Innlent

Svona var Pall­borðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Jón Gnarr, Baldur Þórhallsson, og Halla Hrund Logadóttir eru gestir Pallborðsins í dag.
Jón Gnarr, Baldur Þórhallsson, og Halla Hrund Logadóttir eru gestir Pallborðsins í dag. vísir/vilhelm

Forsetaframbjóðendurnir Baldur Þórhallsson stjórnmálaprófessor, Jón Gnarr listamaður og Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri verða gestir Pallborðsins í dag, þar sem til umræðu verða niðurstöður skoðanakannana og fyrstu vikur kosningabaráttunnar. Þátturinn er í beinni útsendingu og lifandi textalýsingu.

Samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar nýtur Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, forskots á aðra frambjóðendur með 31,4 prósent fylgi. Katrínu var boðin þátttaka í Pallborðinu en kemst ekki vegna fyrri skuldbindinga. Næstur á eftir Katrínu er Baldur með 24 prósent, þá Jón með 18,9 prósent og Halla Hrund með 10,5 prósent.

Baráttan um Bessastaði verður til umræðu í Pallborðinu klukkan 13 á í dag, sem sýnt verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi.

Uppfært: Pallborðinu er lokið en upptöku má sjá að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×