Viðskipti innlent

Sam­kaup, Heim­kaup og Orkan hefja sam­runa­við­ræður

Atli Ísleifsson skrifar
Heiður Björk Friðjónsdóttir, framkvæmdarstjóri fjármála- og rekstrarsviðs Samkaupa, Gunnar Egill Sigurðsson forstjóri, Hallur Geir Heiðarsson framkvæmdarstjóri innkaupa- og vörustýringarsviðs og Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdarstjóri verslunar- og mannauðssviðs.
Heiður Björk Friðjónsdóttir, framkvæmdarstjóri fjármála- og rekstrarsviðs Samkaupa, Gunnar Egill Sigurðsson forstjóri, Hallur Geir Heiðarsson framkvæmdarstjóri innkaupa- og vörustýringarsviðs og Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdarstjóri verslunar- og mannauðssviðs. Aðsend

Viðræður eru hafnar um mögulegan samruna Samkaupa, Heimkaupa og Orkunnar.

Frá þessu segir í tilkynningu frá Samkaupum þar sem kemur fram að undanfarna mánuði hafi Samkaup hf. og Skel fjárfestingarfélag átt í könnunarviðræðum um fýsileika samruna Samkaupa og tiltekinna dótturfélaga SKEL. 

„Aðilar hafa framkvæmt forskoðun á samrunafélögunum með aðstoð sérfræðiráðgjafar og í samræmi við ákvæði samkeppnislaga. 

Skrifað hefur verið undir samkomulag um helstu forsendur fyrir því að hefja formlegt samrunaferli, þar sem Samkaup verður yfirtökufélagið. Nú hafjast því samningaviðræður um samrunann með það að markmiði að komast að samkomulagi um efni endanlegs kaupsamnings með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins og hluthafafundar. 

Samruninn er í samræmi við framtíðarstefnu Samkaupa og felur í sér margvísleg tækifæri og breikkar tekjugrunn félagsins.“

Djúpar rætur

Haft er eftir Gunnari Agli Sigurðssyni, forstjóra Samkaupa, að Samkaup sé yfirtökufélag í þessum samruna og að hann sé mjög ánægður með þessa niðurstöðu eftir vinnu síðustu missera. 

„Ég er sannfærður um að sameinað félag eigi eftir að gera góða hluti til hagsbóta fyrir neytendur. Með sameiningu verður til fjárhagslega öflugt verslunarfélag á neytendamarkaði með sterka markaðshlutdeild í dagvöru, lyfjum og orku. Sameinað félag er með djúpar rætur í þjónustu við viðskiptavini um allt land og verður enn sterkari keppinautur á markaði með mikil tækifæri til vaxtar. Aukin hagkvæmni hlýst af stærri rekstrareiningu en einnig eru mikil tækifæri víða um land með auknu þjónustuframboði.“ 

Um félögin:

Samkaup reka rúmlega 60 verslanir víðsvegar um landið undir vörumerkjunum Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin og Iceland. Hjá félaginu starfa um 1.400 starfsmenn í rúmlega 660 stöðugildum.

Orkan starfrækir 72 orkustöðvar, 10 þvottastöðvar undir merkjum Löðurs, 6 hraðhleðslustöðvar, 2 vetnisstöðvar og 1 metanstöð. Þá á félagið 32 fasteignir og lóðir víðs vegar um landið, auk annarra eigna.

Heimkaup reka 7 apótek undir merkjum Lyfjavals, netverslunina Heimkaup og 9 þægindaverslanir undir merkjum 10-11, Extra og Orkunnar, auk annarra eigna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×