Íslenski boltinn

Skúrkurinn endaði sem hetjan

Aron Guðmundsson skrifar
Hannah Sharts hefur verið allt í öllu í liði Stjörnunnar í upphafi tímabils
Hannah Sharts hefur verið allt í öllu í liði Stjörnunnar í upphafi tímabils Vísir/Arnar

Það er ó­hætt að segja að Hannah Sharts, banda­rískur mið­vörður Bestu deildar liðs Stjörnunnar, hafi átt við­burða­ríkan leik gegn Kefla­vík á dögunum. Eftir að hafa gerst sek um ó­venju­leg mis­tök í fyrri hálf­leik steig hún upp og bætti upp fyrir þau með hreint út sagt mögnuðum leik.

Kefla­vík fékk kjörið tæki­færi til þess að komast yfir í leiknum gefins þegar að Hannah hand­lék knöttinn innan víta­teigs eftir marks­pyrnu sam­herja síns. Hannah hafði ætlað sér sjálf að taka spyrnuna en Jakub Marcin Róg, dómari leiksins, var vel vakandi og dæmdi rétti­lega víta­spyrnu.

„Þetta var í fyrsta sinn á mínum ferli sem það er dæmd víta­spyrna á svona at­vik,“ segir Hannah. „Ég vissi í raun ekki hvað væri að gerast fyrst þegar að dómarinn blés í flautu sína. Ég áttaði mig hins vegar fljótt og leið strax mjög illa í kjöl­farið. Það sem eftir lifði leiks var það svo ofar­lega í huga mér að bæta upp fyrir þetta. Gera allt sem að ég gæti til þess að koma mínu liði aftur inn í leikinn. Ég lærði lexíu af þessu. Þetta voru sak­leysis­leg mis­tök, mis­skilningur. Núna vitum við hvernig við getum komið í veg fyrir svona lagað í fram­tíðinni.“

Voru rólegar yfir stöðunni

Stjarnan lenti í basli framan af gegn Kefla­vík sem er spáð falli úr Bestu deildinni í vel flestum spám fyrir tíma­bilið. Kefla­vík leiddi með tveimur mörkum þegar að liðin gengu inn til búnings­her­bergja í hálf­leik.

„Þrátt fyrir stöðuna myndi ég segja að leik­menn hafi verið ró­legir yfir henni. Við vissum hvað við gætum. Það var enn nóg eftir af leiknum. Kristján þjálfari lagði til nokkrar taktískar breytingar á leik okkar fyrir seinni hálf­leikinn en í grunninn snerist þetta bara um að við hefðum trú á okkar getu. Berjast af fullum krafti þar til að loka­flautið myndi óma um völlinn. Taka þetta eitt mark í einu.

Hannah segir það hafa verið ofar­lega í sínum huga að bæta upp fyrir mis­tökin frá því í fyrri hálf­leik og það gerði hún svo sannar­lega. Á þriggja mínútna kafla snemma í seinni hálf­leik skoraði hún tvö mörk, jafnaði metin fyrir Stjörnuna og kom þeim aftur inn í leikinn.

Úr leik Stjörnunnar á tímabilinuVísir/Pawel Cieslikiewicz

Rúsínan í pylsu­endanum kom svo undir lok leiks, nánar til­tekið á 87.mínútu þegar að langt inn­kast hennar inn á teig endaði hjá Caitlin Meg­hani Cosme sem kom boltanum í netið og tryggði Stjörnunni dramatískan 3-2 endur­komu­sigur.

Þú hlýtur að hafa verið búin að gleyma þessum mis­tökum í fyrri hálf­leiknum mjög fljótt?

„Já um leið og ég skoraði seinna markið og liðs­fé­lagarnir hlupu til mín til að fagna sagði ég við þær „jæja núna er ég búin að bæta upp fyrir þetta.“ Mér fannst ég geta slakað að­eins á eftir það mark. Ég vildi bara svo mikið ná að jafna metin fyrir mitt lið. Ekki endi­lega með því að skora markið. Heldur bara með því að leggja allt mitt í leikinn.

Það að ná að jafna leikinn var stórt af­rek en með því að stela sigrinum í lokin var þetta bara eins og draumur að rætast. Við hefðum ekki geta beðið um neitt meira.“

Löngu innköstin í fjölskyldunni?

Þú ert nú mið­vörður að upp­lagi en skorar þarna tvö mörk í einum og sama leiknum. Á þínum leik­manna­ferli. Ertu vön því að skora mörk?

„Ég alla­vegana elska að skora mörk. Ég reyni að vera mikil ógn í teignum hjá öllum þeim liðum sem ég hef verið á mála hjá. Ég er varnar­maður út í gegn en hef einnig þá hlið að vilja eftir fremsta megni reyna að skora mörk. Til­finningin sem því fylgir er frá­bær. Það að geta lagt eitt­hvað af mörkum á þann hátt er mjög sér­stakt.“

Þið skorið sigur­markið eftir langt inn­kast frá þér. Vopn sem er vel þekkt í vopna­búri ís­lensku lands­liðanna í fót­bolta. Hefurðu alltaf geta kastað svona langt eða er þetta færni sem þú hefur þurft að þjálfa upp?

Stjarnan

„Ég hef náð að kasta boltanum svona langt frá því að ég man fyrst eftir mér. Vissu­lega hefur maður þróað þessa færni á­fram með ýmsum æfingum. Bæði tækni- sem og styrktar­æfingum. Mamma mín spilaði sjálf fót­bolta sem leik­maður og bjó einnig yfir þessari færni, að geta tekið löng inn­köst. Kannski er þetta bara í fjöl­skyldunni. Ég veit það ekki.“

Hannah gekk til liðs við Stjörnuna fyrir yfir­standandi tíma­bil. Hún er fædd og upp­alinn í Kali­forníu í Banda­ríkjunum og kemur hingað til lands sem tvö­faldur meistari með liði KuPS í Finn­landi þar sem að hún spilaði á síðasta tíma­bili.

Hvernig endarðu í Bestu deildinni á Ís­landi?

„Þetta virtist bara rétta skrefið á þessum tíma­punkti á mínum ferli. Stjarnan hafði sam­band þetta virtist vera full­komið tæki­færi fyrir mig. Allt við Ís­land virkaði sem ó­trú­lega spennandi fyrir mig. Ég þekki marga sem hafa komið hingað sem ferða­langað og allt það sem að ég hafði heyrt af landi og þjóð virkaði mjög vel á mig.

Ég vildi vera hluti af þessu verk­efni hér hjá Stjörnunni. Þetta fé­lag er sér­stakt á góðan hátt. Hefur náð góðum árangri og teflir fram sam­keppnis­hæfu liði tíma­bil eftir tíma­bil. Frá því að ég kom hingað hefur mér liðið eins og heima hjá mér.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×