Mikið vinnuálag til að ná launum upp sem læknir Formaður Læknafélags Íslands segir að það virði sem læknar skili út í samfélagið, skili sér ekki til baka í launaumslaginu. Launin geti verið há, en þá liggi mjög mikið vinnuálag að baki. Innlent 31.10.2024 20:37
Læknar á leið í verkfall Félagsmenn í Læknafélagi Íslands hafa samþykkt að boða til verkfalls náist ekki samkomulag í kjaradeilu við ríkið. Atkvæðagreiðslu lauk klukkan fjögur og samþykktu 93 prósent verkfallsaðgerðir. Innlent 31.10.2024 16:42
Kennir bara meira! Ég var afar stolt af Magnúsi Þór Jónssyni, formanni KÍ eftir Kastljósþátt mánudagsins, þar sem hann leiðrétti af stakri ró og þolinmæði rangfærslur Ingu Rúnar, formanni samninganefndar Sambands íslenskra sveitafélaga Inga benti á að til að hækka í launum gætu kennarar bara kennt meira, en hún virðist halda að kennarar stimpli sig inn kl. 8:30 og út rétt fyrir hálfþrjú. Skoðun 31.10.2024 08:32
Telja sig ekki brjóta neinar verkfallsreglur Sveitarstjóri Skagafjarðar segir túlkun sveitarfélagsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) þannig að heimilt sé að starfsmenn ekki í verkfalli haldi starfsemi leikskólans Ársala gangandi. Enginn gangi í störf þeirra sem eru í verkfalli. Innlent 29. október 2024 13:21
Ákall um kjark Staðan í kjaraviðræðum og lítill skilningur á stöðu háskólamenntaðra á vinnumarkaði veldur áhyggjum. Ekki einungis gagnvart einstaklingum sem hafa þurft að þola umtalsverða kjararýrnun heldur er framtíð og menntunarstig þjóðarinnar í húfi. – Það er kjarni málsins. Skoðun 29. október 2024 07:01
Verkfall kennara skollið á Kennarar í níu skólum víða um land hafa nú lagt niður störf. Um er að ræða fjóra leikskóla, þrjá grunnskóla, einn framhaldsskóla og einn tónlistarskóla. Búið er að samþykkja verkföll í fjórum skólum til viðbótar sem hefjast í nóvember. Innlent 29. október 2024 00:01
Verkfall lækna gæti hafist 18. nóvember Atkvæðagreiðsla Læknafélags Íslands um hvort gripið verði til aðgerða stendur nú yfir. Það mun liggja fyrir klukkna 16:00 á fimmtudaginn hvort læknar ráðist í verkfallsaðgerðir en kjaraviðræður eru þó enn í fullum gangi að sögn Steinunnar Þórðardóttur, formanns Læknafélags Íslands. Innlent 28. október 2024 20:55
„Ég skil vel foreldra sem eru í vandræðum“ Vinnustöðvun kennara í níu skólum víða um land hefst á miðnætti. Leikskólastjóri og foreldri barns þar segjast bæði taka einn dag í einu en vonast til þess að hægt verði að semja sem fyrst. Innlent 28. október 2024 20:05
Verkföll hefjast á morgun: „Þetta er þvílíkur ómöguleiki“ Að öllu óbreyttu hefjast verkföll kennara í níu skólum á morgun. Formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga segir stöðuna grafalvarlega og er afar svartsýn á að samningar náist í dag. Innlent 28. október 2024 14:23
Umsókn um stöðu kennara í (vonandi) nálægri framtíð Ég undirrituð sótti um og fékk starf í grunnskóla. Eftir tvö ítarleg viðtöl við mannauðsstjóra annars vegar og svo skólastjórnendur hins vegar, varð starfið loks mitt! Ég ræð mér varla fyrir kæti. Það er góð tilfinning að vera metin að verðleikum, enda hef ég þá einu hugsjón að kenna nemendum mínum og gera það vel. Skoðun 26. október 2024 14:02
Verkföll í tveimur skólum til viðbótar Verkfallsaðgerðir hafa verið boðaðar í tveimur skólum til viðbótar í október og í nóvember. Það eru Heiðarskóli í Reykjanesbæ og Árbæjarskóli í Reykjavík sem bætast í hóp skóla þar sem til stendur að fara í verkfallsagðerðir. Innlent 24. október 2024 15:33
Myndir þú sætta þig við tólf ára kaupmáttarstöðnun? Nýlega vísaði Félag prófessora við ríkisháskóla kjaradeilu sinni til Ríkissáttasemjara. Ástæðan er einföld - kaupmáttur launa hjá prófessorum hefur staðið í stað í 8 ár. Laun prófessora hafa, með öðrum orðum, ekkert hækkað umfram verðbólguna frá 2016. Skoðun 24. október 2024 07:03
Meirihluti starfsfólks leikskólans í vinnu í verkfallinu Þeim fjórum leikskólum þar sem boðað hefur verið til verkfalla í næstu viku verður lokað á meðan verkföllunum stendur. Af 38 starfsmönnum á leikskólanum Drafnarsteini fara 15 í verkfall og verða því 23 enn í vinnu. Þau mega ekki ganga í störf kennara á meðan verkfalli stendur. Innlent 23. október 2024 23:20
„Flókin staða“ í kjaradeilum kennara Samband íslenskra sveitarfélaga telur rétt að gefa kennurum færi á að bæta kjör sín með því að auka kennsluskyldu. Fundi í kjaradeildu Kennarasambandsins og sveitarfélaga var aflýst í morgun þar sem beðið er niðurstöðu félagsdóms um lögmæti verkfallsboðunar í fyrramálið. Innlent 23. október 2024 00:02
Samþykkja verkfall í Garðaskóla Verkfall hefur verið samþykkt í Garðaskóla í Garðabæ með öllum greiddum atkvæðum. Þar með hafa verkfallsaðgerðir verið samþykktar í ellefu skólum; fjórum grunnskólum, fjórum leikskólum, tveimur framhaldsskólum og einum tónlistarskóla. Innlent 22. október 2024 14:24
Skýr krafa meðal lækna að hefja undirbúning verkfallsaðgerða Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands segir félagsfund félagsins í gær ekki hafa verið boðaðan í þeim tilgangi að boða til aðgerða. Á fundinum hafi komið skýr krafa frá félagsmönnum um að hefja þá vegferð og því vinni samninganefndin að því núna. Samninganefnd félagsins fundar hjá ríkissáttasemjara í dag. Innlent 22. október 2024 11:17
Yfirlýsing kennara eftir fund með borgarstjóra Undirritaðar, fulltrúar kennara í Reykjavík, áttu fund með Einari Þorsteinssyni borgarstjóra í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær, vegna ummæla hans á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga um kennara. Ummælin vöktu mikla reiði kennarasamfélagsins og kennarar mótmæltu þeim við Ráðhús Reykjavíkur síðastliðinn þriðjudag. Skoðun 18. október 2024 20:32
Dæmi um að menntaðir kennarar nái ekki endum saman Kennari segir suma kollega sína ekki ná endum saman og þurfi að vera í nokkrum vinnum. Þá séu fjölmargir sem hrökklist úr starfi vegna álags. Innlent 18. október 2024 20:05
Að halda niðri launum og lifa á loftinu Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins ritaði grein á Vísi þann 17. október 2024 þar sem hún furðar sig á hvar kröfugerð KÍ er. Skoðun 18. október 2024 18:02
Skólinn, sem við kjósum að muna. Samfélagsrýni með rjómabragði Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, ritaði grein á Vísi þar sem hún amaðist við fyrirhuguðum verkföllum kennara. Greinina hóf hún á því að benda á að kennarar væru öfundsverðir af störfum sínum. Skoðun 18. október 2024 07:31
Kennarar í MR samþykkja verkfall Niðurstaða atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls í Menntaskólanum í Reykjavík liggur fyrir. Mikill meirihluti styður boðun verkfalls. Þar með hafa verið boðaðar aðgerðir í tíu skólum í lok mánaðar og byrjun næsta mánaðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kennarasambandinu. Innlent 17. október 2024 13:52
„Kennarar eru ekki eyland í kjarabaráttunni“ Forstöðumaður vinnumarkaðssviðs hjá SA segir að viðbótarhækkanir til kennarastéttarinnar geti raskað kjarasátt í landinu. Kennarar séu ekki eyland, fleiri hópar eigi eftir að klára sína samninga. Þá segir hann að samanburður einkageirans og hins opinbera sé snúinn því margir kostnaðarliðir, umfram laun, hvíli á herðum opinberra vinnuveitenda. Innlent 17. október 2024 12:02
Kjarasamningar opinberra starfsmanna megi ekki raska kjarasátt „Kennarar eru til fyrirmyndar og ég öfunda þau af því að fá að kenna. Það eru því mikil vonbrigði að samninganefnd kennara og forysta kennarasambandsins grípi nú til skæruverkfalla með tilheyrandi röskun á skólastarfi og óvissu án þess að leggja fram skýrar kröfur í kjarasamningum.“ Innlent 17. október 2024 06:53
Hvar er kröfugerðin? Félagsmenn sex aðildarfélaga Kennarasambands Íslands hafa samþykkt skæruverkföll í fjórum leikskólum, þremur grunnskólum, einum framhaldsskóla og einum tónlistarskóla. Kosið var um verkföll og þau samþykkt án þess að skýr kröfugerð hafi verið lögð fram. Skoðun 17. október 2024 06:03