Seðlabankinn Umframfé Arion banka gæti brátt numið yfir tuttugu milljörðum Þrátt fyrir talsverðar niðurfærslur á lánum þá var hagnaður Arion banka á þriðja fjórðungi, einkum vegna sögulega sterkrar afkomu af tryggingarekstrinum, vel umfram spár greinenda og ekki útséð með að bankinn geti náð arðsemismarkmiði sínu á árinu. Með innleiðingu á nýju bankaregluverki í upphafi nýs ár er áætlað að umfram eigið fé Arion, sem er núna talið vera allt að tuttugu milljarðar, aukist um liðlega fimm milljarða til viðbótar. Innherji 31.10.2024 13:02 Vísbendingar um að mælda verðbólgan sé að „megninu til gamalt vandamál“ Undirliggjandi verðbólguþrýstingur heldur áfram að lækka og nýjasta verðbólgumælingin, sem sýndi hana fara niður í 5,1 prósent, er „heilt yfir“ nokkuð góð og ætti að þýða að peningastefnunefnd getur haldið áfram með vaxtalækkunarferlið þegar hún kemur saman í nóvember, að mati hagfræðinga Arion banka. Ef litið er á verðbólguhraðann undanfarna þrjá mánuði er hún á ársgrundvelli komin í markmið Seðlabankans sem er vísbending um að mæld verðbólga núna sé að stórum hluta „gamalt vandamál.“ Innherji 31.10.2024 10:59 Fyrirsjáanleikinn ekki „sérlega mikill“ eftir ákvörðun Hagstofunnar Ákvörðun Hagstofunnar um að skilgreina fyrirhugað kílómetragjald á öll ökutæki sem veggjald þannig að það sé tekið inn í mælingu á vísitölu neysluverðs kemur á óvart, að mati hagfræðings, og sú nálgun ólík þeim alþjóðlegu stöðlum og regluverki sem stofnunin hefur í meginatriðum fylgt í sambærilegum málum. Hann telur að með þessari niðurstöðu sé fyrirsjáanleikinn ekki „sérlega mikill“ en ávöxtunarkrafa stuttra verðtryggðra ríkisbréfa lækkaði mikið á markaði í dag. Innherji 30.10.2024 16:48 Auknar líkur á annarri vaxtalækkun Fjármála- og efnahagsráðuneytið telur hjöðnun verbólgu, umfram það sem Seðlabankinn spáði í ágúst, auka líkur á því að bankinn lækki vexti við ákvörðun í nóvember. Hjöðnunin var drifin áfram af minni hækkun húsnæðis og segir ráðuneytið segir að spenna á húsnæðismarkaði virðist loks fara minnkandi. Viðskipti innlent 30.10.2024 16:32 Verðbólguhjöðnun í kortunum sem gæti opnað á stóra vaxtalækkun í nóvember Nokkuð skiptar skoðanir eru á meðal greinenda og hagfræðinga hversu hratt verðbólgan mun halda áfram að ganga niður þegar mælingin fyrir október verður kunngjörð síðar í vikunni, sú síðasta áður en peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman í næsta mánuði. Gangi bjartsýnustu spár eftir um að árstaktur verðbólgunnar muni lækka niður í fimm prósent ætti það að auka líkur á að Seðlabankinn telji forsendur til að íhuga að minnsta kosti 50 punkta vaxtalækkun. Innherji 28.10.2024 18:00 Seðlabankinn vill skoða að heimila lífeyrissjóðum að lána verðbréf Hægt væri að auka skilvirkni og dýpt verðbréfamarkaða hér á landi með því að veita íslenskum lífeyrissjóðum, langsamlega stærstu fjárfestunum á markaði, frekari heimildir til afleiðuviðskipta og jafnframt leyfa þeim að lána hlutabréf eða skuldabréf sín, að sögn Seðlabankans. Vegna stærðar sinnar getur hegðun lífeyrissjóða heft „veruleg áhrif“ á verðmyndun á markaði og því sé jákvætt fyrir fjármálastöðuga að skoða leiðir sem gætu aukið þátttöku annarra fjárfesta. Innherji 24.10.2024 10:25 Stamaði svo mikið að hann varð að fara í talþjálfun í fimm ár Seðlabankastjórinn Ásgeir Jónsson bjóst við að verða bóndi, átti erfitt með lestur í æsku en kláraði á endanum doktorspróf. Lífið 23.10.2024 10:31 Nánast samstaða um vaxtalækkun og nefndin segir „áhrif hárra raunvaxta skýr“ Þótt einn nefndarmaður hefði fremur kosið að halda stýrivöxtum óbreyttum þá samþykktu allir í peningastefnunefnd að ráðast í fyrstu vaxtalækkun Seðlabankans í tæplega fjögur ár fyrr í þessum mánuði, en líklegt er talið að raunvaxtastigið eigi eftir að hækka frekar á næstunni. Samstaða nefndarinnar um 25 punkta lækkun, meðal annars með vísun til þess að útlit er fyrir að hægja sé hratt á umsvifum á húsnæðismarkaði og í efnahagslífinu, eykur enn líkur á að haldið verði áfram með vaxtalækkunarferlið í næsta mánuði – og sú lækkun verði þá stærri í sniðum. Innherji 16.10.2024 18:41 Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Allir nefndarmenn peningastefnunefndar Seðlabankans vildu lækka stýrivexti um 0,25 prósentur eins og var gert fyrir tveimur vikum. Herdís Steingrímsdóttir hefði þó fremur kosið að halda vöxtum óbreyttum. Viðskipti innlent 16.10.2024 16:41 Hvað verður um verðbólguna í janúar? Nokkuð miklar líkur eru á því að verðbólga muni lækka mjög hratt í upphafi næsta árs og það hraðar en bjartsýnustu verðbólguspár gera ráð fyrir. Sú þróun mun skapa umhverfi til skarpara og hraðara vaxtalækkunarferlis en flestir telja líklegt. Innherji 16.10.2024 09:19 Sjö vilja verða varaseðlabankastjóri Sjö umsóknir bárustu um embætti varaseðlabankastjóra peningastefnu. Fimm umsækjenda starfa þegar í Seðlabankanum. Innlent 11.10.2024 11:11 Ekki meira innflæði í ríkisverðbréf í sjö mánuði með kaupum erlendra sjóða Eftir að erlendir fjárfestar höfðu verið nettó seljendur á ríkisverðbréfum á undanförnum mánuði varð talsverður viðsnúningur í september þegar þeir fjárfestu fyrir samtals nærri sjö milljarða króna, einkum í lengri skuldabréfum. Allt útlit er fyrir að kaup sjóðanna hafi haldið áfram í þessum mánuði og átt sinn þátt í skarpri gengisstyrkingu krónunnar. Innherji 10.10.2024 13:03 Krónan styrkist þegar ríkisbréfin komust á radarinn hjá erlendum sjóðum Eftir að hafa styrkst um meira en þrjú prósent á örfáum vikum er gengi krónunnar núna nálægt sínu hæsta gildi á móti evrunni á þessu ári. Krónan veiktist nokkuð skarpt í ágústmánuði, einkum þegar fjárfestar fóru að vinda ofan af framvirkum stöðum sínum, en nú hefur sú þróun snúist við samhliða því að erlendir sjóðir hafa verið að sýna íslenskum ríkisbréfum aukinn áhuga, að sögn sérfræðinga á markaði. Innherji 9.10.2024 10:07 Hagkerfið á vendipunkti og hætta á að tekjum sé ofspáð en gjöldin vanmetin Mikil vaxtabyrði ríkissjóðs, umtalsvert hærri borið saman við flestar aðrar Evrópuþjóðir, þýðir að það þarf að nást meiri afgangur á frumjöfnuði en núverandi áætlanir gera ráð fyrir eigi að takast að grynnka skuldahlutfallinu, að mati Samtaka atvinnulífsins. Hættan er að hagkerfið sé á vendipunkti, þar sem tekjum sé ofspáð en gjöldum áfram vanspáð, en Seðlabankinn telur að ljósi þróunar verðbólgu sé „brýnt“ að ekki verði vikið frá því að beita aðhaldi í ríkisfjármálum á komandi misserum. Innherji 5.10.2024 15:57 Eignafólk græðir mikið á vaxtastefnu Seðlabankans Allir vita að bankarnir hafa grætt mikið á þeim úrræðum sem Seðlabankinn hefur beitt gegn verðbólgunni. Hávaxtastefnan hefur verið megininntak þessara aðgerða Seðlabankans. Bankarnir hafa skilað methagnaði síðustu ár og það skilar sér síðan til stjórnenda bankanna í auknum bónusum og miklum ávinningi af kaupréttarsamningum. Skoðun 5.10.2024 12:03 Bankarnir farið „óvarlega“ þegar verðtryggingarmisvægi þeirra margfaldaðist Mikill vöxtur í verðtryggðum útlánum stóru viðskiptabankanna til heimila og fyrirtækja án þess að þeir væru með verðtryggða fjármögnun á móti þeim eignum hefur valdið því að verðtryggingarmisvægi þeirra er í hæstu hæðum en seðlabankastjóri telur að bankarnir hafi þar farið „heldur óvarlega.“ Meira en eitt ár er liðið síðan allar reglur sem kváðu á um lágmarks binditíma á verðtryggðar innstæður í bönkum voru afnumdar en frá þeim tíma hefur hins vegar verið óveruleg aukning í slíkum innstæðum. Innherji 3.10.2024 16:56 Indó lækkar líka vexti Sparisjóðurinn Indó hefur ákveðið að lækka vexti sína í kjölfar stýrivaxtalækkunar Seðlabankans. Framkvæmdastjóri sjóðsins segir eðlilegt að fjármálafyrirtæki lækki vexti sína þegar Seðlabankinnn gerir það, alveg eins og það er eðlilegt að hækka vexti þegar stýrivextir hækka. Viðskipti innlent 3.10.2024 15:30 Vaxtalækkun hænuskref í rétta átt en ekki megi gleyma nýlegum hækkunum Arion banki hefur tilkynnt vaxtalækkun í kjölfar ákvörðunar Seðlabanka Íslands um að lækka stýrivexti. Formaður Neytendasamtakanna fagnar þessu en segir ekki mega gleyma að íbúðalánavextir á Íslandi séu með þeim hæstu á Vesturlöndum og bankarnir séu nýbúnir að hækka þá. Neytendur 3.10.2024 12:31 Arion fyrstur til að tilkynna lækkun Arion banki hefur tilkynnt vaxtalækkun í kjölfar ákvörðunar Seðlabanka Íslands um að lækka stýrivexti. Óverðtryggðir vextir íbúðalána lækka um allt að 0,6 prósentustig en verðtryggðir vextir standa í stað. Viðskipti innlent 3.10.2024 10:44 Betra að byrja en bíða þangað til hagkerfið er „sannarlega komið í kreppu“ Peningastefnunefnd mat áhættuna af því að byrja vaxtalækkunarferlið minni heldur en að bíða enn lengur og þurfa þá mögulega ráðast í hraðar lækkanir samhliða því að hagkerfið væri að sigla inn í „kreppu,“ að sögn seðlabankastjóra, sem hefur væntingar um að verðbólgan sé að fara koma skarpt niður og aðhaldsstigið gæti því aukist enn frekar. Falli hlutirnir með nefndinni fram að næsta fundi seint í nóvember megi búast við frekari lækkunum en nefndin var ekki sérstaklega með augun á vaxtalækkunum stóru erlendu seðlabankanna að undanförnu við ákvörðun sína þótt ljóst sé að Ísland er mjög tengt þróuninni í Bandaríkjunum. Innherji 3.10.2024 07:50 Nú beinast öll spjót að bönkunum „Við höfum reyndar því miður dæmi um það að bankarnir bregðist mjög hratt og örugglega við þegar að seðlabankinn hefur hækkað vexti en hafa þurft að fá fyrirmæli ofan úr svörtuloftum til þess að lækka og hafa gert það seint og ekki jafn mikið. Fylgnin er meiri þegar að Seðlabankinn hefur hækkað vexti en lækkað, því miður.“ Innlent 2.10.2024 22:01 Hætt við að ein „aumingjaleg lækkun“ láti hjól hagkerfisins snúa hraðar á ný Yfirlýsing peningastefnunefndar til að réttlæta óvænta vaxtalækkun var lítið annað en „kirsuberjatínsla“, gögn sérstaklega dregin fram til að styðja við lækkun, en lítið gert með fyrri orð og gjörðir sem gæti komið niður á trúverðugleika Seðlabankans, að mati greiningar Arion, en ljóst sé að nefndarmenn hafi ekki verið samstíga. Hagfræðingar bankans fara nokkuð hörðum orðum um þá ákvörðun að lækka vexti, sem þeir eru ekki sannfærðir um að sé tekin á réttum tímapunkti, og búið sé að skapa væntingar um frekari vaxtalækkanir sem kunni að ýta undir þenslu og verðbólguþrýsting. Innherji 2.10.2024 20:39 „Við erum ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna“ Seðlabankinn lækkaði stýrivexti í fyrsta skipti í fjögur ár í morgun, um 0,25 prósentur. Varaseðlabankastjóri segir að við séum þó ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna. Hagkerfið verði að hægja meira á sér eigi þróunin að halda áfram niður á við. Viðskipti innlent 2.10.2024 18:31 Tekist að hefja vaxtalækkunarferlið án þess að búa til of miklar væntingar Markaðir brugðust við með afgerandi hætti eftir nokkuð óvænta vaxtalækkun Seðlabankans í morgun en hlutabréfaverð flestra félaga hækkaði skarpt og ávöxtunarkrafa stuttra ríkisbréfa lækkaði talsvert. Flestir markaðsaðilar vænta þess að peningastefnunefndin muni fylgja lækkuninni eftir með stærra skrefi í næsta mánuði – 50 punkta lækkun eða meira – en með ákvörðuninni í morgun sýndi Seðlabankinn framsýni með því að senda merki um að hann sé ekki fastur að horfa í „baksýnisspegilinn,“ að mati fjárfestis á skuldabréfamarkaði. Innherji 2.10.2024 16:37 ....og þá var eins og blessuð skepan skildi..... Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands kynnti það sem seðlabankastjóri kallaði í vor „aumingjalega stýrivaxtalækkun“ í morgun. Um leið var tekið fram að hænufet morgunsins væri ekki endilega ávísun á meiri lækkun á næstunni. Skoðun 2.10.2024 13:29 Vaxtahækkun bankanna vó þungt í ákvörðun Ásgeirs Seðlabankastjóri segir að ákvörðun viðskiptabankanna um að hækka verðtryggða útlánavexti hafi vegið þungt í ákvörðun hans um lækkun stýrivaxta. Peningastefnunefnd leit hins vegar alfarið fram hjá áhrifum gjaldfrjálsra skólamáltíða á verðbólguna. Viðskipti innlent 2.10.2024 10:54 Telur ljóst að vaxtalækkunarferlið sé hafið Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins segir ákvörðun Seðlabanka um lækkun vaxta um 25 punkta vera fagnaðarefni. Hann segir þó að hann hefði viljað sjá lækkun upp á 50 punkta en segir ljóst að vaxtalækkunarferlið sé hafið. Viðskipti innlent 2.10.2024 09:17 Ræðst í fyrstu vaxtalækkunina í fjögur ár samhliða minnkandi verðbólguþrýstingi Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 25 punkta, fyrsta vaxtalækkun nefndarinnar frá árslokum 2020, samhliða því að undirliggjandi verðbólga hefur minnkað, verðbólguálág lækkað og merki um frekari kólnun í efnahagslífinu. Mikil óvissa var um hvers mætti vænta við vaxtaákvörðun nefndarinnar, fjárfestar og markaðsaðilar skiptust í tvær fylkingar hvort hún myndi hefja vaxtalækkunarferlið, en nefndin undirstrikar hins vegar að kröftug innlend eftirspurn kalli á „varkárni.“ Innherji 2.10.2024 09:16 Bein útsending: Ásgeir og Rannveig rökstyðja lækkunina Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu og staðgengill formanns, munu gera grein fyrir ákvörðun peningastefnunefndarinnar um að lækka stýrivaxti á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Viðskipti innlent 2.10.2024 08:55 Lækkar stýrivextina í fyrsta sinn síðan í árslok 2020 Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 25 punkta og fara þeir því úr því að vera 9,25 prósent í 9 prósent. Þetta er í fyrsta sinn sem nefndin lækkar stýrivexti síðan í árslok 2020. Þeir hafa staðið í 9,25 prósentum síðan í ágúst á síðasta ári. Viðskipti innlent 2.10.2024 08:31 « ‹ 1 2 3 4 5 6 … 46 ›
Umframfé Arion banka gæti brátt numið yfir tuttugu milljörðum Þrátt fyrir talsverðar niðurfærslur á lánum þá var hagnaður Arion banka á þriðja fjórðungi, einkum vegna sögulega sterkrar afkomu af tryggingarekstrinum, vel umfram spár greinenda og ekki útséð með að bankinn geti náð arðsemismarkmiði sínu á árinu. Með innleiðingu á nýju bankaregluverki í upphafi nýs ár er áætlað að umfram eigið fé Arion, sem er núna talið vera allt að tuttugu milljarðar, aukist um liðlega fimm milljarða til viðbótar. Innherji 31.10.2024 13:02
Vísbendingar um að mælda verðbólgan sé að „megninu til gamalt vandamál“ Undirliggjandi verðbólguþrýstingur heldur áfram að lækka og nýjasta verðbólgumælingin, sem sýndi hana fara niður í 5,1 prósent, er „heilt yfir“ nokkuð góð og ætti að þýða að peningastefnunefnd getur haldið áfram með vaxtalækkunarferlið þegar hún kemur saman í nóvember, að mati hagfræðinga Arion banka. Ef litið er á verðbólguhraðann undanfarna þrjá mánuði er hún á ársgrundvelli komin í markmið Seðlabankans sem er vísbending um að mæld verðbólga núna sé að stórum hluta „gamalt vandamál.“ Innherji 31.10.2024 10:59
Fyrirsjáanleikinn ekki „sérlega mikill“ eftir ákvörðun Hagstofunnar Ákvörðun Hagstofunnar um að skilgreina fyrirhugað kílómetragjald á öll ökutæki sem veggjald þannig að það sé tekið inn í mælingu á vísitölu neysluverðs kemur á óvart, að mati hagfræðings, og sú nálgun ólík þeim alþjóðlegu stöðlum og regluverki sem stofnunin hefur í meginatriðum fylgt í sambærilegum málum. Hann telur að með þessari niðurstöðu sé fyrirsjáanleikinn ekki „sérlega mikill“ en ávöxtunarkrafa stuttra verðtryggðra ríkisbréfa lækkaði mikið á markaði í dag. Innherji 30.10.2024 16:48
Auknar líkur á annarri vaxtalækkun Fjármála- og efnahagsráðuneytið telur hjöðnun verbólgu, umfram það sem Seðlabankinn spáði í ágúst, auka líkur á því að bankinn lækki vexti við ákvörðun í nóvember. Hjöðnunin var drifin áfram af minni hækkun húsnæðis og segir ráðuneytið segir að spenna á húsnæðismarkaði virðist loks fara minnkandi. Viðskipti innlent 30.10.2024 16:32
Verðbólguhjöðnun í kortunum sem gæti opnað á stóra vaxtalækkun í nóvember Nokkuð skiptar skoðanir eru á meðal greinenda og hagfræðinga hversu hratt verðbólgan mun halda áfram að ganga niður þegar mælingin fyrir október verður kunngjörð síðar í vikunni, sú síðasta áður en peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman í næsta mánuði. Gangi bjartsýnustu spár eftir um að árstaktur verðbólgunnar muni lækka niður í fimm prósent ætti það að auka líkur á að Seðlabankinn telji forsendur til að íhuga að minnsta kosti 50 punkta vaxtalækkun. Innherji 28.10.2024 18:00
Seðlabankinn vill skoða að heimila lífeyrissjóðum að lána verðbréf Hægt væri að auka skilvirkni og dýpt verðbréfamarkaða hér á landi með því að veita íslenskum lífeyrissjóðum, langsamlega stærstu fjárfestunum á markaði, frekari heimildir til afleiðuviðskipta og jafnframt leyfa þeim að lána hlutabréf eða skuldabréf sín, að sögn Seðlabankans. Vegna stærðar sinnar getur hegðun lífeyrissjóða heft „veruleg áhrif“ á verðmyndun á markaði og því sé jákvætt fyrir fjármálastöðuga að skoða leiðir sem gætu aukið þátttöku annarra fjárfesta. Innherji 24.10.2024 10:25
Stamaði svo mikið að hann varð að fara í talþjálfun í fimm ár Seðlabankastjórinn Ásgeir Jónsson bjóst við að verða bóndi, átti erfitt með lestur í æsku en kláraði á endanum doktorspróf. Lífið 23.10.2024 10:31
Nánast samstaða um vaxtalækkun og nefndin segir „áhrif hárra raunvaxta skýr“ Þótt einn nefndarmaður hefði fremur kosið að halda stýrivöxtum óbreyttum þá samþykktu allir í peningastefnunefnd að ráðast í fyrstu vaxtalækkun Seðlabankans í tæplega fjögur ár fyrr í þessum mánuði, en líklegt er talið að raunvaxtastigið eigi eftir að hækka frekar á næstunni. Samstaða nefndarinnar um 25 punkta lækkun, meðal annars með vísun til þess að útlit er fyrir að hægja sé hratt á umsvifum á húsnæðismarkaði og í efnahagslífinu, eykur enn líkur á að haldið verði áfram með vaxtalækkunarferlið í næsta mánuði – og sú lækkun verði þá stærri í sniðum. Innherji 16.10.2024 18:41
Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Allir nefndarmenn peningastefnunefndar Seðlabankans vildu lækka stýrivexti um 0,25 prósentur eins og var gert fyrir tveimur vikum. Herdís Steingrímsdóttir hefði þó fremur kosið að halda vöxtum óbreyttum. Viðskipti innlent 16.10.2024 16:41
Hvað verður um verðbólguna í janúar? Nokkuð miklar líkur eru á því að verðbólga muni lækka mjög hratt í upphafi næsta árs og það hraðar en bjartsýnustu verðbólguspár gera ráð fyrir. Sú þróun mun skapa umhverfi til skarpara og hraðara vaxtalækkunarferlis en flestir telja líklegt. Innherji 16.10.2024 09:19
Sjö vilja verða varaseðlabankastjóri Sjö umsóknir bárustu um embætti varaseðlabankastjóra peningastefnu. Fimm umsækjenda starfa þegar í Seðlabankanum. Innlent 11.10.2024 11:11
Ekki meira innflæði í ríkisverðbréf í sjö mánuði með kaupum erlendra sjóða Eftir að erlendir fjárfestar höfðu verið nettó seljendur á ríkisverðbréfum á undanförnum mánuði varð talsverður viðsnúningur í september þegar þeir fjárfestu fyrir samtals nærri sjö milljarða króna, einkum í lengri skuldabréfum. Allt útlit er fyrir að kaup sjóðanna hafi haldið áfram í þessum mánuði og átt sinn þátt í skarpri gengisstyrkingu krónunnar. Innherji 10.10.2024 13:03
Krónan styrkist þegar ríkisbréfin komust á radarinn hjá erlendum sjóðum Eftir að hafa styrkst um meira en þrjú prósent á örfáum vikum er gengi krónunnar núna nálægt sínu hæsta gildi á móti evrunni á þessu ári. Krónan veiktist nokkuð skarpt í ágústmánuði, einkum þegar fjárfestar fóru að vinda ofan af framvirkum stöðum sínum, en nú hefur sú þróun snúist við samhliða því að erlendir sjóðir hafa verið að sýna íslenskum ríkisbréfum aukinn áhuga, að sögn sérfræðinga á markaði. Innherji 9.10.2024 10:07
Hagkerfið á vendipunkti og hætta á að tekjum sé ofspáð en gjöldin vanmetin Mikil vaxtabyrði ríkissjóðs, umtalsvert hærri borið saman við flestar aðrar Evrópuþjóðir, þýðir að það þarf að nást meiri afgangur á frumjöfnuði en núverandi áætlanir gera ráð fyrir eigi að takast að grynnka skuldahlutfallinu, að mati Samtaka atvinnulífsins. Hættan er að hagkerfið sé á vendipunkti, þar sem tekjum sé ofspáð en gjöldum áfram vanspáð, en Seðlabankinn telur að ljósi þróunar verðbólgu sé „brýnt“ að ekki verði vikið frá því að beita aðhaldi í ríkisfjármálum á komandi misserum. Innherji 5.10.2024 15:57
Eignafólk græðir mikið á vaxtastefnu Seðlabankans Allir vita að bankarnir hafa grætt mikið á þeim úrræðum sem Seðlabankinn hefur beitt gegn verðbólgunni. Hávaxtastefnan hefur verið megininntak þessara aðgerða Seðlabankans. Bankarnir hafa skilað methagnaði síðustu ár og það skilar sér síðan til stjórnenda bankanna í auknum bónusum og miklum ávinningi af kaupréttarsamningum. Skoðun 5.10.2024 12:03
Bankarnir farið „óvarlega“ þegar verðtryggingarmisvægi þeirra margfaldaðist Mikill vöxtur í verðtryggðum útlánum stóru viðskiptabankanna til heimila og fyrirtækja án þess að þeir væru með verðtryggða fjármögnun á móti þeim eignum hefur valdið því að verðtryggingarmisvægi þeirra er í hæstu hæðum en seðlabankastjóri telur að bankarnir hafi þar farið „heldur óvarlega.“ Meira en eitt ár er liðið síðan allar reglur sem kváðu á um lágmarks binditíma á verðtryggðar innstæður í bönkum voru afnumdar en frá þeim tíma hefur hins vegar verið óveruleg aukning í slíkum innstæðum. Innherji 3.10.2024 16:56
Indó lækkar líka vexti Sparisjóðurinn Indó hefur ákveðið að lækka vexti sína í kjölfar stýrivaxtalækkunar Seðlabankans. Framkvæmdastjóri sjóðsins segir eðlilegt að fjármálafyrirtæki lækki vexti sína þegar Seðlabankinnn gerir það, alveg eins og það er eðlilegt að hækka vexti þegar stýrivextir hækka. Viðskipti innlent 3.10.2024 15:30
Vaxtalækkun hænuskref í rétta átt en ekki megi gleyma nýlegum hækkunum Arion banki hefur tilkynnt vaxtalækkun í kjölfar ákvörðunar Seðlabanka Íslands um að lækka stýrivexti. Formaður Neytendasamtakanna fagnar þessu en segir ekki mega gleyma að íbúðalánavextir á Íslandi séu með þeim hæstu á Vesturlöndum og bankarnir séu nýbúnir að hækka þá. Neytendur 3.10.2024 12:31
Arion fyrstur til að tilkynna lækkun Arion banki hefur tilkynnt vaxtalækkun í kjölfar ákvörðunar Seðlabanka Íslands um að lækka stýrivexti. Óverðtryggðir vextir íbúðalána lækka um allt að 0,6 prósentustig en verðtryggðir vextir standa í stað. Viðskipti innlent 3.10.2024 10:44
Betra að byrja en bíða þangað til hagkerfið er „sannarlega komið í kreppu“ Peningastefnunefnd mat áhættuna af því að byrja vaxtalækkunarferlið minni heldur en að bíða enn lengur og þurfa þá mögulega ráðast í hraðar lækkanir samhliða því að hagkerfið væri að sigla inn í „kreppu,“ að sögn seðlabankastjóra, sem hefur væntingar um að verðbólgan sé að fara koma skarpt niður og aðhaldsstigið gæti því aukist enn frekar. Falli hlutirnir með nefndinni fram að næsta fundi seint í nóvember megi búast við frekari lækkunum en nefndin var ekki sérstaklega með augun á vaxtalækkunum stóru erlendu seðlabankanna að undanförnu við ákvörðun sína þótt ljóst sé að Ísland er mjög tengt þróuninni í Bandaríkjunum. Innherji 3.10.2024 07:50
Nú beinast öll spjót að bönkunum „Við höfum reyndar því miður dæmi um það að bankarnir bregðist mjög hratt og örugglega við þegar að seðlabankinn hefur hækkað vexti en hafa þurft að fá fyrirmæli ofan úr svörtuloftum til þess að lækka og hafa gert það seint og ekki jafn mikið. Fylgnin er meiri þegar að Seðlabankinn hefur hækkað vexti en lækkað, því miður.“ Innlent 2.10.2024 22:01
Hætt við að ein „aumingjaleg lækkun“ láti hjól hagkerfisins snúa hraðar á ný Yfirlýsing peningastefnunefndar til að réttlæta óvænta vaxtalækkun var lítið annað en „kirsuberjatínsla“, gögn sérstaklega dregin fram til að styðja við lækkun, en lítið gert með fyrri orð og gjörðir sem gæti komið niður á trúverðugleika Seðlabankans, að mati greiningar Arion, en ljóst sé að nefndarmenn hafi ekki verið samstíga. Hagfræðingar bankans fara nokkuð hörðum orðum um þá ákvörðun að lækka vexti, sem þeir eru ekki sannfærðir um að sé tekin á réttum tímapunkti, og búið sé að skapa væntingar um frekari vaxtalækkanir sem kunni að ýta undir þenslu og verðbólguþrýsting. Innherji 2.10.2024 20:39
„Við erum ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna“ Seðlabankinn lækkaði stýrivexti í fyrsta skipti í fjögur ár í morgun, um 0,25 prósentur. Varaseðlabankastjóri segir að við séum þó ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna. Hagkerfið verði að hægja meira á sér eigi þróunin að halda áfram niður á við. Viðskipti innlent 2.10.2024 18:31
Tekist að hefja vaxtalækkunarferlið án þess að búa til of miklar væntingar Markaðir brugðust við með afgerandi hætti eftir nokkuð óvænta vaxtalækkun Seðlabankans í morgun en hlutabréfaverð flestra félaga hækkaði skarpt og ávöxtunarkrafa stuttra ríkisbréfa lækkaði talsvert. Flestir markaðsaðilar vænta þess að peningastefnunefndin muni fylgja lækkuninni eftir með stærra skrefi í næsta mánuði – 50 punkta lækkun eða meira – en með ákvörðuninni í morgun sýndi Seðlabankinn framsýni með því að senda merki um að hann sé ekki fastur að horfa í „baksýnisspegilinn,“ að mati fjárfestis á skuldabréfamarkaði. Innherji 2.10.2024 16:37
....og þá var eins og blessuð skepan skildi..... Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands kynnti það sem seðlabankastjóri kallaði í vor „aumingjalega stýrivaxtalækkun“ í morgun. Um leið var tekið fram að hænufet morgunsins væri ekki endilega ávísun á meiri lækkun á næstunni. Skoðun 2.10.2024 13:29
Vaxtahækkun bankanna vó þungt í ákvörðun Ásgeirs Seðlabankastjóri segir að ákvörðun viðskiptabankanna um að hækka verðtryggða útlánavexti hafi vegið þungt í ákvörðun hans um lækkun stýrivaxta. Peningastefnunefnd leit hins vegar alfarið fram hjá áhrifum gjaldfrjálsra skólamáltíða á verðbólguna. Viðskipti innlent 2.10.2024 10:54
Telur ljóst að vaxtalækkunarferlið sé hafið Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins segir ákvörðun Seðlabanka um lækkun vaxta um 25 punkta vera fagnaðarefni. Hann segir þó að hann hefði viljað sjá lækkun upp á 50 punkta en segir ljóst að vaxtalækkunarferlið sé hafið. Viðskipti innlent 2.10.2024 09:17
Ræðst í fyrstu vaxtalækkunina í fjögur ár samhliða minnkandi verðbólguþrýstingi Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 25 punkta, fyrsta vaxtalækkun nefndarinnar frá árslokum 2020, samhliða því að undirliggjandi verðbólga hefur minnkað, verðbólguálág lækkað og merki um frekari kólnun í efnahagslífinu. Mikil óvissa var um hvers mætti vænta við vaxtaákvörðun nefndarinnar, fjárfestar og markaðsaðilar skiptust í tvær fylkingar hvort hún myndi hefja vaxtalækkunarferlið, en nefndin undirstrikar hins vegar að kröftug innlend eftirspurn kalli á „varkárni.“ Innherji 2.10.2024 09:16
Bein útsending: Ásgeir og Rannveig rökstyðja lækkunina Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu og staðgengill formanns, munu gera grein fyrir ákvörðun peningastefnunefndarinnar um að lækka stýrivaxti á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Viðskipti innlent 2.10.2024 08:55
Lækkar stýrivextina í fyrsta sinn síðan í árslok 2020 Peningastefnunefnd Seðlabankans hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 25 punkta og fara þeir því úr því að vera 9,25 prósent í 9 prósent. Þetta er í fyrsta sinn sem nefndin lækkar stýrivexti síðan í árslok 2020. Þeir hafa staðið í 9,25 prósentum síðan í ágúst á síðasta ári. Viðskipti innlent 2.10.2024 08:31