Innlent

Skikkar lög­reglu til að rann­saka stjórn að­vent­ista

Jakob Bjarnar skrifar
Gavin Anthony og tveir aðrir stjórnarmiðlimir í KSDA hafa nú verið kærðir fyrir auðgunarbrot til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra.
Gavin Anthony og tveir aðrir stjórnarmiðlimir í KSDA hafa nú verið kærðir fyrir auðgunarbrot til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra. vísir/vilhelm

Ómar Torfason, meðlimur í Kirkju sjöunda dags aðventista, hefur kært stjórn kirkjunnar, þau Gavin Anthony, Jedel Oriel Ditta og Þóru Sigríði Jónsdóttur fyrir auðgunarbrot.

Kærunni beindi kærandi til efnhagsbrotadeildar Ríkislögreglustjórans, en Ríkislögreglustjóri beindi kærunni til Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu sem vísaði kærunni frá með bréfi dagsettu 29. janúar 2024. Ómar áfrýjaði þeim úrskurði til ríkissaksóknara og hann hefur nú skikkað lögregluna til að taka upp eða hefja rannsókn á málinu.

„Ríkissaksóknari telur að ekki verið hjá því komist að mæla fyrir um rannsókn á kærunni til að leiða í ljós réttmæti hennar og hvort refsilagabrot hafi verið framin af kærðu,“ segir í bréfi sem Jón H. B. Snorrason undirritar. En Vísir hefur gögn málsins í fórum sínum.

Tengist námuvinnslu og viðskiptum við Heidelberg

Málið er flókið og tengist stórkarlalegum fyrirætlunum Heidelberg Sement og námuvinnslu í landi aðventista. Stjórn kirkjunnar hefur haldið spilunum þétt að sér og samið við undirverktaka, Eden Mining, til að annast efnissölu til Heidelberg. 

Undir eru hvorki meira né minna en mikilvægir þættir fyrirhugaðar framkvæmda Heidelberg Materials sem kosið verður um þann 1. júní næstkomandi. Þetta hefur leitt til afgerandi ágreinings innan trúfélagsins. Þetta gengur í berhögg við yfirlýst markmið safnaðarins.

Kæra Ómars beinist að þremenningunum og tengist í raun ásökunum um valdarán innan KSD. Kjör á nýrri samtakastjórn átti að fara fram á aðalfundi trúfélagsins árið 2022 í samræmi við ákvæði samþykkta kirkjunnar. Á 41. aðalfundi KSDA, sem fram fór 22. -25. september 2022 var ákveðið að vísa „námumálinu“ til sérstakrar rannsóknarnefndar á vegum Stór-Evrópudeildar þeirrar sem KSDA heyrir undir. Það hefur hins vegar dregist von úr viti og ekki hefur verið boðað til aðalfundar síðan þetta var.

Engin úrræði önnur en kæra

„Allt frá þeim tíma hefur fráfarandi samtakastjórn KSDA setið sem fastast við stjórnvölinn þrátt fyrir umboðsleysi og hávær áköll safnaðarmeðlima um boðun framhaldsfundar og kosningu nýrrar stjórnar. Á þessu rúma umboðslausa ári hafa hinir kærðu fráfarandi stjórnarmeðlimir KSDA greitt sér út laun og undirritað víðtækar fjárskuldbindingar í nafni kirkjunnar,“ svo vitnað sé beint í kæru Ómars.

Með sjálftöku launa og fjárhagslegara skuldbindinga telur Ómar að þremenningarnir hafi gerst sek um auðgunarbrot og skaðað KSDA. Í bréfi sem Kristinn Hallgrímsson hæstaréttarlögmaður ritar fyrir hönd Ómars segir meðal annars að hann telji óumdeilt að fráfarandi stjórnarmeðlimir KSDA hafi tekið sér „einræðisvald yfir málefnum og fjárreiðum kirkjunnar án tilskilins umboðs og hafi safnaðarmeðlimir engin úrræði í höndum sér önnur en kæra háttsemina til embættisins.“


Tengdar fréttir

Segir seinlæti First Water stórfurðulegt

Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins og talsmaður Heidelberg Cement, furðar sig mjög á yfirlýsingu Eggerts Þórs Kristóferssonar forstjóra First Water hf um að starfsemi á landeldi og mölunarverksmiðjunnar geti ekki farið saman.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×