Erlent

Fær­eyingar á­forma 4.500 króna að­gangs­eyri á alla ferða­menn

Kristján Már Unnarsson skrifar
Høgni Hoydal, utanríkis- og atvinnumálaráðherra Færeyja, í viðtali við Stöð 2 framan við hús Lögþingsins.
Høgni Hoydal, utanríkis- og atvinnumálaráðherra Færeyja, í viðtali við Stöð 2 framan við hús Lögþingsins. Egill Aðalsteinsson

Færeyskir bændur efndu til mótmælaaksturs á traktorum til Þórshafnar þegar mælt var fyrir frumvarpi landsstjórnarinnar um að leggja háan aðgangseyri á erlenda ferðamenn. Bændur og landeigendur telja frumvarpið ganga gegn stjórnarskrárvörðum rétti þeirra til að stýra sjálfir aðgengi að eigin landi.

Í fréttum Stöðvar 2 var fjallað um eitt heitasta deilumál færeyskra stjórnmála um þessar mundir; frumvarp landsstjórnarinnar um sjálfbæra ferðaþjónustu, sem gerir ráð fyrir hárri gjaldtöku af erlendum ferðamönnum, 16 ára og eldri, sem koma til Færeyja með flugvélum eða skipum. Atvinnumálaráðherrann Høgni Hoydal miðar við að gjaldið, sem kallast náttúrugjald, verði sem nemur 4.500 íslenskum krónum.

Flugvél Icelandair í flugtaki á Vogaflugvelli þann 1. maí síðastliðinn þegar félagið hóf áætlunarflug að nýju til Færeyja eftir tuttugu ára hlé.Egill Aðalsteinsson

„Mitt frumvarp kveður á um mjög hátt gjald. Hver ferðamaður sem kemur til Færeyja mun greiða 225 danskar krónur."

-En eiga bara ferðamenn að borga, ekki Færeyingar sem koma til landsins?

„Bara þeir sem koma sem ferðamenn. Ekki þeir sem búa hérna.“

-Er það löglegt?

„Já, það er löglegt,“ svarar Høgni.

Ólíkt Íslendingum eru Færeyingar ekki bundnir af Evrópulöggjöf sem bannar slíka mismunun enda hvorki aðilar að EES-samningnum né Evrópusambandinu.

Frá Saksun á Straumey.Egill Aðalsteinsson

Það voru þó önnur atriði sem knúðu færeyska bændur til að fara í mótmælaakstur á þrjátíu traktorum til Þórshafnar þegar mælt var fyrir frumvarpinu í Lögþinginu þann 19. mars síðastliðinn. 

Þeir segja að með frumvarpinu sé löggjafinn að veita ferðamönnum aðgang að þeirra einkalöndum, þeir traðki niður landið og spilli sauðfjárbúskap. Það sé stjórnarskrárvarinn réttur þeirra að stýra aðgengi að sínum jörðum en dæmi eru um að bændur hafi sjálfir tekið upp á því að rukka ferðamenn fyrir að ganga um lönd þeirrra.

Bændur fóru í mótmælaakstur að Lögþinginu daginn sem mælt var fyrir frumvarpinu umdeilda. Hér ræða þeir við ráðherrann Høgna Hoydal.Kringvarpið

„Bændurnir hafa réttinn til að ala sauðfé og stunda landbúnað. Það þarf að ná málamiðlun og ég vona að hún náist,“ segir Høgni en frumvarpið er núna til meðferðar í þingnefnd.

Frumvarp landsstjórnarinnar gerir ráð fyrir að fjármununum verði ráðstafað heima í héraði og að ferðamannaskatturinn fari að hálfu til sveitarfélaga, fjórðungur til byggða og fjórðungur til jarðeigenda.

„Hann fer beina leið til landsbyggðarinnar og til sveitarstjórnanna,“ segir Høgni Hoydal.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:

Fyrir fimm árum fjallaði Stöð 2 um viðbrögð færeyskra bænda við átroðningi ferðamanna í þessari frétt:


Tengdar fréttir

Icelandair flýgur til Færeyja að nýju

Icelandair hóf í dag áætlunarflug til Færeyja á ný eftir tuttugu ára hlé. Utanríkisráðherrar Íslands og Færeyja fagna áfanganum sem og flugstjóri fyrstu flugferðarinnar. Flogið verður fimm til sex sinnum í viku gegnt flugfélaginu Atlantic Airways sem hefur verið að fljúga á milli tvisvar til þrisvar í viku.

Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds

Helstu ferðamannastaðir Færeyja voru lokaðir í þrjá daga í síðustu viku vegna viðhalds. Eitthundrað sjálfboðaliðar frá tugum landa unnu á meðan við að lagfæra göngustíga, girðingar og þess háttar, verkefni sem sexþúsund manns úr öllum heimshornum sóttu um að fá að taka þátt í.

Kostar 8.000 krónur að ganga á Þrælanípuna

Landeigendur einnar vinsælustu gönguleiðar Færeyja hafa ákveðið að hefja gjaldtöku af göngufólki í sumar. Athygli vekur hve gjaldið verður hátt, eða 450 danskar krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×