Fótbolti

Jafn­tefli eftir ó­vænt brott­hvarf Óskars

Sindri Sverrisson skrifar
Hlynur Freyr Karlsson var í byrjunarliði Haugesund í dag, eftir stormasama viku hjá félaginu.
Hlynur Freyr Karlsson var í byrjunarliði Haugesund í dag, eftir stormasama viku hjá félaginu. Getty/Seb Daly

Haugesund gerði 2-2 jafntefli á útivelli gegn HamKam í Íslendingaslag í dag, í fyrsta leik sínum eftir að Óskar Hrafn Þorvaldsson ákvað óvænt að hætta sem þjálfari liðsins.

Aðstoðarþjálfararnir Sancheev Manoharan, Paul André Farstad og Kamil Rylka stýra Haugesund á meðan að forráðamenn félagsins finna arftaka Óskars. Þeir stilltu Hlyn Frey Karlssyni upp í byrjunarliði í dag en hann var tekinn af velli á 60. mínútu. Anton Logi Lúðvíksson kom svo inn á þegar tæpar tíu mínútur voru eftir. 

Hjá HamKam var Viðar Ari Jónsson í liðinu fram á 70. mínútu og Brynjar Ingi Bjarnason fékk að spila síðustu mínútur leiksins.

HamKam er næstneðst í deildinni með fjögur stig en Haugesund með sjö stig í 12. sæti.

Ævintýrið heldur áfram hjá Júlíusi og félögum

Júlíus Magnússon var í liði Fredrikstad og átti þátt í þriðja marki liðsins þegar það vann 4-1 útisigur á KFUM. Júlíus fór með Fredrikstad upp í fyrra og liðið hefur byrjað frábærlega í úrvalsdeildinni, og komst með sigrinum í dag upp í 2. sæti með 14 stig eftir sjö leiki. Bodö/Glimt er taplaust á toppnum með 19 stig.

Patrik hélt hreinu

Patrik Sigurður Gunnarsson hélt marki Viking hreinu í 1-0 sigri á Strömsgodset á útivelli. Logi Tómasson var í liði Strömsgodset fram á 72. mínútu. Með sigrinum komst Viking upp fyrir Strömsgodset og Rosenborg, og í 5. sæti með 12 stig.

Brynjólfur og Hilmir mættu meisturunum

Brynjólfur Darri Willumsson átti skot í þverslá en náði ekki að skora þegar Kristiansund tapaði á heimavelli gegn meisturum Bodö/Glimt, 4-2, fyrr í dag. Brynjólfur og og Hilmir Rafn Mikaelsson voru báðir í byrjunarliði Kristiansund en Hilmi var skipt af velli á 80. mínútu.

Kristiansund er með níu stig eftir sjö leiki, í 9. sæti af sextán liðum deildarinnar.


Tengdar fréttir

„Hrafninn svífur yfir Vesturbænum“

Það kom flestum í opna skjöldu í morgun er norska liðið Haugesund tilkynnti að Óskar Hrafn Þorvaldsson væri hættur sem þjálfari liðsins.

Óskar hafi sett stjórninni afarkosti

TV2 í Noregi segir ástæðu brottfarar Óskars Hrafns Þorvaldssonar frá Haugesund stafa af valdabaráttu milli hans og stjórnenda félagsins. Sú hafi leitt til þess að hann sagði upp.

Óskar Hrafn hættur hjá Haugesund

Óskar Hrafn Þorvaldsson er hættur sem þjálfari norska úrvalsdeildarfélagsins FK Haugesund. Frá þessu greinir félagið í yfirlýsingu nú í morgunsárið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×