Af vængjum fram: Grínaðist alltaf með að láta húðflúra einstefnuskilti á rassgatið Eiríkur Ingi Jóhannsson forsetaframbjóðandi er fjölskyldufaðir sem er sjóaður í því að borða sterkan mat og hefur lifað af hryllilegt sjóslys. Hann segist aldrei hafa viljað fá sér húðflúr þó eitt hafi komið til greina. Lífið 31. maí 2024 07:37
KosninGnarr kraftaverk Nýlega heyrði ég kenningu þess efnis að hátt hlutfall ADHD greininga á Íslandi megi skýra með því hvernig landið byggðist. Skoðun 31. maí 2024 07:00
Gummi Gumm velur Höllu Hrund í liðið sitt Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska handboltaliðsins Fredericia, velkist ekki í neinum vafa um hver hann telur að sé best til þess fallinn að verða næsti forseti Íslands. Hann setur x-ið sitt við Höllu Hrund Logadóttur og hvetur aðra til að gera slíkt hið sama. Handbolti 31. maí 2024 07:00
Síðustu kannanir gefa fyrirheit um æsispennandi kosningar Þrjár fylgiskannanir voru birtar í gær. Sú fyrsta var könnun Maskínu fyrir fréttastofuna og greint var frá í hádeginu. Þar hefur Halla Tómasdóttir, sem verið hefur á mikilli siglingu, skotist upp að Katrínu Jakobsdóttur og mælast þær báðar með 24,1 prósent. Innlent 31. maí 2024 06:32
Þetta höfðu netverjar að segja um kappræðurnar Íslendingar voru duglegir að tjá sig á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter, á meðan forsetakappræður Stöðvar 2 fóru fram. Lífið 30. maí 2024 23:18
Svona voru ávörp frambjóðendanna í kappræðunum Forsetaframbjóðendurnir sex sem tóku þátt í kappræðum Stöðvar 2 og Vísis í kvöld fengu eina mínútu hver til þess að tala beint til kjósenda. Hér má sjá ávörp hvers og eins. Innlent 30. maí 2024 23:10
Óttarr og Sigurjón ráðherrar Jóns í stjórnarkreppu Jón Gnarr segir að ef kæmi til stjórnarkreppu á meðan hann væri forseti og hann þyrfti að skipa utanþingsstjórn þá myndi hann skipa Óttarr Proppé, listamann og fyrrverandi heilbrigðisráðherra, og Sigurjón Kjartansson, kvikmyndagerðarmann og Tvíhöfðabróður Jóns, í ráðuneyti. Innlent 30. maí 2024 22:32
Sala á Landsvirkjun líkleg þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi ekki áhuga Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi telur líklegt að möguleg sala ríkisins á Landsvirkjun muni koma á borð næsta forseta jafnvel þó núverandi ríkisstjórn kannist ekki við að það standi til. Innlent 30. maí 2024 20:00
Féllu á tíma þegar kom að veikleikum í starfi Fréttastofa ákvað að bjóða þeim frambjóðendum sem mælst hafa með mest fylgi í skoðanakönnunum í atvinnuviðtal enda sækjast þeir allir eftir sama starfinu og er vinnuveitandinn íslenska þjóðin. Innlent 30. maí 2024 19:46
Forsetaáskorunin: Grefur upp gamlar gersemar úti um allan heim. Vísir stendur fyrir Forsetaáskoruninni 2024, þar sem skorað er á forsetaframbjóðendur að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. Lífið 30. maí 2024 19:01
Bein útsending: Kappræður á Stöð 2 sem gætu skipt sköpum Þeir sex forsetaframbjóðendur sem mælst hafa efstir í könnunum undanfarnar vikur mæta í lokakappræður Stöðvar 2 strax að loknum kvöldfréttum. Þátturinn verður í beinni útsendingu og opinni dagskrá bæði á Stöð 2 og Vísi. Innlent 30. maí 2024 18:30
Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Fyrir tæplega sjö árum, um það leyti sem #metoo umræðan stóð sem hæst, kom út bókin Down Girl: The Logic of Misogyny (Drusla: Rökvísi kvenhaturs) eftir Kate Manne, lektor í heimspeki við Cornell háskóla í Bandaríkjunum. Skoðun 30. maí 2024 17:15
Svakalega jafnt á toppnum samkvæmt nýrri könnun Prósents Ómarktækur munur er á Höllu Tómasdóttur, Katrínu Jakobsdóttur og Höllu Hrund Logadóttur í nýrri skoðanakönnun Prósents fyrir Morgunblaðið. Innlent 30. maí 2024 17:03
Elíta menningar og örlög þjóðar Ragnar Kjartansson er ekkert merkilegri Íslendingur, en við hin, þótt hann hafi vinnu af því að smíða listaverk og foreldrar hans séu leikarar. Ragnar skrifar þ. 29. maí 2024 inn á visir.is grein þar sem hann andmælir grein Auðar Jónsdóttur skáldkonu á Heimildinni þ. 27. maí 2024. Skoðun 30. maí 2024 17:00
Katrín með mikið forskot í nýrri könnun Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands er Katrín Jakobsdóttir með 26,3 prósenta fylgi en næsti maður, Halla Tómasdóttir, með 18,5 prósenta fylgi. Halla Hrund Logadóttir mælist með litlu minna fylgi en nafna hennar, 18,4 prósent. Innlent 30. maí 2024 16:37
Ég vel Höllu Hrund í liðið mitt Halla Hrund er mjög skynsöm og vel menntuð kona. Hún er einlæg og heiðarleg og það geislar af henni. Skoðun 30. maí 2024 16:00
Síðasti séns Á laugardaginn velur Íslenska þjóðin sér nýjan forseta. Hún er svo lánsöm að fá á ný, tækifæri til að velja Höllu Tómasdóttur. Þvílík gæfa að hún skyldi velja að taka slaginn aftur. Skoðun 30. maí 2024 15:45
Að fortíð skal hyggja Hún er svo undarleg þessi stemming í samfélaginu núna. Ég skil hana ekki. Ég skil ekki hversu margt fólk sem hefur gagnrýnt ríkisstjórn Íslands harkalega undanfarin ár flykkir sér á bak við fyrrverandi forsætisráðherra og er sannfært um að hún yrði frábær forseti. Skoðun 30. maí 2024 15:16
Magnaðar vendingar í kapphlaupinu á Bessastaði Eiríkur Bergmann stjórnmálaprófessor segist nú ekki þora fyrir sitt litla líf að spá fyrir um hver endar sem forseti Íslands. Innlent 30. maí 2024 14:51
Forsetaefni tekin í krefjandi atvinnuviðtal í kappræðum kvöldsins Nú þegar rétt rúmar fjörutíu klukkustundir eru í opnun kjörstaða í kosningunum á laugardag og tveir efstu frambjóðendurnir hnífjafnir mæta forsetaframbjóðendur í lokakappræður Stöðvar 2 strax að loknum kvöldfréttum. Þátturinn verður í beinni útsendingu og opinni dagskrá bæði á Stöð 2 og Vísi. Innlent 30. maí 2024 14:46
Reiði samfélags 2.0 Reiði heils samfélags er bæði heillandi og ógnvekjandi. Það er ekki oft sem atburðir gerast sem leiða til slíkrar reiði, en af og til þá blossar hún upp. Skoðun 30. maí 2024 14:31
Ríkisútvarpið hyggst ekki breyta fyrirkomulagi sínu Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri fréttastofu Ríkisútvarpsins segir niðurstöðu komna gagnvart kröfugerð forsetaframbjóðenda – RÚV mun ekki hvika frá fyrirhuguðu fyrirkomulagi. Innlent 30. maí 2024 14:30
Tveir forsetar fyrir einn Forsetum lýðveldisins hefur gjarnan verið skipt í tvo hópa. Þá sem komið hafa úr stjórnmálum og hina sem komið hafa úr fræða- og menningarheiminum. Með Katrínu Jakobsdóttur fengi þjóðin í raun tvo fyrir einn í þeim efnum. Forseta með bæði mikla reynslu úr stjórnmálum, sem reynzt hefur þeim forsetum vel sem búið hafa að henni í störfum sínum fyrir þjóðina, og forseta sem látið hefur sér annt um menningu þjóðarinnar. Skoðun 30. maí 2024 13:30
Forseti jafnréttis og hugsjóna í þágu samfélagsins Þegar orðið á götunni sagði að Katrín Jakobsdóttir hygðist gefa kost á sér til embættis forseta Íslands þá hugsaði ég - hættu nú alveg, það væri galið! Ég vildi alls ekki missa hana sem forsætisráðherra, hún var jú límið í þessari ríkisstjórn og hélt öllu saman þarna niður á Austurvelli. Skoðun 30. maí 2024 13:01
Að velja réttu manneskjuna Hlutverk forseta Íslands er margbrotið. Manneskjan sem velst í það embætti þarf að sinna alls konar verkefnum bæði heima fyrir og erlendis. Hún þarf að kunna sig og koma vel fyrir á alþjóðavettvangi til að geta stutt við hagsmuni Íslands og gildandi utanríkisstefnu hvers tíma. Skoðun 30. maí 2024 12:30
Sex frambjóðendur senda kröfubréf til Stöðvar 2 Sex forsetaframbjóðendur hafa sent forsvarsmönnum Sýnar bréf þar sem þeir krefjast þess að fá að vera með í kappræðum vegna forsetakosninga 2024. Fréttastjóri segir kappræðurnar hugsaðar út frá þjónustu við kjósendur, fólkið í landinu. Innlent 30. maí 2024 12:18
Þolinmóðan mannvin á Bessastaði! Forseti Íslands á fyrst og fremst að vera fólksins. Hann þarf að vera mannlegur, búa yfir góðri samvinnuhæfni og vera fær í samskiptum. Þar stendur Baldur Þórhallsson sannarlega sterkur eins og í mörgu öðru sem skiptir miklu máli þegar kemur að embætti forseta Íslands. Skoðun 30. maí 2024 12:01
Hvar varstu? Hvar varstu þegar sprengjunum rigndi yfir? Hvað varstu að gera þegar barnið dó? Að nudda stírurnar úr augunum? Hella upp á kaffi? Taka fyrsta sopa dagsins? Þau dóu mörg. Klæða þig í skóna? Loka á eftir þér hurðinni? Skoðun 30. maí 2024 12:01
Katrín og Halla Tómasdóttir hnífjafnar í nýrri könnun Maskínu Katrín Jakobsdóttir og Halla Tómasdóttir eru hnífjafnar samkvæmt nýrri könnun fyrir fréttastofuna. Marktækur munur er á fylgi þeirra og Höllu Hrundar Logadóttur sem nýtur næst mest fylgis á eftir þeim. Seinni kappræður fréttastofunnar vegna forsetakosninganna næst komandi laugardag verða í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 og Vísi strax að loknum kvöldfréttum. Innlent 30. maí 2024 12:01
Auður í krafti karla Fyrir 25 árum fór ég fyrir verkefninu Auður í krafti kvenna, átaki til að valdefla konur og virkja frumkvæði þeirra og kraft til efnahags- og samfélagslegra framfara. Til urðu tugir fyrirtækja og hundruð nýrra starfa á meðan á átakinu stóð. Skoðun 30. maí 2024 11:30