Eurovision 2005 - Dagur 6 - Íslendingum fjölgar Ég ætla aðeins að þusa meira út af þessari hvítrússnesku peningavél sem Angelica heitir, en það má ekki gerast að íslendingar gefi þessu lagi stig. Ég skora á mannskapinn. Það á ekki að vera hægt að kaupa sér þennan titil...... Lífið 16. maí 2005 00:01
Eurovision 2005 - Dagur 6 framhald Mér finnst ég hafa orðið var við mikla bjartsýni að heiman, meðal annars í blogginu á ruv.is þar sem fólk er að gefa sér það að við verðum á meðal tíu efstu á fimmtudag og það nánast formsatriði að við verðum með á lokakvöldinu á laugardag. Svona er þetta hins vegar ekki.... Lífið 16. maí 2005 00:01
Eurovision 2005 - Dagur 5 - Selma klikkar ekki Einhver myndi segja að þetta væri nú sama eurovisionbullið í mér eins og þeim sem áður hafa fjallað um þessa keppni, en það er nú einu sinni svo að það hrósa allir Selmu og framgöngu hennar. Það er svo spurningin um þýðingu þess sem þessir menn segja, ég hef efasemdir um það. Lífið 15. maí 2005 00:01
Selma syngur á Gay pride í Osló Á blaðamannafundi sem haldin var í gær sagði Selma Björnsdóttir frá því að henni hefði verið boðið að syngja á Gay pride í Osló í sumar og þar myndi hún koma fam ásamt Páli Óskari Hjálmtýssyni, sem eins og Selma hefur keppt í Euróvison. Innlent 15. maí 2005 00:01
Fjórða sæti í veðbönkum Ísland er sem stendur í fjórða sæti í enskum veðbönkum sem taka við veðmálum um sigur í Eurovision keppninni. Grikkir tróna þar á toppnum, ungverjar í öðru og Norðmenn í því þriðja á undan Íslandi. Innlent 15. maí 2005 00:01
Eurovision 2005 - Dagur 4 - Frábær blaðamannafundur Það er ekki allt með felldu hér í borg og berast nú þær fregnir að maður þurfi að passa sig á veskjum á götunum. Þannig er mál með vexti að einhverjir óprúttnir borgarbúar stunda það að skilja eftir tóm vexti á götunum og þegar einhver tekur það upp koma nokkrir menn og spyrja um veskið. Þegar maður afhendir það þá segja þeir að það hafi verið fullt af peningum... Lífið 14. maí 2005 00:01
Selma heillar alla Það er alveg ljóst að Selma Björnsdóttir átti daginn í blaðamannaherberginu í Kænugarði þar sem hún fór hreinlega á kostum. Þar tók hún lagið auk þess sem geislandi framkoma hennar bræddi alla viðstadda. Hún tók þrjú lög þar á meðal söng hún All out of luck, þar sem hún tók viðlagið á þýsku og þá söng hún gamalt króatískt eurovisionlag. Innlent 14. maí 2005 00:01
Eurovision 2005 - Dagur 2 framhald Fyrsta æfing Selmu var í dag og að sjálfsögðu var strunsað á hana. Á meðan ég beið hlýddi ég á tvö lög, lagið frá Hvíta Rússlandi, sem við þurfum væntanlega ekki að hafa miklar áhyggjur af og síðan hollenska lagið, þar sem kveður við annan tón. Lífið 13. maí 2005 00:01
Eurovision 2005 - Dagur 3 - Rólegur dagur Það eru menn með farsíma fasta við sig með bandi og bjóða vegfarendum að hringja gegn vægu gjaldi og voru allmargir sem nýttu sér þessa þjónustu. Vegna tungumálaörðugleika komst ég ekki að því hvað herlegheitin kostuðu. Lífið 13. maí 2005 00:01
Eurovision 2005 - Dagur 1 - Eldglæringar Kiev eða Kænugarður eins og margir Íslendingar kjósa að nefna hana, býður í myrkri næturinnar af sér sæmilega góðan þokka. Ég eins og svo margir Íslendingar hafa eflaust búið sér til margar skrítnar myndir af þessari borg og landi eins og svo mörgum öðrum austantjalds löndum. Lífið 12. maí 2005 08:00
Eurovision 2005 - Dagur 2 - Ensk íslenskir blaðamenn í Kiev Ég ætla ekki að tryllast á blaðamannafundinum með Selmu sem verður síðar í dag, þó maður haldi að sjálfsögðu með henni. Lífið 12. maí 2005 00:01
Selma farin til Kænugarðs Selma Björnsdóttir lagði snemma í morgun upp í langferð þar sem áfangastaðurinn er Kænugarður í Úkraínu. Þar mun Selma verða fulltrúi íslensku þjóðarinnar í Eurovision keppninni og flytja lagið <strong><em>If I had your love</em></strong>. Gífurleg spenna er fyrir þessari keppni enda benda flestar spár til þess að laginu muni ganga vel. Innlent 11. maí 2005 00:01
Landsbankinn styrkir Selmu Landsbankinn hefur ákveðið að styrkja Selmu Björnsdóttur til þátttöku í Evróvisjón söngvakeppninni. Í fréttatilkynningu frá Landsbankanum segir að með samningnum fái Selma aukið fjárhagslegt svigrúm til að helga sig þátttöku í keppninni. Innlent 6. maí 2005 00:01
Olsen bræður næstum til Kiev Íslandsvinirnir dönsku, Olsen-bræður, náðu ekki að koma lagi sínu Little Yellow Radio að í Eurovision í ár. Þeir urðu í öðru sæti í dönsku forkeppninni á eftir Jakob Sveistrup sem flytur lagið Tænder På Dig í forkeppninni í Úkraínu 19. maí. Innlent 25. mars 2005 00:01
Ósáttir við að undankeppnina vanti Eurovisionfari án undankeppni rýrir atvinnuvettvang tónlistarmanna, segir Björn Th. Árnason, formaður Félags íslenskra hljómlistarmanna. Stöðugt hafi dregið saman hjá tónlistardeild Ríkisútvarpsins á síðustu árum. Innlent 20. desember 2004 00:01