Lífið

Gerða og glæsi­legar gellur á Edition

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Vörumerkið In Shape fær framhaldslíf á nýrri vefsíðu Gerðu.
Vörumerkið In Shape fær framhaldslíf á nýrri vefsíðu Gerðu.

Íþróttafrömuðurinn Gerður Jónsdóttir, þekkt sem Gerða-In Shape eða Jane Fonda Íslands, bauð sannkölluðum ofurskvísum í partý á hótelinu Reykjavík Edition síðastliðið miðvikudagskvöld í tilefni opnun vefsíðunnar In shape.

In shape námskeiðin sem Gerða kenndi í World Class nutu gríðarlegra vinsælda síðastliðin ár, þá sérstaklega hjá samfélagsmiðlastjörnum landsins. Gerða byggði upp stórt samfélag kvenna sem í dag styðja hver aðra og hvetja áfram með því sameiginlega markmiði að hlúa að líkama og sál.

Síðastliðið haust ákvað Gerða að breyta til og segja skilið við þjálfunina vegna aðgerðar sem hún þurfti að gangast undir eftir meðgöngur. Hún segir það hafi verið erfiða ákvörðun að stíga til hliðar.

„Ég er búin að vera í löngu bataferli eftir kviðaðgerð sem ég fór í síðastliðinn desember og hef því þurft að einblína á aðrar hliðar tengdar heilsu en bara æfingar. Það hefur verið dásamleg gjöf að fá að bremsa sig aðeins af, slaka á og endurskoða lífið. Ég fór til dæmis að kynna mér betur endurhæfingu, hormónakerfi kvenna, mataræði og svefn sem skiptir okkur svo gríðarlegu máli og er mikilvæg forsenda heilsu og vellíðunar, þannig hlöðum við batteríin,“ segir Gerða í samtali við Vísi.

Gerða Jónsdóttir eigandi In Shape.Elísabet Blöndal

Alhliða heilsa kvenna í aðalhlutverki

Að sögn Gerður er stefna INSHAPE vörumerkisins á alhliða heilsu.

„Síðan var opnuð með tónheilun í boði Völu Gestsdóttur og í leiðinni kynnt nýja inshape varan sem er silki svefngríma. Ég fékk þá hugmynd um að nota vinkonur mínar sem módel fyrir síðuna sem sýnir fram á það að Inshape er ekki bara ég heldur samfélag kvenna sem styðja og styrkja hvor aðra með það að markmiði að hlúa að líkama og sál,“ segir Gerða í samtali við Vísi.

Gestir viðburðarins voru vinkonur Gerðu og fastagestir INSHAPE tímanna. Má þar nefna þær Andreu Magnúsdóttur, Elísabet Gunnarsdóttur, Pöttra Sriyanonge, Heiði Ósk Eggertsdóttur og Tinnu Aðalbjörnsdóttur.

Elísabet Blöndal var með myndavélina á lofti og myndaði stemninguna á viðburðinum.

Tinna, Andrea, Heiður Ósk og Manuela Ósk fremstar í flokki.Elísabet Blöndal
Kristjana Steingrímsdóttir, eða Jana, heilsukokkur lét sig ekki vanta.Elísabet Blöndal
Ingunn Sigurðardóttir.Elísabet Blöndal
Vefsíðan var opnuð með tónheilun í boði Völu Gestsdóttur.Elísabet Blöndal
Sóley Kristjánsdóttir.Elísabet Blöndal
Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Pattra Sriyanonge voru hressar.Elísabet Blöndal
Tinna Aðalbjörns, Urður og Helga.Elísabet Blöndal
Á boðstólnum voru óáfengir drykkir með Tanqueray 0,0% gini.Elísabet Blöndal
Kolbrún Anna Vignisdóttir.Elísabet Blöndal
Manuela glæsileg.Elísabet Blöndal
Arnbjörg Baldvinsdóttir.Elísabet Blöndal
Ingibjörg Finnbogadóttir.Elísabet Blöndal
Ástrós Traustadóttir faðmar hér Gerðu innilega.Elísabet Blöndal
Anna Magnúsdóttir og Alexandra Friðfinnsdóttir.Elísabet Blöndal
Karitas María og Elísabet Gunnars.Elísabet Blöndal
Andrea og Heiður Ósk.Elísabet Blöndal
Gerða fékk vinkonurnar sínar til að sitja fyrir á myndunum á heimasíðunni sem prýða nýju síðuna.Elísabet Blöndal
Sylvía Rut, Heiður Ósk og Manuela.Elísabet Blöndal
Hjördís Perla, Pattra og Erna Viktoría.Elísabet Blöndal

Tengdar fréttir

Hjarðhegðun Íslendinga

Hjarðhegðun Íslendinga endurspeglar smæð samfélagsins og hræðsluna við það að vera utangátta. Eða hvað? Hvers vegna er landinn á einu auga bragði klæddur í samskonar skó, ferðast til sömu áfangastaðanna og kaupir eins húsgögn? 

„Ég geng frá þessu tímabili með stærsta hjartað og bestu minningarnar“

Íþróttafrömuðurinn Gerður Jónsdóttir, þekkt sem Gerða-In Shape eða Jane Fonda Íslands, kenndi síðasta tímann á námskeiðinu, In Shape, í World Class í dag. Hún segist ekki geta lýst þakklæti sínu til þeirra kvenna sem hún hefur myndað dýrmæt vináttutengsl við í gegnum árin. 

Heitustu trendin fyrir 2024

Nýtt ár er gengið í garð og með nýju ári koma hinar ýmsu tískubylgjur fram á margvíslegum sviðum. Lífið á Vísi fékk til sín fjölbreyttan hóp álitsgjafa úr ólíkum áttum til að spá fyrir um heitustu trendin fyrir 2024. 

„Ég fer afar þakklát inn í óvissuna með dass af kvíða“

Íþróttafrömuðurinn Gerður, þekkt sem Gerða-In Shape eða Jane Fonda Íslands, hefur ákveðið að hætta þjálfun á námskeiðinu, In Shape, í Worlds Class í nóvember. Námskeiðin hafa notið gríðarlegra vinsælda síðastliðin ár, sérstaklega hjá samfélagsmiðlastjörnum landsins.

Missti tvær systur sínar og lifir nú einn dag í einu

„Það er ekki gangur lífsins fyrir foreldra að missa barn og hvað þá tvö. Þetta er ótrúlega erfið lífsreynsla og að sama skapi að horfa á foreldra sína syrgja svona,“ segir íþróttafrömuðurinn Gerður Jónsdóttir í viðtali í Einkalífinu. 

Magnaðar mæður

Birtingarmynd móðurhlutverksins er fjölbreytt og flókin. Þar má nefna nýbakaðar mæður  margra barna mæður, stjúpmæður, einstæðar mæður og verðandi mæður, svo fátt eitt sé nefnt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×