Körfubolti

Ó­bein yfir­lýsing frá DeAndre Kane

Siggeir Ævarsson skrifar
DeAndre Kane var manna glaðastur í leikslok og kom dansandi í viðtal.
DeAndre Kane var manna glaðastur í leikslok og kom dansandi í viðtal. Vísir/Hulda Margrét

Mikið hefur verið hvíslað og kvabbað um liðsandann hjá Grindavík og hvort DeAndre Kane sé mögulega að hafa neikvæð áhrif á liðsfélaga sína. Kane sendi óbeina yfirlýsingu í viðtali eftir leik í kvöld þegar hann mætti með öllum liðsfélögum sínum í viðtalið.

Kane var spurður hvort Grindavíkurliðið væri að senda frá sér ákveðna yfirlýsingu með því að klára einvígið gegn Keflavík á jafn afgerandi hátt og raun bar vitni. Kane var ekki endilega á því en með því að taka alla liðsfélaga sína með sér í viðtalið sendi hann augljóslega ákveðna yfirlýsingu til gagnrýnenda.

„Ég myndi ekki segja að við höfum verið að senda skilaboð. Svona viljum við spila körfubolta. Þetta er okkar leikur, þetta er það sem við viljum fá út úr okkar leik. Við leggjum hart að okkur á hverjum degi, þetta eru mínir menn [og benti á liðsfélaga sínum sem voru fyrir aftan hann]. Við erum náinn hópur og við viljum koma með titilinn heim til Grindavíkur. Mér finnst Grindvíkingar eiga það skilið og það er það sem við ætlum okkur að gera.“

Beðinn um að útskýra hvað gekk á í seinni hálfleik var Kane með einfalda leikgreiningu.

„Við komum út í seinni hálfleik og settum þumalskrúfurnar á þá. Við vissum hvað við þurftum að gera. Í fyrri hálfleik voru þeir að setja erfið skot. Í seinni hálfleik spiluðum við góða vörn og settum skotin okkar.“

Á þessum tímapunkti í viðtalinu var Dedrick Basile kominn upp að hlið Kane og hann sparaði ekki stóru orðin um liðsfélaga sinn.

„Þessi gaur hérna er einstakur. Hann hefur fengið sinn skerf af gagnrýni en hann sýndi hvað hann getur í þessari deild. Hann er vélin í liðinu okkar. Í dag, þegar hlutirnir voru ekki að ganga upp þá hélt hann okkur í takti.“

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að neðan og má með sanni segja að sjón sé sögu ríkari. Það er ekki á hverju degi sem heilt lið fylgir leikmanni í viðtal.

Klippa: DeAndre Kane og félagar sigurreifir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×