Tónlist

Ríflega fimm þúsund kusu

Rúmlega fimm þúsund notendur Vísis tóku þátt í vali á vinsælasta tónlistarflytjandanum en kosningin fór fram hér á Vísi. Kosningunni lauk í kvöld og við tók síma- og SMS-kosning sem stendur fram að lokum hátíðar Íslensku tónlistarverðlaunanna sem fram fer í Þjóðleikhúsinu annað kvöld.

Tónlist

Lokahnykkurinn í vali á vinsælasta flytjandanum

Íslensku tónlistarverðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu annað kvöld. Þá verður vinsælasti flytjandinn að mati almennings kynntur en netkosning fór fram hér á Vísi. Kosningunni lauk í kvöld og tóku rúmlega 5.000 manns þátt. Við tók síma- og SMS-kosning milli þeirra sem lentu í fimm efstu sætunum í netkosningunni.

Tónlist

Raggi Bjarna á verðlaunahátíðinni

Árið 2004 var Ragnari Bjarnasyni gjöfult. Hann hélt uppá 70 ára afmæli sitt og gaf út plötu sem varð eins mesta selda plata síðustu ára. Um áramótin heiðraði svoForseti Íslands söngvarann farsæla með því að veita honum Fálkaorðuna

Tónlist

Veðbankinn opnaður

Landsbankinn, Icelandair og Vísir eru styrktaraðilar Íslensku tónlistarverðlaunanna sem verða afhent í Þjóðleikhúsinu 2. febrúar 2005. Þessi fyrirtæki standa nú fyrir þeirri nýjung að bjóða almenningi að giska á hver vinnur í hverjum flokki og eru vegleg verðlaun í boði fyrir þann sem nær flestum réttum. Einnig er hægt að taka þátt í kosningu á vinsælasta flytjanda íslands með netkosningu á visir.is og verða sérstök verðlaun veitt í þessum flokki á hátíðinni.

Tónlist

Stórviðburður í tónlistarlífinu

Á síðustu árum hefur umfang Íslensku tónlistarverðlaunanna aukist og eru þau nú glæsileg uppskeruhátíð alls tónlistarfólks í landinu. Í fyrra mældi Gallup áhorf á útsendingu Sjónvarpsins frá síðustu verðlaunahátíð og mældist samanlagt áhorf á útsendinguna 51 prósent. það er staðfesting á því að verðlaunin njóta virðingar ekki bara hjá tónlistarfólki heldur þjóðinni allri.

Tónlist

Styttist í tónlistarverðlaunin

Undirbúningur fyrir afhendingu Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir árið 2004 hefur staðið yfir frá því í haust. Verðlaunin verð afhent miðvikudaginn 2. febrúar í Þjóðleikhúsinu. Þetta verður í 11. skipti sem verðlaunin verða afhent og verður hátíðin sýnd í beinni útsendingu Sjónvarpsins.

Tónlist

Íslenskur tuddablús

Gítarleikarinn Smári Tarfur og söngvarinn Jenni úr Brain Police skipa hljómsveitina Hot Damn! Strákarnir spila rokkaðan blús og fyrsta lag þeirra hefur þegar fengið nokkra spilun. Lagið heitir hvorki meira né minna en Hot Damn That Woman is a Man.

Tónlist