Lífið

Sungið og sungið á Sauð­ár­króki

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Leikhópurinn eftir vel heppnaða frumsýningu í félagsheimilinu Bifröst á Sauðárkróki.
Leikhópurinn eftir vel heppnaða frumsýningu í félagsheimilinu Bifröst á Sauðárkróki. Aðsend

Það er mikið sungið á Sauðárkróki þessa dagana en ástæðan er sú að leikfélag staðarins er að sýna Litlu hryllingsbúðina. Þrettán leikarar taka þátt í sýningunni en alls koma um fjörutíu manns að sýningunni á einn eða annan hátt.

Leikfélag Sauðárkróks, sem er eitt af elstu áhugamannaleikfélögum landsins ræst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur því félagið frumsýndi í byrjun Sæluvikunnar Litlu hryllingsbúðina í leikstjórn Valgeirs Skagfjörð og sýningar standa enn yfir á fullum krafti enda meira og minna uppselt á allar sýningar, sem fara fram í félagsheimilinu Bifröst.

Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir er formaður Leikfélags Sauðárkróks.

„Við setjum upp tvær sýningar á ári en á haustin eru barna og fjölskyldusýningar og svo á vorin erum við í söngleikjum eða í leikritum með söngvum,“ segir Sigurlaug Dóra.

Uppsetningin er einstaklega vel heppnuð enda aðsóknin eftir því.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Sigurlaug Dóra segir frábært að sjá hvað aðsóknin að Litlu hryllingsbúðinni hafi verð góð enda þekkt og skemmtilegt verk, sem allir hafa gaman af.

„Já, það er mikið af söngvum og mikið fjör í sýningunni. Þetta eru 13 leikarar sem taka þátt í sýningunni en það eru um 40 manns, sem koma að sýningunni í heild sinni með einum eða öðrum hætti. Ef að fólk vill hafa eitthvað að gera þangað til að það verður aðeins betra veður þá er tilvalið að skella sér í leikhús og sjá þetta meistaraverk,“ segir Sigurlaug Dóra.

Hér er hægt að kaupa miða á sýninguna

13 leikarar taka þátt í sýningunni á sviðinu og standa þeir sig allir með miklum sóma.Aðsend










Fleiri fréttir

Sjá meira


×