Innlent

Síðustu dagar kjörtímabilsins að renna upp á Alþingi

Heimir Már Pétursson skrifar
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fer yfir þau mál sem sennilega ná ekki fram að ganga á kjörtímabilinu og hvað tekur við eftir kosningar í september.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fer yfir þau mál sem sennilega ná ekki fram að ganga á kjörtímabilinu og hvað tekur við eftir kosningar í september. Stöð 2/Einar

Síðustu dagar þingstarfa á yfirstandandi kjörtímabili eru framundan í vikunni og setja svip sinn á Víglínuna á Stöð 2 í dag. Eldhúsdagsumræður fara fram á morgun og samkvæmt starfsáæltun á þingstörfum á vorþingi að ljúka næst komandi fimmtudag hinn 10. júní.

Það horfir ekki vel fyrir þingmannafrumvarpi Katrínar Jakobsdóttur um breytingar á stjórnarskránni. Áætlað er að vorþingi ljúki á fimmtudag.Stöð 2/Einar

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mætir í Víglínuna til Heimis Más Péturssonar fréttamanns á Stöð 2 í dag til að ræða hvaða mál muni hugsanlega daga uppi en þegar hefur komið fram að frumvarp umhverfisráðherra um hálendisþjóðgarð muni ekki ná fram að ganga fyrir kosningar.

Þá eru miklar efasemdir um þingmannafrumvarp Katrínar um breytingar á stjórnarskránni. Ef það verður ekki að hluta eða öllu leyti afgreitt út úr nefnd í þessari viku verður væntanlega engin þörf á að boða þing saman í nokkra daga í ágúst til að afgreiða þau mál.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins vill að Íslendingar fari leið Dana í málum hælisleitenda og telur fráleitt að lögleiða neysluskammta fíkniefna.Stöð 2/Einar

Í seinni hluta Víglínunnar fær Heimir Már þau Helgu Völu Helgadóttur þingmann Samfylkingarinnar og formann velferðarnefndar og Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Miðflokksins til sín. Miðflokkurinn hélt landsþing um helgina þar sem meðal annars var sterkt kveðið á um stefnuna í málefnum hælisleitenda og mögulega lögleiðingu neysluskammta fíkniefna.

Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingarinnar telur ríkisstjórnina ekki hafa staðið við loforð um öfluga innviðauppbyggingu á kjörtímabilinu.Stöð 2/Einar

Þau Helga Vala og Sigmundur Davíð munu einnig leggja dóm sinn á frammistöðu ríkisstjórnarinnar á kjörtímabilinu sem senn er á enda. Ef tími vinnst til verður einnig rætt um áherslur flokkanna fyrir komandi kosningar í lok September.

Víglínan er á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 17:40 og fer fljótlega eftir útsendingu inn á Stöð 2 + þar sem áskrifendur geta horft á þáttinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×