Viðskipti innlent

Ritskoðaður bjór fær blessun ÁTVR

Atli Ísleifsson skrifar
Ingi Már Kjartansson, forstöðumaður birgjans, segir að ákveðið hafi verið að fara þessa leið. Að kæra ákvörðunina hefði tekið tíma.
Ingi Már Kjartansson, forstöðumaður birgjans, segir að ákveðið hafi verið að fara þessa leið. Að kæra ákvörðunina hefði tekið tíma. Aðsend/ÁTVR

ÁTVR hefur lagt blessun sína yfir uppfært útlit bjórs úr smiðju Brewdog sem væntanlegur er í vínbúðir á næstu vikum þar sem límmiða hefur verið límt yfir teiknaðan fugl. Á límmiðanum stendur „Ritskoðað af ÁTVR“, en ríkisfyrirtækið hafði áður hafnað að setja bjórinn í sölu þar sem varan væri talin höfða sérstaklega til barna eða ungmenna.

Sigrún Ósk Sigurðardóttir,aðstoðarforstjóri ÁTVR, segir í samtali við fréttastofu að ÁTVR hafi gert athugasemdir við útlit dósanna þar sem það bryti í bága við reglugerð. Þar komi fram að heimilt sé að hafna vöru, höfði hún sérstaklega til barna eða ungmenna yngri en tuttugu ára, meðal annars hvað varðar texta, mynd­mál eða form. 

Umræddur bjór heitir Brewdog Wingman Session IPA og er á dósunum að finna mynd af teiknuðum, bláum fugli í flugmannajakka og með flugmannagleraugu.

Sigrún Ósk segir að forsvarsmenn birgja hafi þá komið með þessa tillögu – að setja límmiða yfir andlit fuglsins – sem hafi verið ákveðið að samþykkja.

Verður vesen

Ingi Már Kjartansson, forsvarsmaður birgjans JG Bjórs sem flytur inn umræddan bjór, segir að þegar höfnunin frá ÁTVR hafi fyrst borist hafi JG Bjór óskað eftir að ákvörðunin yrði endurskoðuð. Það hafi hins vegar ekki gengið eftir.

„Þeir vísa til þess að varan höfði sérstaklega til barna og að fuglinn líktist einhverri fígúru. Það er samt ekki þannig að fuglinn líkist einhverri ákveðinni fígúru. Þetta böggaði okkur svolítið þar sem það eru fullt af bjórum með teikningum í Vínbúðunum. Þetta er skringilega mikið huglægt mat. Við vitum að við höfum rétt á að kæra en það tekur tíma. Þetta var okkar tillaga og hún var samþykkt og þótti innan regluverksins,“ segir Ingi Már.

Hann segir að nú verði farið í að koma límmiðunum fyrir á dósirnar. „Það verður smá vesen að koma límmiðunum fyrir en það verður að hafa það.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×