Íslenski boltinn

„Sá að þeim leið aldrei illa“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Valskonur fagna hér einu af þremur mörkum sínum í sigurleiknum á móti Tindastól.
Valskonur fagna hér einu af þremur mörkum sínum í sigurleiknum á móti Tindastól. Vísir/Anton Brink

Bestu mörkin ræddu þann ávana Íslandsmeistaranna af Hlíðarenda að lenda alltaf undir í sínum leikjum. Það hefur þó ekki komið að sök, að minnsta kosti ekki hingað til.

Valskonur byrja titilvörnina vel stigalega enda með fullt hús eftir fimm leiki. Það hefur aftur á móti verið smá ströggl á liðinu í leikjum og oftar en ekki hefur liðið lent undir snemma leiks.

Það gerðist nú þriðju umferðina í röð í leiknum á móti Tindastól í fimmtu umferð Bestu deildarinnar en í öll þrjú skiptin þá komu Valskonur öflugar til baka. Að þessu sinni unnu þær leikinn 3-1.

„Það hefði verið gaman að sjá Stólana ná kannski tveimur mörkum inn og sjá hvernig Valur myndi bregðast við því. Valsstelpum finnst ekkert óþægilegt að fá á sig mark,“ sagði Helena Ólafsdóttir, umsjónarkona Bestu markanna.

Klippa: Bestu mörkin: Valskonur lenda aftur og aftur 1-0 undir

Valsliðið lenti 1-0 undir á móti Víkingi, Keflavík og Tindastól en svaraði með sjö mörkum á móti Víkingi, tveimur mörkum á móti Keflavík og þremur mörkum á móti Tindastól.

„Ég ætla ekki að fara segja það hérna, eins og algjör Valsari, að það sé styrkleikamerki að fá á sig mark. En eins og Fanndís segir; að þurfa að fá á sig mark og vinna út úr því,“ sagði Mist Edvarsdóttir, sérfræðingur Bestu markanna, um þessa þróun mála hjá Valsliðinu.

„Það var ekkert panikk eða neitt svoleiðis. Þetta er bara orðin svona vél sem þarf að fá að malla í gang. Mér fannst það líka í síðasta leik á móti Keflavík þegar þær fá líka á sig mark,“ sagði Mist.

„Það var týpískur Valsleikur í Keflavík, bara svona hark og grind. Í þessum leik þá fannst manni vera pínu hökt á þeim áfram, áframhaldandi hökt inn í leikinn,“ sagði Mist en Valsliðið vann sig inn í leikinn og skoraði þrjú mörk.

„Þegar líður á, þegar þær ná að komast í boltann og ná upp spilinu. Maður sá að þeim leið aldrei illa. Þær þurftu að finna taktinn aðeins og finna hverja aðra í fætur og þá fór þetta að ganga,“ sagði Mist. Það má sjá umfjöllunina hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×