ingum sigurinn með marki þegar sex mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Íslenski boltinn 8.5.2024 17:15
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - Stjarnan 5-1| Blikar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Breiðablik vann öruggan 5-1 sigur á Stjörnunni í Bestu deild kvenna í kvöld þegar liðin mættust á Kópavogsvelli. Breiðablik er því með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir en Stjarnan var að tapa sínum þriðja leik. Íslenski boltinn 8.5.2024 17:15
Martin og Styrmir góðir en liðunum gekk misvel Martin Hermannsson átti góðan leik þegar Alba Berlin vann öruggan sigur á Bonn, 90-69, í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Körfubolti 8.5.2024 19:48
Fiorentina aftur í úrslit Sambandsdeildarinnar Fiorentina er komið í úrslit Sambandsdeildar Evrópu, annað árið í röð. Fótbolti 8.5.2024 18:55
Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 96-71 | Gulklæddir flengdu Keflvíkinga Grindavík fékk Keflavík í heimsókn í undanúrslitaeinvígi liðanna í úrslitakeppni Subway-deildar karla. Gestirnir jöfnuðu einvígið í dramatískum leik í Keflavík en voru eins og skugginn af sjálfum sér í kvöld. Körfubolti 8.5.2024 18:31
Gamli FH-ingurinn kom Fredrikstad áfram í bikarnum Júlíus Magnússon og félagar í Fredrikstad eru komnir í átta liða úrslit norsku bikarkeppninnar eftir sigur á Raufoss í dag, 2-3. Fótbolti 8.5.2024 18:11
Dæmdur fyrir aðstoð við morð en valinn í landslið Síle Hinn 29 ára gamli fótboltamaður Luciano Cabral gæti spilað á Copa América í sumar, á reynslulausn eftir að hafa verið dæmdur fyrir að aðstoða pabba sinn við morð. Fótbolti 8.5.2024 16:30
Enrique hneykslaður: „Er þér alvara?“ Luis Enrique, þjálfari PSG, var skiljanlega svekktur eftir tapið gegn Dortmund í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld. Hann var hneykslaður á spurningu um heppni, á blaðamannafundi eftir leik. Fótbolti 8.5.2024 16:00
Skyldusigur í kvöld: „Þurfum að koma okkur inn á HM“ Janus Daði Smárason segir leikinn við Eistland í kvöld skyldusigur og er staðráðinn í að komast með Íslandi inn á næsta heimsmeistaramót í handbolta. Handbolti 8.5.2024 15:31
Einar Bragi verður einn af strákunum okkar í kvöld Snorri Steinn Guðjónsson hefur valið leikmannahóp Íslands sem mætir Eistlandi í kvöld í fyrri leik liðanna í umspili um sæti á heimsmeistaramóti karla í handbolta. Handbolti 8.5.2024 14:59