Skoðun

Samt kýs ég Katrínu

Jökull Sólberg Auðunsson skrifar

Í fjölflokka kerfi með allt að fimm flokka stjórnum blasir við að enginn einn flokkur getur gert sér miklar væntingar um óslitna sigurgöngu í öllum málaflokkum. Eins og nú standa sakir mun það sérstaklega eiga við um þá flokka sem reka stefnu gegn þeirri sem ríkir í Fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Í gegnum síðustu tvær ríkisstjórnir hefur nálgun Katrínar Jakobsdóttur verið að slá af eigin kröfum, stilla strengi bak við tjöldin, og vera ósérhlífin — allt til að gefa nýrri tegund stjórnmála á Íslands tækifæri til að ganga fram. Sjálf talaði hún á sínum tíma um „pólitíska nýsköpun“ og vísaði þar í farsælt og náið samstarf ólíkra stjórnmálaafla. Sýnin var göfug og markmiðið stórt. Frumkvöðlar eins og ég þekkja það hins vegar vel að nýsköpun fylgir áhætta og hugmyndirnar verða ekki alltaf að veruleika.

Á Alþingi hafa Sjálfstæðismenn haldið fast um tauma í gegnum Dóms- og Fjármála- og efnahagsráðuneyti. Á bak við XD er auðvaldið; sterkasta aflið í íslensku samfélagi. Það var eftir á að hyggja barnalegt að halda að þau öfl gætu spilað samkvæmt einhverjum innri reglum þessa ríkisstjórnarsamstarfs og lært að gefa eftir. Engir stórir sigrar VG standa upp úr nema kannski lögfesting um samdrátt í losun, en markmiðin um minni losun hafa aldrei staðist.

Þegar öllu er á botninn hvolft er Katrín samt lang efnilegasta forsetaefnið í þessum kosningum. Hún hefur mesta reynslu, öflugustu tengslin og víðtæka þekkingu af íslenskri stjórnsýslu. Hún nær íslenskri þjóð vel og aðhyllist ekki þjóðernislega sérstöðuhyggju sem einkennir oft forsetaembættið. Hún mun blómstra í nýju embætti, laus við að helga sig því ómögulega verkefni sem ríkisstjórnarsamstarfið er orðið. Það gerir hana ekki að síðri frambjóðanda í mínum huga heldur reynsluríkum leiðtoga sem ég er spenntur að sjá takast á við nýtt hlutverk. Seiglan, auðmýktin og sameiningin sem var dýrmæt í heimsfaraldri og Grindavíkureldunum—en gekk á köflum of langt í ríkisstjórnarsamstarfinu—mun reynast mikill styrkur fyrir forsetaembættið. Ég treysti Katrínu Jakobsdóttur og kýs hana í komandi forsetakosningum.

Höfundur er forritari



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×