Körfubolti

Oddaleikur Vals og Njarð­víkur: Frákastakóngar liðanna skila mestu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dwayne Lautier-Ogunleye hefur skorað 22,0 stig í leik í einvíginu og er sá eini með yfir tuttugu stig að meðaltali í leik. Hér reynir Kristófer Acox að verja skot frá honum.
Dwayne Lautier-Ogunleye hefur skorað 22,0 stig í leik í einvíginu og er sá eini með yfir tuttugu stig að meðaltali í leik. Hér reynir Kristófer Acox að verja skot frá honum. Vísir/Hulda Margrét

Valur og Njarðvík spila í kvöld hreinan úrslitaleik um sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Subway deild karla í körfubolta.

Liðin hafa bæði unnið á heimavelli og útivelli í þessu einvígi og spennan hefur verið mikil í síðustu leikjum. Aðeins hefur unnið fjórum stigum samanlagt í undanförnum tveimur leikjum, Val vann leik þrjú með einu stigi og Njarðvík vann leik fjögur með þremur stigum.

Leikurinn hefst klukkan 20.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Valsmenn eru að spila kanalausir í einvíginu og þurfa því að treysta enn meira á varnarleik sinn. Í sigurleikjunum tveimur hefur liðið haldið Njarðvíkingum undir sjötíu stigum. Njarðvíkingar hafa aftur á móti skorað 98,0 stig að meðaltali í leik í sigurleikjum sínum.

Njarðvíkingar búa að því að hafa unnið á Hlíðarenda í þessu einvígi en það var einmitt stærsti sigur rimmunnar, 21 stigs sigur í fyrsta leiknum.

Hér fyrir neðan er stutt yfirlit yfir tölfræði þeirra leikmanna í einvíginu sem hafa skilað hæstu framlagi til sinna liða.

Frákastakóngarnir Dominykas Milka hjá Njarðvík og Kristófer Acox hjá Val eru í efstu sætunum en báðir eru þeir með yfir 12 stig og 14 fráköst að meðaltali í leik.

Langstigahæsti leikmaður einvígisins, Dwayne Lautier-Ogunleye, hefur skorað 22,0 stig í leik en hann hefur fiskað ellefu fleiri villur en næsti maður (34) og tekið tíu fleiri víti en sá næsti (34).

Valsmaðurinn Kristinn Pálsson er bæði með flestar þriggja stiga körfur og bestu þriggja stiga nýtingu leikmanna í einvíginu.

  • Efstu menn í ákveðnum tölfræðiþáttum:
  • Stig í leik: Dwayne Lautier-Ogunleye, Njarðvík (22,0)
  • Fráköst í leik: Kristófer Acox, Val (14,5)
  • Stoðsendingar í leik: Chaz Williams, Njarðvík (7,0)
  • Skotnýting: Dominykas Milka, Njarðvík (55%)
  • Þristar: Kristinn Pálsson, Val (13)
  • Þriggja stiga skotnýting: Kristinn Pálsson, Val (46%)
  • Víti fengin: Dwayne Lautier-Ogunleye, Njarðvík (34)
  • Vítanýting: Veigar Páll Alexandersson, Njarðvík (100%)
  • Stolnir boltar: Dwayne Lautier-Ogunleye og Chaz Williams, Njarðvík (9)
  • Varin skot: Taiwo Badmus, Val (7)
  • Fiskaðar villur: Dwayne Lautier-Ogunleye, Njarðvík (34)
  • Sóknarfráköst: Kristófer Acox, Val (17)
  • Varnarfráköst: Dominykas Milka, Njarðvík (44)
  • Tapaðir boltar: Dominykas Milka, Njarðvík og Taiwo Badmus, Val (13)
  • Villur fengnar: Mario Matasovic, Njarðvík (14)
  • Mínútur spilaðar í leik: Chaz Williams, Njarðvík (35,0)

Hæsta framlag leikmanna í einvíginu:

Vísir/Hulda Margrét

1. Dominykas Milka, Njarðvík 25,0 framlagsstig í leik

Stig í leik: 14,5

Fráköst í leik: 14,3

Stoðsendingar í leik: 3,0

Skotnýting: 55%

Þristar: 2

Þriggja stiga skotnýting: 71%

Víti fengin: 14

Vítanýting: 71%

Hæsta framlag: 30 í leik eitt

Vísir/Anton Brink

2. Kristófer Acox, Val 21,0 framlagsstig í leik

Stig í leik: 12,5

Fráköst í leik: 14,5

Stoðsendingar í leik: 2,5

Skotnýting: 47%

Þristar: 0

Þriggja stiga skotnýting: 0%

Víti fengin: 18

Vítanýting: 44%

Hæsta framlag: 25 í leik fjögur

Vísir/Hulda Margrét

3. Dwayne Lautier-Ogunleye, Njarðvík 19,8 framlagsstig í leik

Stig í leik: 22,0

Fráköst í leik: 5,5

Stoðsendingar í leik: 3,3

Skotnýting: 39%

Þristar: 9

Þriggja stiga skotnýting: 36%

Víti fengin: 34

Vítanýting: 79%

Hæsta framlag: 28 í leik tvö

Vísir/Hulda Margrét

4. Taiwo Badmus, Val 15,0 framlagsstig í leik

Stig í leik: 18,5

Fráköst í leik: 7,3

Stoðsendingar í leik: 2,3

Skotnýting: 41%

Þristar: 1

Þriggja stiga skotnýting: 7%

Víti fengin: 24

Vítanýting: 63%

Hæsta framlag: 20 í leik fjögur

Vísir/Hulda Margrét

5. Chaz Williams, Njarðvík 14,3 framlagsstig í leik

Stig í leik: 10,8

Fráköst í leik: 5,5

Stoðsendingar í leik: 7,0

Skotnýting: 33%

Þristar: 5

Þriggja stiga skotnýting: 24%

Víti fengin: 8

Vítanýting: 75%

Hæsta framlag: 19 í leik fjögur

Vísir/Anton Brink

6. Þorvaldur Orri Árnason, Njarðvík 13,3 framlagsstig í leik

Stig í leik: 11,8

Fráköst í leik: 4,3

Stoðsendingar í leik: 2,5

Skotnýting: 55%

Þristar: 5

Þriggja stiga skotnýting: 38%

Víti fengin: 12

Vítanýting: 50%

Hæsta framlag: 20 í leik eitt og fjögur

Vísir/Anton Brink

7. Kristinn Pálsson, Val 12,3 framlagsstig í leik

Stig í leik: 16,5

Fráköst í leik: 5,0

Stoðsendingar í leik: 1,8

Skotnýting: 37%

Þristar: 13

Þriggja stiga skotnýting: 46%

Víti fengin: 12

Vítanýting: 75%

Hæsta framlag: 25 í leik tvö

Vísir/Hulda Margrét

8. Mario Matasovic, Njarðvík 8,5 framlagsstig í leik

Stig í leik: 10,8

Fráköst í leik: 4,0

Stoðsendingar í leik: 0,5

Skotnýting: 40%

Þristar: 9

Þriggja stiga skotnýting: 33%

Víti fengin: 2

Vítanýting: 100%

Hæsta framlag: 18 í leik eitt




Fleiri fréttir

Sjá meira


×