Viðskipti erlent Samsung veðjar á gervigreind í nýjum Galaxy síma Suður-Kóreski tæknirisinn Samsung svipti í gær hulunni af nýjasta snjallsímanum sínum af gerðinni Galaxy S24. Fyrirtækið segir símann nýtast við byltingarkennda tækni sem muni breyta því hvernig fólk notar síma. Viðskipti erlent 18.1.2024 10:28 Apple veltir Samsung úr sessi Bandaríska fyrirtækið Apple velti á síðasta ári tæknirisanum Samsung, frá Suður-Kóreu, úr sessi á toppi snjallsímamarkaðs heimsins. Þar hafði Samsung setið í tólf ár sem fyrirtækið sem seldi flesta snjallsíma í heiminum. Viðskipti erlent 18.1.2024 10:24 Samþykktu endurskipulagningu Viaplay Hluthafar sænska streymisfyrirtækisins Viaplay Group hafa samþykkt endurskipulagningu á félaginu sem leiðir til þess að franski fjölmiðla- og fjarskiptarisinn Canal+ Group og tékkneska fjárfestingafélagið PPF hafa eignast hvor um sig 29,3 prósenta hlut í fyrirtækinu. Viðskipti erlent 12.1.2024 10:56 Binda enda á 27 ára samstarf sitt Bandaríski íþróttavörurisinn Nike og bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hafa bundið enda á samstarf sitt sem staðið hefur síðastliðinn 27 ár. Viðskipti erlent 9.1.2024 07:45 Samstarfsfólk Musk sagt hafa áhyggjur af fíkniefnaneyslu hans Elon Musk, auðugasti maður heims, er sagður neyta fíkniefna á borð við LSD, kókaín og ofskynjunarsveppi. Þetta kemur fram í umfjöllun Wall Street Journal. Viðskipti erlent 8.1.2024 23:33 Hætta sölu á Pepsí vegna „óásættanlegra verðhækkana“ Franska matvöruverslanakeðjan Carrefour hefur tilkynnt að hún muni hætta að selja Pepsí og aðrar vörur úr smiðju PepsiCo. Ástæðan er sögð sú að vörurnar séu orðnar of dýrar eftir nýjustu verðhækkanirnar. Viðskipti erlent 4.1.2024 14:41 Fyrsta konan til að vera metin á 100 milljarða dala Françoise Bettencourt Meyers, erfingi L'Oréal veldisins, er fyrsta konan til að vera metin á yfir 100 milljarða Bandaríkjadala. Bettencourt Meyers, sem er 70 ára, er í 12. sæti á Bloomberg Billionaires Index. Viðskipti erlent 29.12.2023 07:38 Kanni möguleika á lausri skrúfu í 737 Max vélum Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing hvetur flugfélög til þess að skoða nýrri 737 MAX farþegaþotur vegna möguleikans á því að þar sé lausa skrúfu að finna í hliðarstýri vélarinnar. Viðskipti erlent 28.12.2023 16:39 Úr rafhlaupahjólum og snjallryksugum í sinn fyrsta rafbíl Kínverski tæknivöruframleiðandinn Xiaomi svipti í dag hulunni af fyrsta bílnum sem fyrirtækið hyggst framleiða. Bíllinn verður rafbíll og ætlar kínverska fyrirtækið sér að verða eitt af fimm stærstu bílframleiðendum veraldar. Viðskipti erlent 28.12.2023 14:22 Skapari Glock-byssunnar er látinn Austurríski verkfræðingurinn Gaston Glock, sem þekktastur er fyrir að hafa fundið upp Glock-skammbyssuna, er látinn. Hann varð 94 ára gamall. Viðskipti erlent 28.12.2023 07:42 Setja takmarkanir á kínversk leikjafyrirtæki Yfirvöld í Kína tilkynntu í dag nýjar reglur sem eiga að draga úr eyðslu bæði tíma og peninga í tölvuleiki. Kína er stærsti leikjamarkaður heims og virði leikjafyrirtækja þar hríðféll eftir yfirlýsinguna. Viðskipti erlent 22.12.2023 16:53 Ræddu samruna Warner og Paramount David Zaslav og Bob Bakish, æðstu yfirmenn Warner Bros. Discovery og Paramount funduðu í þessari viku um mögulegan samruna fyrirtækjanna tveggja. Forsvarsmenn Paramount vilja selja og forsvarsmenn Warner Bros leita að nýjum samruna. Viðskipti erlent 21.12.2023 12:03 Threads aðgengilegt á Íslandi Forsvarsmenn Meta, áður Facebook, hafa gert samskiptaforritið Threads aðgengilegt víða í Evrópu og þar á meðal á Íslandi. Enn sem komið er virðist forritið aðeins aðgengilegt í tölvum og í símum Apple. Viðskipti erlent 14.12.2023 14:38 Tesla kallar inn tvær milljónir bíla vegna galla í sjálfstýringu Rafbílaframleiðandinn Tesla hefur innkallað tvær milljónir bíla eftir að eftirlitsaðilar framleiðandans í Bandaríkjunum uppgötvuðu galla í sjálfstýringarkerfi bílanna. Viðskipti erlent 13.12.2023 23:59 Hefur „efnahagslega raflostmeðferð“ á því að helminga virði pesósins Ný ríkisstjórn Argentínu hefur tilkynnt að hún muni ríflega helminga virði argentíska pesósins gagnvart Bandaríkjadal. Þetta er fyrsta skrefið í „efnhagslegri raflostmeðferð“ sem Javier Milei, nýr forseti landsins, hefur boðað. Viðskipti erlent 13.12.2023 07:23 Hvað gúgglaði fólk árið 2023? Leitarvélin Google hefur gefið út lista yfir þá hluti sem heimsbyggðin leitaði oftast að árið 2023. Viðskipti erlent 12.12.2023 15:24 Epic Games vinna mikinn sigur á Google Google hefur misnotað aðstöðu sína til að kreista fé úr framleiðendum og takmarka samkeppni á sviði forrita fyrir snjalltæki sem nota Android-stýrikerfi Google. Þessari niðurstöðu komust kviðdómendur í máli Epic Games gegn Google að í San Francisco í gær en niðurstaðan gæti haft mikil á áhrif á stýrikerfið, sem notað er út um allan heim. Viðskipti erlent 12.12.2023 11:09 Segja auglýsingaherferð Zöru hæðast að ástandinu á Gasa Spænska fataverslunin Zara er nú harðlega gagnrýnd á samfélagsmiðlun vegna nýrrar auglýsingaherferð sinnar. Herferðin er sögð vera gerð til að líkja eftir ástandinu á Gasasvæðinu fyrir botni Miðjarðarhafs. Viðskipti erlent 11.12.2023 08:16 Vilja hækka olíuverð Ráðamenn í Rússlandi og Sádi-Arabíu hafa biðlað til annarra olíuframleiðenda í OPEC+ að draga úr framleiðslu. Olíuverð hefur lækkað töluvert að á undanförnum mánuðum en í gær hafði verðið ekki verið lægra í hálft ár. Rússar og Sádar vilja stöðva þá þróun og hækka verð á nýjan leik. Viðskipti erlent 7.12.2023 18:31 McDonald's kynnir systurkeðju Fyrsti veitingastaður keðjunnar CosMc's kemur til með að opna í þessum mánuði í Chicago í Bandaríkjunum. Skyndibitarisinn McDonald's er á bak við þessa nýju keðju sem stefnir á að veita Starbucks samkeppni á drykkjarvörumarkaðinum. Viðskipti erlent 7.12.2023 13:45 Danir taka ekki við Teslum á leið til Svíþjóðar Danskir hafnarverkamenn hafa ákveðið að styðja verkalýðsfélög í Svíþjóð í deilu þeirra gegn rafbílaframleiðandanum Tesla og munu ekki taka við Teslum sem til stendur að flytja inn til Svíþjóðar. Viðskipti erlent 5.12.2023 07:51 Þriðja hópuppsögnin á árinu hjá Spotify Forsvarsmenn sænsku tónlistarveitunnar Spotify ætla að fækka starfsfólki sínu um sautján prósent. Daniel Ek, forstjóri fyrirtækisins, tilkynnti starfsfólki þetta í morgun. Það gera um 1500 starfsmanna. Viðskipti erlent 4.12.2023 08:13 Danir vilja frekar versla „túrbó kjúkling“ Danskir neytendur versla frekar svokallaðan „túrbó kjúkling“ sem ræktaður hefur verið til þess að vaxa hratt, frekar en venjulegan kjúkling sem hefur það betra. Ástæðan er hækkandi verðlag sökum verðbólgu og stríðsins í Úkraínu. Viðskipti erlent 4.12.2023 07:51 Danir segja skilið við þúsund króna seðilinn Seðlabanki Danmerkur hefur tilkynnt að hann muni frá og með 31. maí 2025 hætta að gefa út þúsund króna seðil. Seðillinn hefur verið í umferð í sinni núverandi mynd í 47 ár eða síðan árið 1975. Viðskipti erlent 1.12.2023 07:46 Sagði forstjóra Disney að fara í rassgat Elon Musk, einn auðugasti maður heims og eigandi Tesla, SpaceX og X (áður Twitter), svo einhver fyrirtæki séu nefnd, sagði forstjóra Disney og forsvarsmönnum annarra fyrirtækja sem hafa hætt að auglýsa á X að „fara í rassgat“. Þetta sagði auðjöfurinn í viðtali sem streymt var í beinni útsendingu en hann sagði einnig að X færi líklega á hausinn án auglýsinga. Viðskipti erlent 30.11.2023 10:56 Flugu yfir Atlantshafið á fitu og sykri Flugmenn Virgin Atlantic flugu í gær farþegaþotu yfir Atlantshafið á eingöngu fitu og sykri, ekki hefðbundnu eldsneyti. Er það í fyrsta sinn sem slíkt er gert en flugvélin losar um sjötíu prósent minna af gróðurhúsalofttegundum en hefðbundnar farþegaþotur. Viðskipti erlent 29.11.2023 10:29 Rússar herða sultarólina Verðlag hefur hækkað hratt í Rússlandi á árinu en Seðlabanki landsins hefur hækkað vexti fjórum sinnum til að reyna að sporna gegn henni. Þegar árið byrjaði voru að stýrivextir 7,5 prósent en nú eru þeir fimmtán. Viðskipti erlent 24.11.2023 17:01 Óttuðust að ný gervigreind gæti ógnað mannkyninu Starfsmenn bandaríska tæknifyrirtækisins OpenAI sem sérhæft hefur sig í gervigreind, eru sagðir hafa viðrað áhyggjur sínar af nýrri gervigreind sem fyrirtækið var að vinna að áður en Sam Altman, forstjóri þess var látinn fjúka. Viðskipti erlent 23.11.2023 22:08 Altman snýr aftur til OpenAI Sam Altman, einn stofnenda OpenAI, mun snúa aftur í forstjórastólinn aðeins dögum eftir að stjórn fyrirtækisins lét hann fjúka. Ákvörðunin um að láta Altman fara var harðlega mótmælt og niðurstaðan sú að stjórnarmeðlimum verður skipt út fyrir nýja. Viðskipti erlent 22.11.2023 07:56 Segja nýja sænska rafhlöðu byltingarkennda Forsvarsmenn eina framleiðanda rafhlaðna í Evrópu, sænska fyrirtækisins Northvolt, segjast hafa fundið upp nýja tegund rafhlöðu sem í framtíðinni geti meðal annars nýst í framleiðslu á rafbílum. Viðskipti erlent 21.11.2023 22:55 « ‹ 1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 334 ›
Samsung veðjar á gervigreind í nýjum Galaxy síma Suður-Kóreski tæknirisinn Samsung svipti í gær hulunni af nýjasta snjallsímanum sínum af gerðinni Galaxy S24. Fyrirtækið segir símann nýtast við byltingarkennda tækni sem muni breyta því hvernig fólk notar síma. Viðskipti erlent 18.1.2024 10:28
Apple veltir Samsung úr sessi Bandaríska fyrirtækið Apple velti á síðasta ári tæknirisanum Samsung, frá Suður-Kóreu, úr sessi á toppi snjallsímamarkaðs heimsins. Þar hafði Samsung setið í tólf ár sem fyrirtækið sem seldi flesta snjallsíma í heiminum. Viðskipti erlent 18.1.2024 10:24
Samþykktu endurskipulagningu Viaplay Hluthafar sænska streymisfyrirtækisins Viaplay Group hafa samþykkt endurskipulagningu á félaginu sem leiðir til þess að franski fjölmiðla- og fjarskiptarisinn Canal+ Group og tékkneska fjárfestingafélagið PPF hafa eignast hvor um sig 29,3 prósenta hlut í fyrirtækinu. Viðskipti erlent 12.1.2024 10:56
Binda enda á 27 ára samstarf sitt Bandaríski íþróttavörurisinn Nike og bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hafa bundið enda á samstarf sitt sem staðið hefur síðastliðinn 27 ár. Viðskipti erlent 9.1.2024 07:45
Samstarfsfólk Musk sagt hafa áhyggjur af fíkniefnaneyslu hans Elon Musk, auðugasti maður heims, er sagður neyta fíkniefna á borð við LSD, kókaín og ofskynjunarsveppi. Þetta kemur fram í umfjöllun Wall Street Journal. Viðskipti erlent 8.1.2024 23:33
Hætta sölu á Pepsí vegna „óásættanlegra verðhækkana“ Franska matvöruverslanakeðjan Carrefour hefur tilkynnt að hún muni hætta að selja Pepsí og aðrar vörur úr smiðju PepsiCo. Ástæðan er sögð sú að vörurnar séu orðnar of dýrar eftir nýjustu verðhækkanirnar. Viðskipti erlent 4.1.2024 14:41
Fyrsta konan til að vera metin á 100 milljarða dala Françoise Bettencourt Meyers, erfingi L'Oréal veldisins, er fyrsta konan til að vera metin á yfir 100 milljarða Bandaríkjadala. Bettencourt Meyers, sem er 70 ára, er í 12. sæti á Bloomberg Billionaires Index. Viðskipti erlent 29.12.2023 07:38
Kanni möguleika á lausri skrúfu í 737 Max vélum Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing hvetur flugfélög til þess að skoða nýrri 737 MAX farþegaþotur vegna möguleikans á því að þar sé lausa skrúfu að finna í hliðarstýri vélarinnar. Viðskipti erlent 28.12.2023 16:39
Úr rafhlaupahjólum og snjallryksugum í sinn fyrsta rafbíl Kínverski tæknivöruframleiðandinn Xiaomi svipti í dag hulunni af fyrsta bílnum sem fyrirtækið hyggst framleiða. Bíllinn verður rafbíll og ætlar kínverska fyrirtækið sér að verða eitt af fimm stærstu bílframleiðendum veraldar. Viðskipti erlent 28.12.2023 14:22
Skapari Glock-byssunnar er látinn Austurríski verkfræðingurinn Gaston Glock, sem þekktastur er fyrir að hafa fundið upp Glock-skammbyssuna, er látinn. Hann varð 94 ára gamall. Viðskipti erlent 28.12.2023 07:42
Setja takmarkanir á kínversk leikjafyrirtæki Yfirvöld í Kína tilkynntu í dag nýjar reglur sem eiga að draga úr eyðslu bæði tíma og peninga í tölvuleiki. Kína er stærsti leikjamarkaður heims og virði leikjafyrirtækja þar hríðféll eftir yfirlýsinguna. Viðskipti erlent 22.12.2023 16:53
Ræddu samruna Warner og Paramount David Zaslav og Bob Bakish, æðstu yfirmenn Warner Bros. Discovery og Paramount funduðu í þessari viku um mögulegan samruna fyrirtækjanna tveggja. Forsvarsmenn Paramount vilja selja og forsvarsmenn Warner Bros leita að nýjum samruna. Viðskipti erlent 21.12.2023 12:03
Threads aðgengilegt á Íslandi Forsvarsmenn Meta, áður Facebook, hafa gert samskiptaforritið Threads aðgengilegt víða í Evrópu og þar á meðal á Íslandi. Enn sem komið er virðist forritið aðeins aðgengilegt í tölvum og í símum Apple. Viðskipti erlent 14.12.2023 14:38
Tesla kallar inn tvær milljónir bíla vegna galla í sjálfstýringu Rafbílaframleiðandinn Tesla hefur innkallað tvær milljónir bíla eftir að eftirlitsaðilar framleiðandans í Bandaríkjunum uppgötvuðu galla í sjálfstýringarkerfi bílanna. Viðskipti erlent 13.12.2023 23:59
Hefur „efnahagslega raflostmeðferð“ á því að helminga virði pesósins Ný ríkisstjórn Argentínu hefur tilkynnt að hún muni ríflega helminga virði argentíska pesósins gagnvart Bandaríkjadal. Þetta er fyrsta skrefið í „efnhagslegri raflostmeðferð“ sem Javier Milei, nýr forseti landsins, hefur boðað. Viðskipti erlent 13.12.2023 07:23
Hvað gúgglaði fólk árið 2023? Leitarvélin Google hefur gefið út lista yfir þá hluti sem heimsbyggðin leitaði oftast að árið 2023. Viðskipti erlent 12.12.2023 15:24
Epic Games vinna mikinn sigur á Google Google hefur misnotað aðstöðu sína til að kreista fé úr framleiðendum og takmarka samkeppni á sviði forrita fyrir snjalltæki sem nota Android-stýrikerfi Google. Þessari niðurstöðu komust kviðdómendur í máli Epic Games gegn Google að í San Francisco í gær en niðurstaðan gæti haft mikil á áhrif á stýrikerfið, sem notað er út um allan heim. Viðskipti erlent 12.12.2023 11:09
Segja auglýsingaherferð Zöru hæðast að ástandinu á Gasa Spænska fataverslunin Zara er nú harðlega gagnrýnd á samfélagsmiðlun vegna nýrrar auglýsingaherferð sinnar. Herferðin er sögð vera gerð til að líkja eftir ástandinu á Gasasvæðinu fyrir botni Miðjarðarhafs. Viðskipti erlent 11.12.2023 08:16
Vilja hækka olíuverð Ráðamenn í Rússlandi og Sádi-Arabíu hafa biðlað til annarra olíuframleiðenda í OPEC+ að draga úr framleiðslu. Olíuverð hefur lækkað töluvert að á undanförnum mánuðum en í gær hafði verðið ekki verið lægra í hálft ár. Rússar og Sádar vilja stöðva þá þróun og hækka verð á nýjan leik. Viðskipti erlent 7.12.2023 18:31
McDonald's kynnir systurkeðju Fyrsti veitingastaður keðjunnar CosMc's kemur til með að opna í þessum mánuði í Chicago í Bandaríkjunum. Skyndibitarisinn McDonald's er á bak við þessa nýju keðju sem stefnir á að veita Starbucks samkeppni á drykkjarvörumarkaðinum. Viðskipti erlent 7.12.2023 13:45
Danir taka ekki við Teslum á leið til Svíþjóðar Danskir hafnarverkamenn hafa ákveðið að styðja verkalýðsfélög í Svíþjóð í deilu þeirra gegn rafbílaframleiðandanum Tesla og munu ekki taka við Teslum sem til stendur að flytja inn til Svíþjóðar. Viðskipti erlent 5.12.2023 07:51
Þriðja hópuppsögnin á árinu hjá Spotify Forsvarsmenn sænsku tónlistarveitunnar Spotify ætla að fækka starfsfólki sínu um sautján prósent. Daniel Ek, forstjóri fyrirtækisins, tilkynnti starfsfólki þetta í morgun. Það gera um 1500 starfsmanna. Viðskipti erlent 4.12.2023 08:13
Danir vilja frekar versla „túrbó kjúkling“ Danskir neytendur versla frekar svokallaðan „túrbó kjúkling“ sem ræktaður hefur verið til þess að vaxa hratt, frekar en venjulegan kjúkling sem hefur það betra. Ástæðan er hækkandi verðlag sökum verðbólgu og stríðsins í Úkraínu. Viðskipti erlent 4.12.2023 07:51
Danir segja skilið við þúsund króna seðilinn Seðlabanki Danmerkur hefur tilkynnt að hann muni frá og með 31. maí 2025 hætta að gefa út þúsund króna seðil. Seðillinn hefur verið í umferð í sinni núverandi mynd í 47 ár eða síðan árið 1975. Viðskipti erlent 1.12.2023 07:46
Sagði forstjóra Disney að fara í rassgat Elon Musk, einn auðugasti maður heims og eigandi Tesla, SpaceX og X (áður Twitter), svo einhver fyrirtæki séu nefnd, sagði forstjóra Disney og forsvarsmönnum annarra fyrirtækja sem hafa hætt að auglýsa á X að „fara í rassgat“. Þetta sagði auðjöfurinn í viðtali sem streymt var í beinni útsendingu en hann sagði einnig að X færi líklega á hausinn án auglýsinga. Viðskipti erlent 30.11.2023 10:56
Flugu yfir Atlantshafið á fitu og sykri Flugmenn Virgin Atlantic flugu í gær farþegaþotu yfir Atlantshafið á eingöngu fitu og sykri, ekki hefðbundnu eldsneyti. Er það í fyrsta sinn sem slíkt er gert en flugvélin losar um sjötíu prósent minna af gróðurhúsalofttegundum en hefðbundnar farþegaþotur. Viðskipti erlent 29.11.2023 10:29
Rússar herða sultarólina Verðlag hefur hækkað hratt í Rússlandi á árinu en Seðlabanki landsins hefur hækkað vexti fjórum sinnum til að reyna að sporna gegn henni. Þegar árið byrjaði voru að stýrivextir 7,5 prósent en nú eru þeir fimmtán. Viðskipti erlent 24.11.2023 17:01
Óttuðust að ný gervigreind gæti ógnað mannkyninu Starfsmenn bandaríska tæknifyrirtækisins OpenAI sem sérhæft hefur sig í gervigreind, eru sagðir hafa viðrað áhyggjur sínar af nýrri gervigreind sem fyrirtækið var að vinna að áður en Sam Altman, forstjóri þess var látinn fjúka. Viðskipti erlent 23.11.2023 22:08
Altman snýr aftur til OpenAI Sam Altman, einn stofnenda OpenAI, mun snúa aftur í forstjórastólinn aðeins dögum eftir að stjórn fyrirtækisins lét hann fjúka. Ákvörðunin um að láta Altman fara var harðlega mótmælt og niðurstaðan sú að stjórnarmeðlimum verður skipt út fyrir nýja. Viðskipti erlent 22.11.2023 07:56
Segja nýja sænska rafhlöðu byltingarkennda Forsvarsmenn eina framleiðanda rafhlaðna í Evrópu, sænska fyrirtækisins Northvolt, segjast hafa fundið upp nýja tegund rafhlöðu sem í framtíðinni geti meðal annars nýst í framleiðslu á rafbílum. Viðskipti erlent 21.11.2023 22:55