Sport

Fury eldri blóðugur í að­­draganda sögu­legs bar­daga

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
John Fury elskar athygli.
John Fury elskar athygli. Getty Images/@MichaelBensonn

John Fury, faðir hnefaleikakappans Tyson Fury, stal senunni í aðdraganda sögulegs hnefaleikabardaga Tyson og Oleksandr Usyk frá Úkraínu á laugardaginn kemur. 

Bardaginn er sögulegur fyrir þær sakir að í fyrsta skipti verður keppt um öll fjögur beltin - WBC, WBA, IBF  og WBO - í þungavigtinni. Þá er ljóst að báðir fara heim með sand af seðlum en ekki hefur verið staðfest hversu háar upphæðir eru í spilinu. Fury hafði þó lagt hanskana á hilluan og gaf opinberlega út að hann myndi ekki keppa aftur nema fyrir dágóða summu.

Bardaginn fer fram í Riyadh í Sádi-Arabíu á laugardaginn en fram að því þurfa báðir að mæta í fjölda viðtala og svo vigtun skömmu fyrir helgi. Í dag, mánudag, voru kapparnir í viðtölum þegar allt fór fjandans til. Ekki á milli Usyk og Tyson heldur á milli Fury eldri, John, og eins úr starfsliði Usyk. 

Í frétt Sky Sports segir að Fury eldri hafi skallað undirmann Usyk með þeim afleiðingum að það blæddi úr enni Fury eldri. Tyson sá ekki hvað gerðist og segist ekki vera í Sádi-Arabíu til að standa í rugli sem þessu.

„Ég sá ekki neitt. Ég var í viðtali og ég er ekki hér fyrir þetta. Ég er hér til að klára dæmið og fara svo heim að hvíla mig.“ 

Í frétt Sky Sports segir einnig að yfirvöld í Sádi-Arabíu hafi staðfest að engin kæra hafi verið lögð fram og málinu sé lokið af þeirra hálfu. Fury eldri er ekki á sama máli og sagði það hreintút við Sky Sports. Hann sagði að starfslið mótherjans hefði sýnt syni hans - besta þungavigtar hnefaleikakappa sem íþróttin hefur séð – vanvirðingu.

„Þeir mættu með allt þetta kjaftæði beint í andlitið á mér, voru að reyna vera sniðugir. Komu inn í mitt persónulega rými, ég var ekki að gera þeim neitt heldur eingöngu að syngja nafn sonar míns. Þeir komu nær og nær, ég er stríðsmaður og þetta er það sem við gerum. Ef þú kemur inn í mitt persónulega rými þá færðu það sem þú átt skilið.“

„Þetta snýst ekki um bardagann, við höfum gert allt sem við getum. Tyson er á góðum stað. Þú sérð á laugardaginn að hann er sá besti frá upphafi. Ef þú sýnir okkur vanvirðingu þá tölum við hvorki né öskrum heldur …,“ sagði Fury eldri og smellti krepptum hnefanum í lúkuna á hinni hendinni.

Alex Krassyuk, sem sér um fjölmiðlamál fyrir Usyk, sagði að hann væri til í afsökunarbeiðni frá Fury eldri en ef marka má viðtalið hér að neðan er hún ekki á leiðinni.

Bardaginn fer fram á laugardag, þann 18. maí, og er sögulegur þar sem fjögur belti eru í boði. Hver veit nema nokkuð sögulegt gerist einngi í aðdraganda hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×