Veður

Hiti að þrettán stigum

Atli Ísleifsson skrifar
Gera má ráð fyrir hægviðri á morgun.
Gera má ráð fyrir hægviðri á morgun. Vísir/Vilhelm

Hæð vestur af Írlandi þokast í átt að landinu í dag og er útlit fyrir fremur hægan vind og víða léttskýjuðu.

Á vef Veðurstofunnar segir að hiti að deginum verði á bilinu fimm til þrettán stig þar sem mildast verður sunnan og vestanlands.

Gera má ráð fyrir hægviðri á morgun og að þykkni upp vestanlands, en þurrt að kalla.

„Ekki verða miklar breytingar í veðri næstu daga, milt og úrkomulítið. Um miðja viku verður áttin norðlægari og þá fer að kólna á Norður- og Austurlandi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Hæg breytileg átt og léttskýjað, en skýjað við vesturströndina. Hiti 5 til 13 yfir daginn, hlýjast á Suðurlandi.

Á miðvikudag: Austan og norðaustan 3-8 m/s. Skýjað með köflum vestanlands og hiti 6 til 12 að deginum. Yfirleitt bjart á Norður- og Austurlandi, en skýjað við ströndina. Hiti 1 til 5 stig.

Á fimmtudag og föstudag: Fremur hæg norðlæg átt. Léttskýjað á Suður- og Vesturlandi og hiti 5 til 11 stig yfir daginn. Skýjað með köflum norðan- og austanlands með hita kringum frostmark.

Á laugardag: Norðan- og norðaustanátt með éljum á norðaustanverðu landinu og hita nálægt frostmarki, en bjartviðri sunnan heiða með hita 4 til 8 stig yfir daginn.

Á sunnudag: Útlit fyrir hæga breytilega átt og víða dálítil él. Hiti breytist lítið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×