Lífið

Horfir vonandi niður af himnum og sér börnin blómstra á bónda­bænum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Aníta og Sigfús eru bændur á Staffelli.
Aníta og Sigfús eru bændur á Staffelli.

Aníta Mjöll Ásgeirsdóttir og Sigfús Jörgen Oddsson eru yngstu bændur í fyrstu þáttaröðinni af Sveitarómantík á Stöð 2 en í öðrum þætti fengu áhorfendur að skyggnast inn í líf þeirra á bænum Staffelli Austurlandi.

Sigfús á ættir sínar að rekja til bæjarins til fyrsta manntals en Aníta er borgarstelpa sem elti ástina austur á land.

Þau tóku við bænum eftir að faðir Sigfúsar varð bráðkvaddur en bæði þurfa þau að vinna önnur störf samhliða til að ná endum saman. Oddur féll frá í apríl árið 2013 þegar Sigfús var sautján ára.

„Þetta var bara mjög óvænt, hann varð bara bráðkvaddur heima. Hann var aldrei að kvarta yfir hlutunum. Hann var af þeirri kynslóð,“ segir Sigfús.

„Öll fjölskyldan er mjög dugleg að tala um hann og því fæ ég að upplifa hann í gegnum þau,“ segir Aníta sem var ekki komin til sögunnar þegar Oddur fellur frá.

„Þetta var hörkukall og frábær bóndi. Þeir bræður líta virkilega upp til hans.“

Hér að neðan má sjá brot úr síðasta þætti.

Klippa: Tóku við bænum eftir fráfallið





Fleiri fréttir

Sjá meira


×