Innlent

Gjör­breytt bíl­próf en segja hvergi slegið af kröfum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þórhildur Elín Elínardóttir, samskiptastjóri Samgöngustofu.
Þórhildur Elín Elínardóttir, samskiptastjóri Samgöngustofu. Vísir

Frá og með morgundeginum verða bókleg almenn ökupróf rafræn um allt land. Allir ökunemar munu því framvegis taka próf til B-réttinda í tölvu hjá prófamiðstöð Frumherja.

Með því eru bókleg almenn ökupróf færð í nútímalegt horf þar sem ökuneminn getur séð niðurstöðu sína samstundis. Notast verður við tilbúið prófakerfi sem býður upp á stöðuga endurskoðun á prófum og einstökum spurningum.

Með rafrænni próftöku verður prófið ein heild, en ekki lengur skipt í tvo hluta. Einnig hafa prófspurningar verið uppfærðar með það að markmiði að forðast misskilning hjá ökunemum. Spurningarnar eru nú fullyrðingar sem nemendur svara með rétt eða rangt. Alls verður prófið 50 fullyrðingar og þurfa nemendur að svara minnst 46 þeirra rétt til að standast prófið, sem er sama hlutfall og áður.

Nokkuð hefur borið á gagnrýni varðandi ökuprófin undanfarin ár. Meðal annars þeirri staðreynd að nemandi geti fengið tvær villur á prófinu í sömu spurningunni auk þess sem orðalag í spurningum hefur þótt illskiljanlegt fyrir þá sem prófin þreyta.

Þórhildur Elín Elínardóttir, samskiptastjóri hjá Samgöngustofu, segir að með nýja prófinu sé framsetning þess einfölduð án þess að slegið sé af kröfum.

„Rafræn bókleg ökupróf eru mikilvægur áfangi í því að bæta þjónustu við ökunema. Rafrænu ökuprófin eru skref í áætlun um einföldun og aukin gæði með stöðugum umbótum. Flestir ökunemar stefna á almenn ökuréttindi (B-réttindi) en undirbúningur fyrir rafræna próftöku í öðrum flokkum ökuréttinda stendur yfir,“ segir í tilkynningu frá Samgöngustofu.

Verkefni um rafræn ökupróf er í umsjón Samgöngustofu sem hefur unnið það í samstarfi við Frumherja sem sér um framkvæmd ökuprófa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×