Innlent

Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög við­kvæmu stigi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lýst var eftir þjófunum tveimur þann 26. mars síðastliðinn. Þeir eru enn ófundnir.
Lýst var eftir þjófunum tveimur þann 26. mars síðastliðinn. Þeir eru enn ófundnir. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögregla heldur spilunum afar þétt að sér við rannsókn á þjófnaði á tuttugu til þrjátíu milljónum króna í Hamraborginni fyrir rúmum fimm vikum. Samkvæmt heimildum fréttastofu er grunur um að reynt hafi verið að koma lituðum peningum í umferð.

Það var mánudaginn 25. mars sem tveir grímuklæddir karlmenn bökkuðu bíl sínum upp að litlum sendiferðabíl Öryggismiðstöðvarinnar sem stóð fyrir utan veitingastaðinn Catalinu í Hamraborg í Kópavogi. Í skotti sendiferðabílsins voru sjö peningatöskur; Fimm tómar en tvær með tuttugu til þrjátíu milljónir króna úr spilakössum Videomarkaðarins handan götunnar.

Samkvæmt heimildum fréttastofu fannst önnur peningataskan tóm á víðavangi í Mosfellsbæ og voru vísbendingar um að litasprengja hefði sprungið í töskunni. Fyrir vikið ættu peningaseðlar úr þeirri tösku að vera með bláum lit.

Um er að ræða alls konar notaða peninga seðla, allt frá fimm hundruð krónum og upp úr. Engir slíkir seðlar með bláum lita höfðu sést þegar fréttastofa ræddi við Aðalstein Örn Aðalsteinsson rannsóknarlögreglumann fyrir tæpum tveimur vikum.

„Við erum þá að tala um litaða peninga sem eru bláir að lit. Það er rétt að vekja athygli á því ef einhverjir slíkir peningar færu í umferð, að láta lögreglu vita,“ sagði Aðalsteinn þann 18. apríl. Síðan þá virðist hafa dregið til tíðinda.

Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur lögregla fengið ábendingar um litaða peningaseðla í umferð. Meðal annars á stöðum sem reka spilakassa. 

Aðalsteinn Örn segir rannsókn málsins á mjög viðkvæmum stað.

„Lögregla gefur á þessari stundu engar yfirlýsingar. Við getum ekki tjáð okkur um þetta mál eins og staðan er núna,“ segir Aðalsteinn Örn.


Tengdar fréttir

Þjófnaðurinn áfall fyrir reynslumikla öryggisverði

Sjö mínútur liðu frá því þjófarnir í Hamraborg brunuðu í burtu með sjö peningatöskur og þar til upp komst um þjófnaðinn. Þjófavarnakerfi í bíl Öryggismiðstöðvarinnar fór ekki í gang og engin melding barst fyrirtækinu um þjófnaðinn. Það var ekki fyrr en öryggisverðirnir komu að bílnum að upp komst um glæpinn. Þeir eru reynslumiklir og í áfalli að sögn framkvæmdastjóra.

Þjófunum yfir­sást taska með milljónum króna

Þjófarnir í Hamraborgarmálinu tóku ekki eftir poka sem innihélt milljónir króna í peningaflutningabílnum sem þeir stálu úr. Öryggismiðstöðin hefur ekki viljað tjá sig um málið.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×