Lífið

Þátt­taka Ísraela hafi skemmt mikið

Bjarki Sigurðsson skrifar
Rúnar Freyr Gíslason er fararstjóri íslenska hópsins í Eurovision og framkvæmdastjóri Söngvakeppni sjónvarpsins.
Rúnar Freyr Gíslason er fararstjóri íslenska hópsins í Eurovision og framkvæmdastjóri Söngvakeppni sjónvarpsins. Vísir/Daníel

Einni umdeildustu Eurovision-keppni sögunnar lauk um helgina. Fararstjóri íslenska hópsins segir augljóst að þátttaka Ísraelsmanna hafi haft neikvæð áhrif á keppnina.

Svisslendingar unnu keppnina í þriðja sinn með laginu The Code í flutningi Nemo. Hera Björk fulltrúi Íslands lenti í síðasta sæti með einungis þrjú stig á undankvöldinu.

Rúnar Freyr Gíslason, fararstjóri íslenska hópsins, segist stoltur af Heru en telur að mögulega hafi nýlegt fyrirkomulag við stigagjöf á undankvöldunum haft áhrif en einungis símakosning gildir þar.

„Smáþjóðir eins og við hafa verið að velta því fyrir sér, og margir aðrir, hvort að þetta fyrirkomulag henti fámennari þjóðum verr. Við sjáum í ár að Slóvenía, Albanía, Malta, San Marínó og Ísland detta öll út í undanúrslitunum. Engar fagnefndir sem hífa okkur upp,“ segir Rúnar.

Keppnin í ár var afar umdeild, sérstaklega vegna þátttöku Ísraela. Þá var hollenska söngvaranum vísað úr keppni fyrir að ógna ljósmyndara. Rúnar segir það augljóst að þátttaka Ísraela hafi haft neikvæð áhrif á keppnina.

„Keppnin verður ekki þessi sameiningarvettvangur sem hún á að vera, í staðinn fyrir að að stuðla að friði og fjölbreytileika fer hún að snúast um allt annað. Ég er óhress með það og þeirra vera í þessari keppni skemmdi að miklu leyti mikið til,“ segir Rúnar.

Hann gerir ráð fyrir að Ísland taki aftur þátt á næsta ári en það er ekki meitlað í stein.

„Mér heyrist út um alla Evrópu að það séu óánægjuraddir og gagnrýnisraddir. Það sé jafnvel verið að huga að breytingum. En þetta er allt í orði en ekki á borði,“ segir Rúnar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×