Fótbolti

Sverrir Ingi hafði betur í Ís­lendinga­slagnum

Siggeir Ævarsson skrifar
Sverirr Ingi fagnar marki með Franculino Djú fyrr á tímabilinu
Sverirr Ingi fagnar marki með Franculino Djú fyrr á tímabilinu @fcmidtjylland

Sverrir Ingi Ingason og Mikael Anderson mættust í Íslendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni í dag en Sverrir og félagar í Midtjylland sóttu þrjú mikilvæg stig í toppbaráttunni.

Þeir Sverrir og Mikael léku báðir allan leikinn með sínum liðum, Sverrir á sínum stað í hjarta varnar Midtjylland og Mikael úti á vinstri vængnum hjá AGF.

Hinn kóreski Gue-sung Cho kom heimamönnnum yfir á 24. mínútu og lagði síðan upp mark skömmu seinna og dugðu þeir heimamönnum til sigurs en AGF minnkuðu muninn með hjálp VAR áður en fyrri hálfleikur var á enda.

Sigurinn þýðir að Midtjylland jafna FCK að stigum en næsti leikur liðanna gæti ráðið úrslitum í titilbaráttunni þegar FCK og Midtjylland mætast á fimmtudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×