Innlent

Frum­skógur bíla­stæða­gjalda og þau hæstu þúsund krónur

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Þórunn Anna Árnadóttir forstjóri Neytendastofu segir málið viðamikið og því muni taka tíma að fá niðurstöðu úr því.
Þórunn Anna Árnadóttir forstjóri Neytendastofu segir málið viðamikið og því muni taka tíma að fá niðurstöðu úr því. Vísir/Sara

Félag íslenskra bifreiðaeigenda segir villta vestrið ríkja í gjaldtöku á bílastæðum. Neytendur standi frammi fyrir sífellt fleiri greiðslulausnum en engin gildi þó á öllum bílastæðum. Neytendastofa hefur ákveðið að rannsaka málið.

Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir græðgisvæðingu í gangi á bílastæðamarkaði þar sem sífellt fleiri fyrirtæki reyni að fá bita af kökunni. Oft sé erfitt að fyrir neytendur að glöggva sig á gjaldtökunni, hvað þá ef þeir séu sektaðir. Félagið hafi óskað eftir liðsinni Neytendastofu í málinu. 

Við lauslega rannsókn fréttastofu í dag kom í ljós að  mörg fyrirtæki sjá um að rukka inn fyrir bílastæði hér á landi og afar misjafnt er hvað, hvenær og hvernig á að greiða fyrir stæðin. Hvernig upplýsingum er komið á framfæri og hver sektin er ef fólk greiðir ekki fyrir stæði. 

Klukkustund á þúsund krónur

Við Barónstíg 4 í Reykjavík eru til að mynda tvö gjaldstæði. Annað er við verslunina 10-11 og kostar eitt þúsund krónur á tímann að leggja þar þar.  Á sama svæði er annað bílastæði sem er samkvæmt upplýsingum fréttastofu í eigu Íslandshótela. 

Ólafur Torfason eigandi hótelsins sagði í samtali við fréttastofu vegna málsins að fyrirtækið Green Parking sjái um allan rekstur þess stæðis. Green parking hafi sett upp búnað og sjái um tæknimál. Afnotagjald af stæðinu fari til Green parking og Íslandshótela. Klukkustundin kostar sex hundruð krónur fyrstu þrjá tímanna en eftir það kostar tvö hundruð og fimmtíu krónur að leggja þar. Ólafur segir að þessi nýja lausn hafi skilað hótelinu ánægðari viðskiptavinum. 

Domus Medica hefur tekið upp gjaldskyldu á Egilsgötu 3 allan sólarhringinn. Það þarf að skanna QR kóða til að fá upplýsingar um hver kostnaðurinn er.Vísir/Arnar

Fréttastofa komst líka af því í dag að nokkur gjaldsvæði eru í bílakjallaranum undir og við Hörpu og mismunandi hvaða gjald er tekið ef fólk lendir í vanskilum. 

Viðamikil rannsókn fram undan

Neytendastofa hefur fallist á kröfu FIB um að rannsaka málið. Þórunn Anna Árnadóttir forstjóri Neytendastofu segir málið viðamikið og því muni taka tíma að fá niðurstöðu úr því. 

„Það  sem við getum helst gert er að koma með athugasemdir við upplýsingagjöf. Hvort merkingar séu nógu skýrar, hvort nægar upplýsingar séu um það gjaldtöku  og hver sé að rukka. Þetta er frekar viðamikið. Það eru margir aðilar sem sjá um svona rekstur. Í framhaldinu getum við tekið ákvörðun um að banna háttsemina eða að gera kröfu um skýrari merkingar,“ segir Þórunn að lokum. 

Fréttin var sýnd í fréttatíma Stöðvar 2 klukkan 18:30 sem er á ný í opinni dagskrá. Tímann í heild má sjá að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×