Íslenski boltinn

Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stór­kost­leg

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Agla María Albertsdóttir er að spila mjög vel í nýju hlutverki sínu á miðju Blikaliðsins.
Agla María Albertsdóttir er að spila mjög vel í nýju hlutverki sínu á miðju Blikaliðsins. Vísir/Anton Brink

Breiddin hjá kvennaliði Breiðabliks var til umræðu í Bestu mörkunum í gær en Blikakonur hafa unnið fimm fyrstu leiki sína og það með markatölunni 16-1.

„Þær gerðu þetta vel. Munurinn á þessum liðum sást svolítið í seinni hálfleik. Við ræddum fyrir mót um breiddina. Að við hefðum áhyggjur af breiddinni í Fylkisliðinu,“ sagði Mist Edvardsdóttir, sérfræðingur Bestu Markanna.

Klippa: Bestu mörkin: Breiddin í Blikaliðinu

„Svo horfir maður á Blikaliðið og þær gera fjórfalda skiptingu. Setja inn Katrínu Ásbjörnsdóttur, Hrafnhildi Ásu (Halldórsdóttur), Áslaugu Mundu (Gunnlaugsdóttur) og Ólöfu Sigríði (Kristinsdóttur). Það er þokkaleg breidd,“ sagði Mist en Nik Chamberlain, þjálfari Breiðabliks, gerði allar þessar skiptuingar á 61. mínútu.

„Það þarf að virkja allan hópinn sinn og mér fannst Nik duglegur að gera það,“ sagði Helena Ólafsdóttir, umsjónarkona Bestu markanna.

Með bullandi hausverk

„Hann er örugglega með bullandi hausverk, hann Nik, með framherjastöðuna. Hann er með fjórar þarna sem eru allar að pressa á mínútur. Vigdís Lilja (Kristjánsdóttir) er búin að byrja þetta mót frábærlega. Birta Georgsdóttir hefur átt góða leiki líka. Á bekknum er hann síðan með Katrínu Ásbjörns og Ollu Siggu,“ sagði Mist.

„Þetta var bara sterkur sigur Blika af því að Fylkisliðið er að gefa öllum liðum leik. Þær eru að skapa sér færi í öllum leikjum sem er jákvætt fyrir Fylki í framhaldinu,“ sagði Margrét Lára Viðarsdóttir, sérfræðingur Bestu Markanna.

Var pínu efins

„Breiðablik er að vaxa mjög mikið inn í þetta kerfi. Eins og Agla María (Albertsdóttir), Maður var pínu efins um hvernig hún tæki þessu nýja hlutverki að vera ekki svona hefðbundinn vængmaður. Mér finnst hún hafa verið stórkostleg undanfarna leiki. Mikill leiðtogi, stigið upp og vaxið mjög mikið. Það er gaman að sjá hvað hún hefur verið að standa sig vel undanfarnar vikur“ sagði Margrét Lára. Það má sjá alla þessa umfjöllun hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×