Viðskipti innlent

Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Una Jónsdóttir er forstöðumaður Hagfræðideildar Landsbankans.
Una Jónsdóttir er forstöðumaður Hagfræðideildar Landsbankans. Vísir/Vilhelm

Stýrivextir verða ekki lækkaðir fyrr en undir lok árs og verðbólga mælist yfir markmiðum seðlabankans næstu tvö árin samkvæmt nýrri Hagspá Landsbankans. Hagfræðingur telur að uppkaup á húsnæði Grindvíkinga hafi talsverð áhrif á verðbólgu næstu mánuða.

Stýrivextir hafa nú verið óbreyttir í 9,25 prósent síðan í ágúst í fyrra og samkvæmt nýrri Hagspá Landsbankans verður ekki breyting á því á næstunni. Ekki er búist við að vaxtalækkunarferli hefjist fyrr en í október.

Verðbólga hefur hjaðnað nokkuð og mældist sex prósent í apríl. Verkalýðsleiðtogar hafa kallað eftir vaxtalækkun samhliða því en Una Jónsdóttir, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans, telur að Seðlabankinn muni bíða skýrari merkja um að verðbólga sé sannarlega á niðurleið.

„Við sjáum fram á að verðbólgan verði svolítið tregbreytanleg næstu mánuði. Vissulega lækkaði hún í apríl en ég held að hún verði í kringum sex prósent næstu mánuði og að þá vilji seðlabankinn fara hægt í lækkanir.“

Hagfræðideild Landsbankans telur að verðbólgan verði raunar enn í kringum 5,5 prósent undir lok árs og Una segir nokkra þætti skýra það hversu þrálát hún er.

„Það er enn þá innlendur þrýstingur, við sjáum enn örlitla spennu á vinnumarkaði, húsnæði hefur verið að hækka og við teljum að það viðhaldi verðbólgu næstu mánuði,“ segir Una.

Eru uppkaupin í Grindavík að leika þar stórt hlutverk?

„Já, við teljum að það gæti haft einhver áhrif. Við sjáum að á síðustu mánuðum er húsnæðisverð að taka við sér og það gæti alveg verið af því að það er aukin eftirspurn að koma til vegna Grindvíkinga. Þannig að þessi áhrif gætu varað næstu mánuði.“

Búist er við að verðbólga verði enn yfir markmiðum seðlabankans í lok árs 2026, en verði þá 3,2 prósent.

„Verðbólgan er búin að vera há mjög lengi og þá tekur langan tíma að vinda ofan af því. Verðbólugvæntingar eru enn háar þannig við þurufm að sýna þolinmæði til að ná henni virkilega niður í markmið,“ segir Una.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×