Skoðun

Takk Ís­land fyrir upp­lýsandi kosninga­bar­áttu!

Tómas Ellert Tómasson skrifar

Baráttan um Bessastaði hefur verið mjög upplýsandi fyrir mig og aðra þá íslendinga sem aðhyllast lýðræði og að Ísland sé friðsælt starfandi lýðræðisríki í orðum og gjörðum. En nú er vá fyrir dyrum. Í framboði til forseta Íslands er fyrrv. forsætisráðherra sem misnotað hefur og dregið hefur fólk að ósekju fyrir Landsdóm auk þess að beita sér fyrir vopnakaupum til aðila í stríðsátökum. Fyrrv. forsætisráðherra er helst talið það til tekna af sínum stuðningsmönnum að hafa yfirburða þekkingu á opinberri stjórnsýslu umfram aðra frambjóðendur og að geta leitt ólíka hópa saman til lausnar á málum auk þess að kunna nokkur töfrabrögð. Ég véfengi það ekkert sérstaklega.

Eru þessir eiginleikar sem að fyrrv. forsætisráðherra eru taldir til tekna af sínum stuðningsmönnum það sem mestu máli skiptir að Forseti Íslands þurfi að hafa til að valda embættinu?

Stutta svarið við spurningunni er NEI. Helstu verkefni Forsetans eru að heimsækja þjóðina og bjóða henni á Bessastaði auk þess að styðja við og liðsinna ýmiskonar félagasamtökum og fyrirtækjum sem talin eru gagnleg þjóðinni og að vinna að landkynningu oftast í samráði við Utanríkisþjónustuna auk þess að flytja ræður sem ná eyrum margra s.s. nýársávarp og við þingsetningu. Nánar um helstu verkefni forseta Íslands má sjá hér

Það er ekki á verkefnalista forseta að taka þátt í kappræðum, hvorki á vegum íslenskra fjölmiðla eða menntaskóla. Hvað varðar þann víðfræga málskotsrétt sem mikið er til umfjöllunar samhliða þessum kosningum að þá treysti ég öllum þeim ellefu forsetaframbjóðendum betur til þess en fyrrv. forsætisráðherra til að beita honum með skynsamlegum hætti.

Ég gerði þau mistök að fetta fingur út í stuðning þekkts verkalýðsleiðtoga við framboð fyrrv. forsætisráðherra. Ég gerði einnig þau mistök að fetta fingur út í verklag einstaka hörundsárra og hortuga fjölmiðlamenn og þann part af Sjálfstæðisflokknum sáluga sem er slétt sama um þó fyrrverandi forystumaður flokksins hafi verið dreginn fyrir Landsdóm af fyrrv. forsætisráðherra að ósekju. Það hefði ég ekki átt að gera ásamt hundruðum annarra lýðræðiselskandi íslendingum og biðst afsökunar á þessum gjörningum mínum.

Leyfum þeim sem aðhyllast ráðstjórn og valdboð auk undirlægja valdhafa að flykkjast óáreitt fram til stuðnings við framboð fyrrv. forsætisráðherra. Þannig fáum best séð nöfn þeirra og andlit. Og takk fyrir að upplýsa mig kæru stuðningsmenn fyrrv. forsætisráðherra um það hverjir þið eruð.

Höfundur er byggingarverkfræðingur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×