Innlent

Vís­bending um að flutninga­­skip hafi hvolft bátnum

Jón Ísak Ragnarsson og Margrét Björk Jónsdóttir skrifa
Eins og sést á stefni flutningaskipsins eru skemmdir sem benda til áreksturs við fiskibátinn.
Eins og sést á stefni flutningaskipsins eru skemmdir sem benda til áreksturs við fiskibátinn. Óskar P. friðriksson

Lögreglan rannsakar hvort erlent flutningaskip tengist því að að strandveiðibát hvolfdi norðvestur af Garðskaga í nótt. Manni var bjargað úr sjónum en litlu mátti muna að illa færi. Skemmdir á stefni flutningaskipsins benda til áreksturs.

Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafi fengið neyðarkall frá strandveiðibáti á þriðja tímanum í nótt, þar sem fram kom að annar bátur væri að sökkva í nágrenninu. 

Landhelgisgæslan hafi þá kallað út þyrlusveit ásamt sjóbjörgunarsveitum Landsbjargar á Suðurnesjunum, og fiskiskip á svæðinu hafi einnig verið kölluð til, eins og venjan er í svona málum.

Báturinn var hálfur á kafi þegar björgunarmenn báru að garðiÁhöfnin á Hannesi Þ. Hafstein

Skömmu seinna barst svo tilkynning frá sama báti að maðurinn væri kominn um borð til þeirra. Hann hefði náð að bjarga honum um borð í sitt strandveiðiskip.

„Maðurinn var kaldur, en ómeiddur að öðru leyti. Það var tekin sú ákvörðun að sigla með hann til Sandgerðis og þaðan var hann fluttur  til aðhlynningar,“ segir Ásgeir.

Flutningaskip hafi mögulega hvolft bátnum

Hann segir að þegar ferill strandveiðibátsins hafi verið skoðaður og borinn saman við ferðir annarra skipa á svæðinu, hafi komið í ljós að erlent flutningaskip hafi verið á siglingu á sama stað á sama tíma. 

Skemmdir á hlið bátsins benda til þess að árekstur hafi orðið við stóra flutningaskipið.Vísir/Margrét Björk

„Við tókum þá ákvörðun að beina flutningaskipinu til hafnar í Vestmannaeyjum þar sem að skýrsla verður tekin af skipstjóranum. Það er að segja við erum að skoða það hvort að flutningaskipið tengist því á einhvern hátt að bátnum hvolfdi.“ Rannsóknin sé í höndum lögreglunnar en fulltrúar frá Landhelgisgæslunni, Samgöngustofu og Rannsóknarnefnd samgönguslysa séu einnig á leið til Eyja.

Hér má sjá stærðina á flutningaskipinu þar sem það lá við höfn í Vestmannaeyjum í hádeginu.Óskar P. Friðriksson

Er þá grunur um að skipið hafi rekist á bátinn?

„Það er eitt af því sem þarf að skoða í rannsókninni. Það er bara eitthvað sem rannsóknin þarf að leiða í ljós.“

Hann segir að litlu hefði mátt muna að illa færi. Það hefði verið fyrir snarræði skipstjórans á hinum strandveiðibátnum sem tókst að bjarga manninum hratt og vel, að ekki hefði farið verr. 

Fréttin var uppfærð klukkan 13:28 með myndum frá Vestmannaeyjum, Fiskifréttir greindu fyrst frá skemmdum á flutningaskipinu.


Tengdar fréttir

Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk

Manni var bjargað á þriðja tímanum í nótt þegar strandveiðibátur sökk norðvestur af Garðskaga. Viðbragðsaðilar voru kallaðir út vegna málsins en það var skipstjóri annars strandveiðibáts sem bjargaði manninum úr sjónum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×