Viðskipti erlent

Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsi­mál

Árni Sæberg skrifar
Flugvél af gerðinni Boeing 737 Max 8.
Flugvél af gerðinni Boeing 737 Max 8. Kevin Carter/Getty Images

Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing hefur rofið ákvæði í risasátt við dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna og gæti því átt yfir höfði sér refsimál.

Boeing gerði dómsátt við ráðuneytið árið 2021 upp á 2,5 milljarða Bandaríkjadala, um 350 milljarða króna, vegna málarekstur í tengslum við hrap tveggja Boeing 737 Max-flugvéla. Flugvélarnar hröpuði árin 2018 og 2019 með þeim afleiðingum að rúmlega 300 manns létust.

Dómsáttin fól í sér að dómsmálaráðuneytið hætti við að höfða refsimál á hendur Boeing. 

AP greinir frá því að ráðuneytið hafi tilkynnt alríkisdómara í Texas dag að fyrirtækið hafi rofið ákvæði sáttarinnar, með því að gera ekki breytingar sem áttu að gera það að verkum að það bryti ekki gegn alríkislögum um svik.

Því sé nú á valdi dómsmálaráðuneytisins að ákveða hvort refsimál verði höfðað gegn Boeing.


Tengdar fréttir

Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst

Ellefu slösuðust, þar af fjórir alvarlega, þegar Boeing 737-300 flugvél hrapaði við flugtak á Blaise Diagne flugvellinum í Dakar í Senegal. Öll starfsemi á flugvellinum hefur verið stöðvuð vegna slyssins.

Forstjóri Boeing lætur af störfum fyrir árslok

Forstjóri Boeing, Dave Calhoun, mun láta af störfum fyrir árslok. Auk hans lætur af störfum forstjóri áætlunarflugvéladeildar félagsins, Stan Deal. Stephanie Pope tekur við af honum. Steve Mollenkopf hefur verið skipaður formaður stjórnar félagsins. Calhoun tilkynnti um þetta í dag í bréfi til starfsmanna.

Boeing-uppljóstrari fannst látinn í miðjum málaferlum

Fyrrverandi starfsmaður flugvélaframleiðandans Boeing, sem ljóstraði upp um galla í framleiðslu flugvéla Boeing, fannst látinn í Bandaríkjunum. Dagana fyrir andlátið hafði hann borið vitni fyrir dómi gegn framleiðandanum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×