Lögreglumál Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Átta hafa verið ákærð fyrir stórfelld brot í nánu sambandi og líkamsárásir gegn konu sem tengist þeim öllum fjölskylduböndum. Faðir konunnar greindi lögreglu frá því að ef fjölskyldan byggi í „einhverju arabalandi“ væri hann búinn að „slátra“ dóttur sinni. Innlent 31.5.2024 13:06 Maðurinn sem féll í Fnjóská fannst látinn Tvítugur karlmaður sem féll í Fnjóská á sjöunda tímanum í gærkvöldi fannst látinn. Leit hefur staðið yfir að honum síðan klukkan 18:30 í gærkvöldi og lauk nú á tólfta tímanum. Innlent 31.5.2024 11:34 Þakkar fyrir að hafa ekki þurft að beita kylfum Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að vel hafi gengið að vinna bug á mótmælum við ríkisstjórnarfund í morgun. Þau hafi verið agressív. Lögregla hafi reynt að beita vægari úrræðum og sem betur fer ekki þurft að beita kylfum. Innlent 31.5.2024 11:21 Notuðu piparúða á mótmælendur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu notaði piparúða á mótmælum á vegum samtakanna Ísland-Palestínu. Um tíu mótmælendur eru illa haldnir en auk þess slasaðist lögreglumaður þegar ráðherrabíl var ekið á hann. Lögregla segir mótmælendur ekki hafa fylgt fyrirmælum. Innlent 31.5.2024 10:42 Sérfræðingar í straumvatnsleit aðstoða við leit í Fnjóská Enn stendur yfir leit á vettvangi við Fnjóská vestast í Dalsmynni að manninum sem féll í ána í gærkvöldi. Þegar maðurinn hvarf ofan í ána hafði hann verið við hana með þremur félögum sínum. Að leitinni koma nú sérfræðingar í straumvatnsleit og búnaði. Innlent 31.5.2024 10:06 Leitin ekki borið árangur í nótt Leit að karlmanni um tvítugt sem féll í Fnjóská hefur enn ekki borið árangur. Leitað hefur verið að manninum síðan um klukkan 18.30 í gær. Fram kemur í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra að viðbragðsaðilar hafi verið við leit að manninum í nótt og að leitin hafi ekki borið árangur. Þegar maðurinn hvarf ofan í ánna var hann með þremur félögum sínum. Innlent 31.5.2024 07:08 Bíða krufningar til að varpa ljósi á atburðarásina Sambýlisfólk á sjötugsaldri sem fannst látið í heimahúsi í Bolungarvík hafði verið látið í einhvern tíma áður en lögregla fékk ábendingu um málið. Lögreglustjórinn segir krufningu geta leitt í ljós hvort eitthvað saknæmt átti sér stað, og hvenær fólkið lést. Innlent 28.5.2024 20:56 Héraðsdómur ruddur vegna fjölskyldutengsla og fyrri starfa dómara Landsréttur hefur rutt allan Héraðsdóm Reykjavíkur í máli Örnu McClure, yfirlögfræðings Samherja. Hún krefst þess að rannsókn Héraðssaksóknara á Samherjamálinu svokallaða verði felld niður hvað hana varðar. Hún hefur verið með réttarstöðu sakbornings í tæp fjögur ár. Innlent 28.5.2024 17:20 Áfengi og fíkniefni mældust í stýrimanninum Við handtöku stýrimanns á fraktskipinu Longdawn, sem talið er að hafa hvolft strandveiðibátnum Höddu HF við Garðskaga um miðjan maí, var tekið öndunarsýni af honum og það reyndist jákvætt fyrir áfengi. Þá reyndist sýni einnig jákvætt fyrir áhrifum kannabiss og slævandi lyfja. Innlent 28.5.2024 16:16 Voru látin í einhvern tíma áður en lögregla fór inn Sambýlisfólk á sjötugsaldri hafði verið látið í einhvern tíma áður en lögreglumenn fundu lík þess í húsi í Bolungarvík í gærkvöldi. Enginn er með réttarstöðu grunaðs í tengslum við andlátin en lögreglustjóri segir að krufning eigi eftir að skýra myndina betur. Innlent 28.5.2024 14:16 Mótor bátsins var of stór og mennirnir ekki í björgunarvestum Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur aðalorsök sjóslyss utan við Njarðvík síðasta sumar hafa verið of stór og öflugur utanborðsmótor á bátnum. Karlmaður á sjötugsaldri lést í slysinu en félagi hans komst lífs af. Innlent 28.5.2024 14:13 Ástandið í Hafnarfirði geti haft langvarandi áhrif á börn Á mánaðartímabili hafa komið upp fjögur tilvik þar sem veist er að eða setið um börn í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Theodór Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi, segir þetta ástand geta haft mjög alvarleg áhrif á börnin. Þau geti alið með sér ótta, kvíða eða þunglyndi. Tilvikin eru enn til rannsóknar hjá lögreglu sem er með aukið eftirlit í hverfinu með foreldrum. Innlent 28.5.2024 11:18 „Okkar hlutverk að halda utan um hvert annað“ Bæjarstjórinn í Bolungarvík segir samfélagið í áfalli vegna andláts sambýlisfólks á sjötugsaldri í gærkvöldi. Innlent 28.5.2024 11:10 Tvö látin en ekkert bendi til saknæms atburðar Lögreglan á Vestfjörðum segir ekkert benda til þess að saknæmur atburður hafi átt sér stað í Bolungarvík í gær. Lögreglan hefur til rannsóknar andlát tveggja einstaklinga í heimahúsi í bænum en um er að ræða sambýlisfólk á sjötugsaldri. Innlent 28.5.2024 09:40 Enginn í haldi í tengslum við mannslát í Bolungarvík Yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum segir að enginn hafi verið handtekinn í tengslum við mannslát í Bolungarvík í gær. Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var send á staðinn í gærkvöldi. Innlent 28.5.2024 08:47 Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Lögreglan á Vestfjörðum kallaði í kvöld eftir aðstoð tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur lögregla til rannsóknar andlát í Bolungarvík. Lögreglustjóri vill lítið sem ekkert tjá sig um málið. Innlent 27.5.2024 23:00 Huldumaður bað um skóflu, límband, hanska og kúbein Gæsluvarðhald Péturs Jökuls Jónassonar hefur verið framlengt til átjánda júní næstkomandi, en hann hefur verið ákærður fyrir meintan þátt sinn í stóra kókaínmálinu. Innlent 27.5.2024 19:06 Ungmenni kveiktu í skólabókum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um ungmenni að kveikja eld í Hlíðahverfi í Reykjavík í dag. Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að krakkarnir hefðu verið að kveikja í skólabókunum sínum. Innlent 27.5.2024 17:10 Einn til viðbótar í gæsluvarðhald en öðrum sleppt Einn maður til viðbótar hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn Lögreglunnar á Suðurlandi á frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í heimahúsi í Reykholti. Öðrum einstaklingi hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi en hefur áfram stöðu sakbornings í málinu. Innlent 27.5.2024 14:52 Aðalmeðferð í Bátavogsmálinu fer fram í sumar Aðalmeðferð í máli Dagbjartar Rúnarsdóttur, sem er ákærð fyrir að hafa orðið manni að bana í Bátavogi í september í september, fer fram 26. til 28. júní. Dagbjört neitar sök í málinu en á meðal rannsóknargagna eru tveggja tíma mynd- og hljóðupptökur sem lögregla segir sýna hana pynta þann látna. Innlent 27.5.2024 12:42 Höfðu afskipti af manni sem var að „bera sig og hrista“ Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst heldur óvenjuleg tilkynning í gærkvöldi og nótt þar sem greint var frá manni sem var að „bera sig og hrista“ í póstnúmerinu 108. Innlent 27.5.2024 06:14 Dæmi um að börn þori ekki út í frímínútur Foreldrafélög grunnskóla í Hafnarfirði hafa stóreflt foreldrarölt vegna manns sem veist hefur að börnum. Börn eru mörg hver afar slegin vegna málsins. Innlent 26.5.2024 19:16 Tónleikum Nicki Minaj aflýst vegna fíkniefnahandtöku Tilætluðum tónleikum rappstjörnunnar Nicki Minaj í Manchester í gær var aflýst vegna óvæntrar handtöku stjörnunnar á Schiphol-flugvelli í Amsterdam. Hún var handtekin vegna gruns um að vera með fíkniefni undir höndum og var á endanum sektuð og sleppt lausri. Tónlist 26.5.2024 10:07 Lögreglan náði lausum grís Lögreglunni á Norðurlandi eystra barst tilkynning um að grís eða lítið svín sem virðist hafa sloppið og hafnað í bakgarði í Kjarnagötu á Akureyri. Ekki liggur fyrir hver eigandi gríssins er eða þá hvernig grísnum tókst að sleppa. Innlent 25.5.2024 16:41 Veita viðtal um Hamraborgarmálið í fyrsta sinn: Viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað gert illt verra Öryggismiðstöðin hefur aukið viðbúnað í verðmætaflutningabílum sínum, eftir að tugum milljóna var stolið úr bíl fyrirtækisins í Hamraborg. Þó að þjófarnir hafi aðeins verið örfáar sekúndur að brjótast inn í bílinn segir framkvæmdastjóri bifreiðina sjálfa í raun aukaatriði í málinu. Þá telur hann að viðvörunarkerfi hefði getað stefnt starfsmönnum í hættu. Verkferlum hafi verið fylgt og erfitt að sjá hvað hægt hefði verið að gera öðruvísi. Innlent 24.5.2024 20:12 Stöðvaði innbrotsþjóf sem var hálfur inni í bílnum Umráðamaður bifreiðar náði að koma í veg fyrir að innbrotsþjófur kæmist burt eftir að hann greip þjófinn glóðvolgan. Þjófurinn var hálfur inni í bílnum þegar komið var að honum. Innlent 24.5.2024 17:55 Gul viðvörun: Fyrsta trampólínið þegar fokið Gul viðvörun tekur gildi klukkan 08 víða um land, þar á meðal á höfuðborgarsvæðinu. Fyrsta trampólínið er þegar fokið í Kópavogi. Veður 24.5.2024 07:35 Áfram í fangelsi þótt gæsluvarðhaldskröfu hafi verið hafnað Litháenskur karlmaður sem er grunaður um að hafa valdið dauða samlanda síns í sumarhúsabyggð í Kiðjabergi í apríl verður áfram í haldi þrátt fyrir að dómari hafi hafnað gæsluvarðhaldskröfu lögreglu. Maðurinn afplánar nú eldri fangelsisdóm. Innlent 23.5.2024 20:31 Lögregla herðir leitina að karlmanni sem veitist að börnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú fjögur tilvik þar sem karlmaður veittist að börnum í Hafnarfirði. Þetta segir Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. Innlent 23.5.2024 14:02 Tveir handteknir í tveimur aðskildum málum vegna ofbeldis í heimahúsi Tveir voru handteknir í tveimur aðskildum málum í gærkvöldi eða nótt vegna ofbeldis í heimahúsi. Annar einstaklingurinn reyndist mjög ölvaður en hinn reyndi að slá til lögreglumanns. Innlent 23.5.2024 06:27 « ‹ 1 2 3 4 5 6 … 248 ›
Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Átta hafa verið ákærð fyrir stórfelld brot í nánu sambandi og líkamsárásir gegn konu sem tengist þeim öllum fjölskylduböndum. Faðir konunnar greindi lögreglu frá því að ef fjölskyldan byggi í „einhverju arabalandi“ væri hann búinn að „slátra“ dóttur sinni. Innlent 31.5.2024 13:06
Maðurinn sem féll í Fnjóská fannst látinn Tvítugur karlmaður sem féll í Fnjóská á sjöunda tímanum í gærkvöldi fannst látinn. Leit hefur staðið yfir að honum síðan klukkan 18:30 í gærkvöldi og lauk nú á tólfta tímanum. Innlent 31.5.2024 11:34
Þakkar fyrir að hafa ekki þurft að beita kylfum Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að vel hafi gengið að vinna bug á mótmælum við ríkisstjórnarfund í morgun. Þau hafi verið agressív. Lögregla hafi reynt að beita vægari úrræðum og sem betur fer ekki þurft að beita kylfum. Innlent 31.5.2024 11:21
Notuðu piparúða á mótmælendur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu notaði piparúða á mótmælum á vegum samtakanna Ísland-Palestínu. Um tíu mótmælendur eru illa haldnir en auk þess slasaðist lögreglumaður þegar ráðherrabíl var ekið á hann. Lögregla segir mótmælendur ekki hafa fylgt fyrirmælum. Innlent 31.5.2024 10:42
Sérfræðingar í straumvatnsleit aðstoða við leit í Fnjóská Enn stendur yfir leit á vettvangi við Fnjóská vestast í Dalsmynni að manninum sem féll í ána í gærkvöldi. Þegar maðurinn hvarf ofan í ána hafði hann verið við hana með þremur félögum sínum. Að leitinni koma nú sérfræðingar í straumvatnsleit og búnaði. Innlent 31.5.2024 10:06
Leitin ekki borið árangur í nótt Leit að karlmanni um tvítugt sem féll í Fnjóská hefur enn ekki borið árangur. Leitað hefur verið að manninum síðan um klukkan 18.30 í gær. Fram kemur í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra að viðbragðsaðilar hafi verið við leit að manninum í nótt og að leitin hafi ekki borið árangur. Þegar maðurinn hvarf ofan í ánna var hann með þremur félögum sínum. Innlent 31.5.2024 07:08
Bíða krufningar til að varpa ljósi á atburðarásina Sambýlisfólk á sjötugsaldri sem fannst látið í heimahúsi í Bolungarvík hafði verið látið í einhvern tíma áður en lögregla fékk ábendingu um málið. Lögreglustjórinn segir krufningu geta leitt í ljós hvort eitthvað saknæmt átti sér stað, og hvenær fólkið lést. Innlent 28.5.2024 20:56
Héraðsdómur ruddur vegna fjölskyldutengsla og fyrri starfa dómara Landsréttur hefur rutt allan Héraðsdóm Reykjavíkur í máli Örnu McClure, yfirlögfræðings Samherja. Hún krefst þess að rannsókn Héraðssaksóknara á Samherjamálinu svokallaða verði felld niður hvað hana varðar. Hún hefur verið með réttarstöðu sakbornings í tæp fjögur ár. Innlent 28.5.2024 17:20
Áfengi og fíkniefni mældust í stýrimanninum Við handtöku stýrimanns á fraktskipinu Longdawn, sem talið er að hafa hvolft strandveiðibátnum Höddu HF við Garðskaga um miðjan maí, var tekið öndunarsýni af honum og það reyndist jákvætt fyrir áfengi. Þá reyndist sýni einnig jákvætt fyrir áhrifum kannabiss og slævandi lyfja. Innlent 28.5.2024 16:16
Voru látin í einhvern tíma áður en lögregla fór inn Sambýlisfólk á sjötugsaldri hafði verið látið í einhvern tíma áður en lögreglumenn fundu lík þess í húsi í Bolungarvík í gærkvöldi. Enginn er með réttarstöðu grunaðs í tengslum við andlátin en lögreglustjóri segir að krufning eigi eftir að skýra myndina betur. Innlent 28.5.2024 14:16
Mótor bátsins var of stór og mennirnir ekki í björgunarvestum Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur aðalorsök sjóslyss utan við Njarðvík síðasta sumar hafa verið of stór og öflugur utanborðsmótor á bátnum. Karlmaður á sjötugsaldri lést í slysinu en félagi hans komst lífs af. Innlent 28.5.2024 14:13
Ástandið í Hafnarfirði geti haft langvarandi áhrif á börn Á mánaðartímabili hafa komið upp fjögur tilvik þar sem veist er að eða setið um börn í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Theodór Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi, segir þetta ástand geta haft mjög alvarleg áhrif á börnin. Þau geti alið með sér ótta, kvíða eða þunglyndi. Tilvikin eru enn til rannsóknar hjá lögreglu sem er með aukið eftirlit í hverfinu með foreldrum. Innlent 28.5.2024 11:18
„Okkar hlutverk að halda utan um hvert annað“ Bæjarstjórinn í Bolungarvík segir samfélagið í áfalli vegna andláts sambýlisfólks á sjötugsaldri í gærkvöldi. Innlent 28.5.2024 11:10
Tvö látin en ekkert bendi til saknæms atburðar Lögreglan á Vestfjörðum segir ekkert benda til þess að saknæmur atburður hafi átt sér stað í Bolungarvík í gær. Lögreglan hefur til rannsóknar andlát tveggja einstaklinga í heimahúsi í bænum en um er að ræða sambýlisfólk á sjötugsaldri. Innlent 28.5.2024 09:40
Enginn í haldi í tengslum við mannslát í Bolungarvík Yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum segir að enginn hafi verið handtekinn í tengslum við mannslát í Bolungarvík í gær. Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var send á staðinn í gærkvöldi. Innlent 28.5.2024 08:47
Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Lögreglan á Vestfjörðum kallaði í kvöld eftir aðstoð tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur lögregla til rannsóknar andlát í Bolungarvík. Lögreglustjóri vill lítið sem ekkert tjá sig um málið. Innlent 27.5.2024 23:00
Huldumaður bað um skóflu, límband, hanska og kúbein Gæsluvarðhald Péturs Jökuls Jónassonar hefur verið framlengt til átjánda júní næstkomandi, en hann hefur verið ákærður fyrir meintan þátt sinn í stóra kókaínmálinu. Innlent 27.5.2024 19:06
Ungmenni kveiktu í skólabókum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um ungmenni að kveikja eld í Hlíðahverfi í Reykjavík í dag. Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að krakkarnir hefðu verið að kveikja í skólabókunum sínum. Innlent 27.5.2024 17:10
Einn til viðbótar í gæsluvarðhald en öðrum sleppt Einn maður til viðbótar hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn Lögreglunnar á Suðurlandi á frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í heimahúsi í Reykholti. Öðrum einstaklingi hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi en hefur áfram stöðu sakbornings í málinu. Innlent 27.5.2024 14:52
Aðalmeðferð í Bátavogsmálinu fer fram í sumar Aðalmeðferð í máli Dagbjartar Rúnarsdóttur, sem er ákærð fyrir að hafa orðið manni að bana í Bátavogi í september í september, fer fram 26. til 28. júní. Dagbjört neitar sök í málinu en á meðal rannsóknargagna eru tveggja tíma mynd- og hljóðupptökur sem lögregla segir sýna hana pynta þann látna. Innlent 27.5.2024 12:42
Höfðu afskipti af manni sem var að „bera sig og hrista“ Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst heldur óvenjuleg tilkynning í gærkvöldi og nótt þar sem greint var frá manni sem var að „bera sig og hrista“ í póstnúmerinu 108. Innlent 27.5.2024 06:14
Dæmi um að börn þori ekki út í frímínútur Foreldrafélög grunnskóla í Hafnarfirði hafa stóreflt foreldrarölt vegna manns sem veist hefur að börnum. Börn eru mörg hver afar slegin vegna málsins. Innlent 26.5.2024 19:16
Tónleikum Nicki Minaj aflýst vegna fíkniefnahandtöku Tilætluðum tónleikum rappstjörnunnar Nicki Minaj í Manchester í gær var aflýst vegna óvæntrar handtöku stjörnunnar á Schiphol-flugvelli í Amsterdam. Hún var handtekin vegna gruns um að vera með fíkniefni undir höndum og var á endanum sektuð og sleppt lausri. Tónlist 26.5.2024 10:07
Lögreglan náði lausum grís Lögreglunni á Norðurlandi eystra barst tilkynning um að grís eða lítið svín sem virðist hafa sloppið og hafnað í bakgarði í Kjarnagötu á Akureyri. Ekki liggur fyrir hver eigandi gríssins er eða þá hvernig grísnum tókst að sleppa. Innlent 25.5.2024 16:41
Veita viðtal um Hamraborgarmálið í fyrsta sinn: Viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað gert illt verra Öryggismiðstöðin hefur aukið viðbúnað í verðmætaflutningabílum sínum, eftir að tugum milljóna var stolið úr bíl fyrirtækisins í Hamraborg. Þó að þjófarnir hafi aðeins verið örfáar sekúndur að brjótast inn í bílinn segir framkvæmdastjóri bifreiðina sjálfa í raun aukaatriði í málinu. Þá telur hann að viðvörunarkerfi hefði getað stefnt starfsmönnum í hættu. Verkferlum hafi verið fylgt og erfitt að sjá hvað hægt hefði verið að gera öðruvísi. Innlent 24.5.2024 20:12
Stöðvaði innbrotsþjóf sem var hálfur inni í bílnum Umráðamaður bifreiðar náði að koma í veg fyrir að innbrotsþjófur kæmist burt eftir að hann greip þjófinn glóðvolgan. Þjófurinn var hálfur inni í bílnum þegar komið var að honum. Innlent 24.5.2024 17:55
Gul viðvörun: Fyrsta trampólínið þegar fokið Gul viðvörun tekur gildi klukkan 08 víða um land, þar á meðal á höfuðborgarsvæðinu. Fyrsta trampólínið er þegar fokið í Kópavogi. Veður 24.5.2024 07:35
Áfram í fangelsi þótt gæsluvarðhaldskröfu hafi verið hafnað Litháenskur karlmaður sem er grunaður um að hafa valdið dauða samlanda síns í sumarhúsabyggð í Kiðjabergi í apríl verður áfram í haldi þrátt fyrir að dómari hafi hafnað gæsluvarðhaldskröfu lögreglu. Maðurinn afplánar nú eldri fangelsisdóm. Innlent 23.5.2024 20:31
Lögregla herðir leitina að karlmanni sem veitist að börnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú fjögur tilvik þar sem karlmaður veittist að börnum í Hafnarfirði. Þetta segir Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. Innlent 23.5.2024 14:02
Tveir handteknir í tveimur aðskildum málum vegna ofbeldis í heimahúsi Tveir voru handteknir í tveimur aðskildum málum í gærkvöldi eða nótt vegna ofbeldis í heimahúsi. Annar einstaklingurinn reyndist mjög ölvaður en hinn reyndi að slá til lögreglumanns. Innlent 23.5.2024 06:27