Enski boltinn

Jón Daði og fé­lagar náðu ekki að koma sér upp um deild

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Jón Daði Böðvarsson og félagar þurfa að gera sér annað tímabil í C-deildinni að góðu.
Jón Daði Böðvarsson og félagar þurfa að gera sér annað tímabil í C-deildinni að góðu. Getty/Dave Howarth

Félögum Jóns Daða Böðvarssonar í Bolton mistókst í dag að vinna sér inn sæti í ensku B-deildinni í knattspyrnu er liðið mátti þola 2-0 tap gegn Oxford United á Wembley.

Bolton og Oxford mættust í hreinum úrslitaleik um sæti í ensku B-deildinni á þjóðarleikvangi Englendinga, en liðin freistuðu þess bæði að koma sér upp um deild í gegnum umspil. Bolton hafnaði í þriðja sæti deildarinnar, en Oxford því fimmta.

Bæði mörk leiksins litu dagsins ljós í fyrri hálflrik, það fyrra þegar Josh Murphy kom boltanum í netið eftir stoðsendingu frá Ruben Rodrigues á 31. mínútu og það seinna þegar Murphy kom boltanum aftur í netið eftir aðra stoðsendingu frá Rodrigues rétt rúmum tíu mínútum síðar.

Jón Daði var ekki í leikmannahópi Bolton í leik dagsins, en niðurstaðan varð 2-0 sigur Oxford sem vann sér þar með inn sæti í ensku B-deildinni, en Bolton þarf að gera sér annað tímabil í C-deildinni að góðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×