Innlent

Síðustu naglarnir skulu af götum Reykjavíkur í næstu viku

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Götur á höfuðborgarsvæðinu eru margar illa farnar eftir veturinn. Fylla hefur þurft upp í fjölmargar holur.
Götur á höfuðborgarsvæðinu eru margar illa farnar eftir veturinn. Fylla hefur þurft upp í fjölmargar holur. Vísir

Fjögur af hverjum tíu ökutækjum í Reykjavík voru á nagladekkjum í mars. Þetta kom í ljós við talningu á vegum borgarinnar í síðasta mánuði.

Í tilkynningu frá borginni segir að nagladekk verði ekki leyfileg á götum borgarinnar eftir 15. apríl. Hlutfallið í ár hafi verið lægra en undanfarin tvö ár.

„Hlutfallið fer því lækkandi en betur má ef duga skal, því góð vetrardekk duga oftast betur en naglar í Reykjavík. Auk þess hafa nagladekk slæm áhrif á loftgæði og þau slíta götum hratt. Nagladekk eru ráðandi þáttur í svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu.“

Fram kom í fyrirlestri Þorsteins Jóhannssonar, sérfræðings hjá Umhverfisstofnun, í mars að bíll á nagladekkjum mengar allt að fjörutíu sinnum meira en bíll á öðrum dekkjum.

„Það er sinnum, ekki 40 prósent meira heldur 2000 prósent meira.“

Staðreyndin sé að nagladekk auki kostnað á viðhaldi gatna í Reykjavík með því að slíta malbik margfalt hraðar en önnur dekk.

„Þau auka eldsneytiskostnað bifreiða, valda óþarfa hávaða og draga úr loftgæðum með mengun. Af þeim sökum er mikilvægt að draga úr hlutfalli þeirra.

Mjög mikilvægt er að skipta um dekk núna og fara yfir á góð sumardekk, það sparar líka eldsneyti,“ segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.


Tengdar fréttir

Bílarnir ráði við salt­kassana og undan­þága veitt fyrir nagla­dekk

Skrifstofustjóri reksturs og umhirðu borgarlandsins segir alla þá atvinnubíla sem voru boðnir út árið 2020 hafa burðargetu upp á 1180 kíló og valdi því saltkössum upp á eitt onn. Saltgeymslur séu vissulega í gömlum bröggum en hafi fengið nauðsynlegt viðhald er á þurfi að halda. Þá hafi undanfararbílar fengið undanþágu og megi vera á nagladekkjum.

Skorar á Dag B. að mæta á eina vakt uppi í Mosó

Hálka gerir Íslendingum lífið leitt. Jafnvel sjálfir söltunarbílar hins opinbera runnu til í glærahálku í morgun og sjúkraliði hjá Reykjavíkurborg hótar að leita sér að öðru starfi ef hún fær ekki að sinna heimahjúkrun á nagladekkjum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×