Lífið

Glæsihús Gerðar í Blush aftur á sölu

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Engin kynlífstæki virðast í fljótu bragði vera falin á fasteignaauglýsingu Gerðar í þetta sinn. Hún var sektuð um 200 þúsund krónur á síðasta ári fyrir duldar auglýsingar. 
Engin kynlífstæki virðast í fljótu bragði vera falin á fasteignaauglýsingu Gerðar í þetta sinn. Hún var sektuð um 200 þúsund krónur á síðasta ári fyrir duldar auglýsingar. 

Gerður Huld Arinbjarnardóttir, eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush, og kærastinn hennar Jakob Fannar Hansen hafa sett glæsilegt einbýlishús sitt í Kópavogi á sölu. Húsið var einnig á sölu fyrir tveimur árum en á þeim tíma hefur fasteignaverð þess hækkað um tæpar sjötíu milljónir.

Einbýlishúsið, sem er staðsett í Þrymsölum í Kópavogi, er tveggja hæða og skráð 404,3 fermetrar. Eigninni hefur verið skipt upp í tvær íbúðir og telur samtals sex svefnherbergi og fjögur baðherbergi. Ásett verð er 249,9 milljónir.

Vísir fjallaði um það árið 2022 þegar húsið fór á sölu. Þá var óskað eftir tilboði í eignina en fasteignamatið var 161,6 milljónir. Húsið er í dag metið á 227,2 milljónir.

Gerður og Jakob eru að byggja sér draumahúsið sitt í Hveragerði. Í samtali við Vísi á sínum tíma greindi Gerður frá því að þar ættu þau fjölskyldu og vini sem þau hlökkuðu mikið til að vera nær. 

Jakob bjó allt sitt líf þar og flutti bara í bæinn þegar við byrjuðum að búa saman.

Hún sagði að það yrði erfitt að kveðja húsið í Kópavogi en foreldrar hennar byggðu það. Húsið er staðsett nálægt golfvellinum GKG með stórbrotnu útsýni.

Sektuð vegna dulinna auglýsinga

Á síðasta ári var Blush gert að greiða 200 þúsund króna sekt vegna dulinna auglýsinga. Birna Rún Eiríksdóttir, leikkona, vakti mikla athygli þegar hún birti myndband á samfélagsmiðlinum Tiktok þar sem hún sýndi frá fasteignaauglýsingu Gerðar. Þar benti hún á að hinum ýmsu kynlífstækjum hafði verið dreift um húsið. Neytendastofa tók málið til rannsóknar með tilliti til þess hvort um dulda auglýsingu væri að ræða og úrskurðaði síðar að svo væri. 

Í fljótu bragði virðast ekki vera nein kynlífstæki falin á fasteignamyndunum í þetta sinn. Nánari upplýsingar um eignina má finna á Fasteignavef Vísis.

Glæsilegt útsýni er úr stofunni yfir golfvöll GKG.
Húsið er afar smekklega innréttað. 
Baðherbergið er sérlega glæsilegt.
Ljós frá Tom Dixon setja svip sinn á rýmið. 
Eigninni hefur verið skipt upp í tvær íbúðir. 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×