Erlent

Vill bjóða NATO að byggja nýjan flug­völl í Fær­eyjum

Kristján Már Unnarsson skrifar
Heðin Mortensen borgarstjóri í viðtali við Stöð 2. Fyrir aftan er ráðhús Þórshafnar.
Heðin Mortensen borgarstjóri í viðtali við Stöð 2. Fyrir aftan er ráðhús Þórshafnar. Egill Aðalsteinsson

Borgarstjóri Þórshafnar vill bjóða NATO að byggja nýjan alþjóðaflugvöll í Færeyjum. Hann segir núverandi flugvöll of lítinn til að geta þjónað Færeyingum til framtíðar.

Í fréttum Stöðvar 2 mátti sjá aðflug að eina flugvelli Færeyja, sem hefur löngum þótt erfitt vegna tíðrar þoku og sviftivinda. Flugbrautin í Vogum var fyrir tólf árum lengd með miklum jarðvegsfyllingum úr 1.250 metrum upp í 1.800 metra og geta núna meðalstórar farþegaþotur, eins og Airbus A320, notað völlinn, en þó með takmörkunum. Þá er brautin of stutt til að nýkeypt Boeing 757 flutningaþota FarCargo geti tekið á loft fulllestuð til New York.

„Flugvöllurinn er góður, hann virkar og það allt, en til lengri tíma litið er hann of lítill, flugbrautin er of stutt og það er ómögulegt að lengja hana,” segir Heðin Mortensen, borgarstjóri Þórshafnar.

Vesturendi flugbrautarinnar í Vogum hvílir á stórri jarðvegsfyllingu ofan bæjarins Saurvogs. Austurendinn er einnig á stórri fyllingu.Egill Aðalsteinsson

Vogaflugvöllur er vestast í Færeyjum og þótt neðansjávargöng til Straumeyjar hafi stytt aksturstímann til Þórshafnar niður undir fjörutíu mínútur telur borgarstjórinn þörf á nýjum flugvelli.

„Besti staðurinn fyrir framtíðarflugvöll er á Glyvursnesi. Við vinnum út frá því núna að flugvöllurinn þurfi að vera þrjú þúsund metra langur. Þá geta allar flugvélar lent þar án vandræða.”

Teikningin sýnir 3.000 metra langa flugbraut á Glyvursnesi við Þórshöfn.Landsverk

Einn stærsti kosturinn við Glyvursnes er hvað það er stutt frá Þórshöfn, eða aðeins þrjá kílómetra frá útjaðri byggðarinnar. Heðin bendir jafnframt á að þetta flugvallarstæði sé betra veðurfarslega gagnvart ókyrrð og með minni aðflugshindrunum.

Nýr alþjóðaflugvöllur kostar sitt og borgarstjórinn hefur hugmynd um hvernig ætti að borga hann.

„Nú er talað um að NATO komi hingað og byggi ratsjárstöð.”

Glyvursnes er um þrjá kílómetra sunnan byggðarinnar í Þórshöfn. Þarna vill borgarstjórinn fá nýjan flugvöll.Egill Aðalsteinsson

Og segir að á spennutímum sem nú sé mikilvægt fyrir Atlantshafsbandalagið að hafa flugvöll í Færeyjum.

„Kafbátar sigla hérna um. NATO, gerið svo vel, komið hingað og gerið flugvöllinn núna,” segir Heðin og hvetur til þess að viðræður hefjist við Atlantshafsbandalagið.

„Við skulum hefja samningaviðræður, við höfum öll spil á hendi. Gerið svo vel. Eitthvað fyrir eitthvað. Þið fáið flugvöllinn og þið borgið. Þannig sé ég þetta gerast,” segir Heðin Mortensen, borgarstjóri Þórshafnar.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll

Bæjarstjóri Þórshafnar í Færeyjum, Heðin Mortensen, vill hefja undirbúning að gerð nýs alþjóðaflugvallar í Færeyjum. Ummælin féllu í viðtali við Kringvarpið í vikunni í framhaldi af vandræðum sem fraktflugfélagið FarCargo glímir við að nýta Vogaflugvöll til fiskflutninga með Eysturoy, Boeing 757-þotu félagsins.

Icelandair flýgur til Færeyja að nýju

Icelandair hóf í dag áætlunarflug til Færeyja á ný eftir tuttugu ára hlé. Utanríkisráðherrar Íslands og Færeyja fagna áfanganum sem og flugstjóri fyrstu flugferðarinnar. Flogið verður fimm til sex sinnum í viku gegnt flugfélaginu Atlantic Airways sem hefur verið að fljúga á milli tvisvar til þrisvar í viku.

Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum

Flugvöllurinn í Vogum í Færeyjum, eini flugvöllur eyjanna, verður færður upp um einn öryggisflokk. Það þýðir að Boeing 757-fraktþota FarCargo, dótturfélags Bakkafrosts, fær loksins varanlegt leyfi til að lenda í sinni eigin heimahöfn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×