Skoðun

Versta kerfi í heimi?

Sigurjón Þórðarson skrifar

SFS hélt á dögunum ársfund undir yfirskriftinni „Best í heimi”. Einn besti og vinsælasti forsætisráðherra heimsins, Bjarni Benediktsson, flutti ræðu þar sem hann fullyrti að íslenskur sjávarútvegur væri sá allra besti í heimi. Hann vitnaði þar til skýrslu eða áróðursplaggs sem unnin var á vegum flokksbróður hans Kristjáni Þór Júlíussyni og af hagfræðingnum Sveini Agnarssyni. Hagfræðistofnu HÍ hefur rekið nokkurs konar trúboðastarf í þágu kvótakerfisins þar sem Sveinn og félagar hans hafa ýtt öllum viðmiðum líffræðinnar og viðskiptafræðinnar, svo sem um frjálsa verðlagningu og heilbrigða samkeppni til hliðar. Hver delluskýrslan er gefin út á fætur annarri um sjávarútveginn. Fáar ef nokkur toppa þá skýrslu sem kom út árinu fyrir hrun þar sem Sveinn og félagar reiknuðu það út að í ljósi sterkrar stöðu þjóðarbúsins þá væri hagkvæmast að hætta þorskveiðum í eitt ár.

Það sem okkar ástsæli forsætisráðherra vitnaði sérstaklega til á fundi SFS voru fullyrðingar Sveins um meinta sérstöðu íslensk sjávarútvegs þar sem því er gert skóna að þeir sem stundi sjávarútveg annars staðar í heiminum en á Íslandi séu nánast beiningarmenn. Ég hef oftar en einu sinni óskað eftir gögnum og upplýsingum um á hvaða samanburði þessar stórkarlalegu fullyrðingar eru byggðar á, m.a. frá matvælaráðherra. Hingað til þá hefur verið fátt um svör þrátt fyrir ítrekaðan eftirrekstur.

Eftir stendur að engin gögn hafa verið lögð til grundvallar þessum frasakenndum fullyrðingum um meintan heimsklassa íslenskra útgerða.

Aftur að kvótakerfinu sem býr svo vel að eiga heilaþvegna varðliða í forystu Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks þó svo almennir flokksmenn umræddra flokka leyfi sér enn að efast um ágæti þess.

Hvernig sem á það er litið þá hefur kerfið algerlega brugðist. Það er í raun stórundarlegt að Sigurður Ingi og Bjarni Ben opni ekki augun fyrir þeim staðreyndum sem skýr og glæný fyrirspurn lögblinda þingmannsins Ingu Sælands afhjúpaði, þ.e. að kvótakerfið sem átti að skila meiri afla á land hefur valdið gríðarlegu tjóni.

Á engu fimm ára samfelldu tímabili, eftir kvótasetningu, hefur þorskaflinn slagað upp í þær aflatölur sem þekktust fyrir tilvist þess. Best hefur þorskaflinn náð í liðlega 62% af aflanum fyrir kvótasetningu en versta 5 ára tímabilið skilaði aðeins um 39% af þeim þorskaafla sem kom á land árin fyrir kvótasetningu. Það er rétt að taka það fram að auðvelt væri að taka tímabil þar sem þessi munur væri miklum mun meiri.

Það að tala um einhvern árangur eða hvað þá heimsmet í sjávarútvegi er alger dauðans della.

Höfundur er varaþingmaður Flokks fólksins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×