Innlent

Ís­land greiddi at­kvæði með auknum rétti Palestínu hjá SÞ

Kjartan Kjartansson skrifar
Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, í ræðustól á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 2022.
Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, í ræðustól á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 2022. AP/Julia Nikhinson

Fulltrúi Íslands greiddi atkvæði með aukinni þátttöku Palestínu í störfum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í atkvæðagreiðslu þar í dag. Tillagan var samþykkt en Bandaríkin voru eitt níu ríkja sem greiddi atkvæði gegn henni.

Niðurstaðan þýðir að fulltrúar Palestínu geta tekið þátt í störfum allsherjarþingsins til jafns við fullgildra aðildarþjóða Sameinuðu þjóðanna. Palestína hefur stöðu áheyrnarríkis þar. Ályktunin var samþykkt með 143 atkvæðum gegn níu en tuttugu og fimm ríki sátu hjá. Aukinn meirihluta þurfti til að samþykkja ályktunina.

Jafnframt leggur allsherjarþingið þar til við öryggisráðið að það taki umsókn Palestínu um fulla aðild aftur til skoðunar með jákvæðum hug. Bandaríkin beittu neitunarvaldi gegn slíkri ályktun í síðasta mánuði.

Bandaríkin, Kína og Rússland eru öll sögð hafa beitt þrýstingi til þess að fá ályktuninni sem var á endanum samþykkt breytt frá upphaflegum drögum. AP-fréttastofan segir að Rússar og Kínverjar, sem eru einhver ötulustu stuðningsríki aðildar Palestínu, hafi óttast að ályktunin hefði sett fordæmi fyrir aukin réttindi annarra ríkja eins og Taívan og Kósovó.

Þannig var fellt niður ákvæði úr ályktunina um að Palestína „standi jöfnum fæti á við aðildarríkin“. Þess í stað ákveði allsherjarþingið að veita Palestínu ákveðin réttindi sem undantekningu og án þess að setja frekara fordæmi.

Jörundur Valtýsson, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, ítrekaði ákall um að Hamas og Ísrael semji um og framfylgi vopnahléi þegar hann gerði grein fyrir atkvæði Íslands á allsherjarþinginu í dag. Framfylgja yrði bráðabirgðaráðstöfunum Alþjóðadómstólsins í Haag og ályktunum öryggisráðsins. Tveggja ríkja lausn væri eina leiðin til friðar.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×